Fréttablaðið - 06.04.2017, Síða 46
6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r30 S p o r T ∙ F r É T T a B l a ð I ð
sport
Hazard hetjan á Brúnni
Færðust skrefi nær titlinum Chelsea svaraði fyrir tapið gegn Crystal Palace um helgina með 2-1 sigri á Manchester City á Stamford Bridge í gær-
kvöldi. Eden Hazard skoraði bæði mörk Chelsea en Sergio Agüero jafnaði metin í millitíðinni. Chelsea er áfram með sjö stiga forskot á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar þegar sjö umferðum er ólokið. Strákarnir hans Antonios Conte eru því í afar góðri stöðu til að tryggja sér titilinn. Fréttablaðið/epa
FóTBolTI Stelpurnar okkar í kvenna-
landsliðinu í fótbolta mæta Sló-
vakíu ytra í dag í vináttuleik sem er
þriðji síðasti leikur liðsins fyrir EM
í Hollandi í júlí. Leikurinn er mikil-
vægur hluti af undirbúningi liðsins
fyrir stóru stundina í sumar.
Freyr Alexandersson landsliðs-
þjálfari er ekki með sitt allra sterk-
asta lið en í hópinn vantar Hólm-
fríði Magnúsdóttur og Dagnýju
Brynjarsdóttur sem eru meiddar og
þá er framherjinn Harpa Þorsteins-
dóttir ekki farin af stað aftur eftir að
eignast barn í síðasta mánuði.
Liðið saknar allar þriggja en
kannski hvað helst Hörpu sem var
markahæst allra í undankeppni EM
2017 með tíu mörk í sex leikjum.
Þegar hún þurfti frá að hverfa fékk
markahrókurinn úr Eyjum, Berglind
Berg Þorvaldsdóttir, traustið hjá
Frey en henni hefur ekki tekist að
skora í átta landsleikjum eftir að fá
stærra hlutverk og í heildina hefur
hún ekki skorað í fyrstu 20 lands-
leikjunum sínum.
pælt í markaleysinu
„Ég er framherji og vil skora og því
finnst mér leiðinlegt að vera ekki
enn búin að skora fyrir Ísland. Ég
held samt bara áfram og læt það
ekkert stöðva mig,“ segir Berglind
Björg sem skipti úr Fylki í Breiða-
blik á síðustu leiktíð í Pepsi-deild
kvenna og skoraði þar átta mörk í
níu leikjum eftir brösuga byrjun.
„Ég hef alveg hugsað um þetta:
Hvers vegna ég skora svona fyrir
Breiðablik en ekki landsliðið. Ég
hef samt í rauninni ekki komist að
neinni niðurstöðu. Ég bara reyni að
komast áfram og gera mitt besta. Ég
mæti alltaf með fullt sjálfstraust inn
í leikina þannig að þetta hlýtur að
fara að koma hjá mér.“
Harpa nálgast endurkomu
Eftir að Freyr Alexandersson gerði
það opinbert að Berglind fengi
tækifærið í fjarveru Hörpu
byrjaði hún fjóra leiki í
röð en var svo komin
á bekkinn fyrir Alg-
arve-mótið þar
sem hún kom
inn á sem vara-
m a ð u r a l l a
riðlakeppnina.
Hún fékk aftur
tækifærið í byrjunar-
liðinu í leiknum um
níunda sætið á móti
Kína en náði ekki
að skora.
„Freysi talar
enn þá vel um
mig og við mig
o g p e p p a r
mig áfram. Á
meðan ég
er að skila
mínu inni
á vellinum
þó mörkin séu
ekki að detta
þá er ég sátt,“
segir Berglind
en nú gæti
farið að stytt-
ast í að Harpa
Þorsteinsdóttir
verði klár. Hún
gæti mögulega
verið með í næsta
landsliðsverkefni í
júní þegar stelpurnar
spila sinn síðasta
vináttuleik fyrir EM
á móti Írlandi. Lítur
Berglind á næstu tvo
leiki sem lokaséns fyrir
sig?
„Nei, alls ekki. Mér finnst
þetta ekki vera síðasta
tækifærið mitt. Ef ég held
áfram að skila því sem ég
hef verið að skila til liðsins
inni á vellinum fara mörkin
að koma og ég get verið sátt
við minn leik. Ég reyni sem minnst
að hugsa um þetta með Hörpu. Ég
ætla bara að gera mitt,“ segir Bergl-
ind Björg.
Hluti af stærra vandamáli
Freyr hefur sagt að hann sé ekki
búinn að gefast upp á þeim sem hafa
fengið tækifærið í fjarveru Hörpu
þrátt fyrir að staðreyndin sé sú að
framherji sem hefur byrjað leik fyrir
Ísland er ekki búinn að skora. Ísland
hefur ekki fengið mark frá „níu“ í
fjarveru Hörpu.
Til að auka slagkraftinn í sóknar-
leiknum og nýta styrkleika liðsins
betur hefur Freyr verið að þróa hjá
liðinu 3-4-3 leikkerfið. Það er svo
stútfullt af góðum miðjumönnum
og miðvörðum að kerfið hentar
hópnum vel. Þó það hljómi kannski
varnarsinnað að spila með þrjá mið-
verði er þetta kerfi mjög gott fyrir
sóknarmenn.
„Mér finnst þetta mjög skemmti-
legt kerfi. Það býður upp á meira í
sóknarleiknum, sérstaklega þegar
bakverðirnir eru svona framarlega
og koma með fyrirgjafir. Ég tala nú
ekki um þegar bakverðirnir heita
Hallbera og Rakel, það eru engin
smá gæði í boltunum frá þeim. Það
er kannski meiri strúktúr að vera
með fjóra í vörn og einn frammi
en þetta er bara veisla fyrir fram-
herjana þannig að ég er ánægð með
að Freysi sé að prófa þetta,“ segir
Berglind Björg Þorvaldsdóttir.
tomas@365.is
Ekki mitt síðasta tækifæri
Markahrókurinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur ekki enn náð að skora fyrir íslenska landsliðið þrátt
fyrir nokkur tækifæri í fjarveru Hörpu Þorsteinsdóttur. Eyjakonan lætur þetta samt ekkert á sig fá.
Ef ég held áfram að
skila því sem ég hef
verið að skila til liðsins inni
á vellinum koma mörkin.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir.
Snæfell - Stjarnan 84-70
Snæfell: Aaryn Ellenberg 25/14 fráköst/6
stoðsendingar, Berglind Gunnarsdóttir 17,
Bryndís Guðmundsdóttir 15/5 stoðsend-
ingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 7, Alda
Leif Jónsdóttir 5, Andrea Björt Ólafsdóttir
4, Sara Diljá Sigurðardóttir 3, María Björns-
dóttir 3, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 3,
Rebekka Rán Karlsdóttir 2.
Stjarnan: Bríet Sif Hinriksdóttir 23, Danielle
Victoria Rodriguez 21/9 fráköst, Ragna
Margrét Brynjarsdóttir 14/9 fráköst/3 varin
skot, Hafrún Hálfdánardóttir 8/7 fráköst,
Jenný Harðardóttir 4.
Snæfell vann einvígið 3-0.
Nýjast
Domino’s-deild kvenna
18.45 augusta Masters Golfstöðin
19.05 Keflavík - Skallagrím. Sport
Í dag
Enska úrvalsdeildin
arsenal - West Ham 3-0
1-0 Mesut Özil (58.), 2-0 Theo Walcott (68.),
3-0 Olivier Giroud (83.).
Swansea - tottenham 1-3
1-0 Wayne Routledge (11.), 1-1 Dele Alli
(88.), 1-2 Son Heung-Min (90+1.), 1-3
Christian Eriksen (90+4.).
Hull - M’brough 4-2
0-1 Álvaro Negredo (5.), 1-1 Lazar Markovic
(14.), 2-1 Oumar Niasse (27.), 3-1 Abel
Hernández (33.), 3-2 Marten de Roon
(45+1.), 4-2 Harry Maguire (70.).
S’oton - C. palace 3-1
0-1 Christian Benteke (31.), 1-1 Nathan
Redmond (45.), 2-1 Maya Yoshida (84.), 3-1
James Ward-Prowse (85.).
Chelsea - Man. City 2-1
1-0 Eden Hazard (10.), 1-1 Sergio Agüero
(26.), 2-1 Hazard (35.).
liverpool - b’mouth 2-2
0-1 Benik Afobe (7.), 1-1 Coutinho (40.), 2-1
Divock Origi (59.), 2-2 Joshua King (87.).
efst
Chelsea 72
Tottenham 65
Liverpool 60
Man. City 58
Arsenal 54
Neðst
C. Palace 31
Hull 30
Swansea 28
M’Brough 23
Sunderland 20
EiNTóMiR úTiSigRAR
Keflavík og Skallagrímur mætast
í þriðja sinn í undanúrslitum
Domino’s-deildar
kvenna í kvöld.
Staðan í einvíginu er
jöfn, 1-1, en báðir
leikirnir hafa
unnist á útivelli.
Skallagrímur
vann 68-70
í Keflavík en
Keflvíkingar
svöruðu með
59-74 sigri
í Borgarnesi.
Leikurinn í kvöld
hefst klukkan
19.15 og verður
sýndur í beinni
útsendingu á
Stöð 2 Sport HD.
MATTi SKoRAði HjÁ iNgvARi
Matthías vilhjálmsson var
í byrjunarliði Rosen-
borg og skoraði
í 0-3 útisigri
liðsins á Sande-
fjord í norsku
úrvalsdeildinni í
gær. ingvar jóns-
son stóð í marki
Sandefjord. óttar
Magnús Karlsson lagði upp fyrra
mark Molde í 2-1 sigri á Lilleström.
Þetta var hans fyrsti deildarleikur
í byrjunarliði Molde. Þá tapaði
Íslendingaliðið Ålesund 1-3 fyrir
Sarpsborg á heimavelli sínum.
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
E
-5
A
6
8
1
C
9
E
-5
9
2
C
1
C
9
E
-5
7
F
0
1
C
9
E
-5
6
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K