Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Blaðsíða 32
Viðtal við Guðrúnu Broddadóttur, deildarhjúkrunarkonu:
GÖNGUDEILD
— ný eftirmeðferðardeild á Landspítalanum
Nýlega hóf starfsemi sína ný
deild í Landsspítalanum. 1 tilefni
af því brugðum við okkur þang-
að í heimsókn og hittum þar frú
Guðrúnu Broddadóttur deildar-
hjúkrunarkonu og lögðum fyrir
hana nokkrar spurningar:
— Hvenær tók deildin til
starfa ?
— Göngudeild hóf starfsemi
sína um miðjan okt. s.l. Deildin
er til húsa í kjallara nýju vest-
urálmunnar í Landsspítalanum,
ca. 300 ferm. að stærð.
— Hvernig er starfsemi deild-
arinnar háttað?
— Læknafélag Reykjavíkur
samþykkti á fundi sínum 25.
apríl ’69 heimild til stjórnar
félagsins að leyfa nú þegar
starfsemi deildarinnar með að-
gangi eftirgreindra sjúklinga:
Frá skiptistofunni.
Frá vinstri: Telma Jóhannesdóttir, sjúkraliöi, Kristín Pálsdóttir hjúkrunar-
kona og Guðrún Broddadóttir, deildarhjúkrunarkona.
A. Sjúklinga, sem þarfnast sér-
stakrar framhaldsmeðferðar
eftir dvöl á stofnuninni.
B. Sjúklinga, sem vísað hefur
verið til stofnunarinnar og
þarfnast meðferðar eða
rannsóknar, sem ekki er að-
staða til að framkvæma ann-
arsstaðar.
C. Sjúklinga, sem kennsluefni
stúdenta í læknadeild.
D. Sjúklinga, sem valdir eru til
rannsókna í vísindalegum
tilgangi.
Reglur varðandi önnun sj. undir
liðum B., C. og D. verða settar
síðar, einungis liður A. hefur
tekið gildi.
Skoðunarherbergi fyrir böm.
122 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS