Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Page 48

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1969, Page 48
Eftir læknisskoðunina var gerð blóðrannsókn: Hb ................ 80% Eðlilegar tölur 100% Hematokrit ............ 38 — 30— 40 Mchc .................. 33 — 33— 38% Serum Natrium .... 115 ---- — 139—150 Serum Kalium .... 2.3 ---- — 3.6—5 Serum Chlorid .... 53 ---- — 100—110 Bicarbonat............. 50 — 19— 30 Blóðrannsóknin sýndi, að barnið var komið úr elektrolyta-jafn- vægi og Bicarbonatið var alltof hátt. Var ákveðið að hafa drenginn fastandi, en gefa vökva í æð, glucosu + Infundible Kalii chloridi og Natrii chloridi (,3%). Var drengurinn fluttur fram á skoðunarherbergi og allt undir- búið, svo hægt væri að frileggja æð, og var tekinn til sérstakur sterill bakki til þess. Meðan á þessu stóð hélt ég við drenginn og róaði hann, en hjúkrunarkonan aðstoðaði lækninn. Gekk þetta fljótt og vel, frílögð var Median marginal æðin (liggur innan- fótar í öklanum), var síðan gengið frá fætinum, þannig að engin hætta væri á að færi út úr æðinni. Vökvamagn og hraði dropanna pr. mín., var ákveðinn í samræmi við þyngd barnsins, aldur og líðan, en heilbrigð börn þurfa að fá vökvamagn er nemur % af líkamsþyngd pr. sólarhring fyrstu mánuðina. Þvag var tekið í almenna rannsókn og microskopi, þannig að drengnum var þvegið vel að neðan, síðan var glans penis þveg- inn með Phisohexi og sterilu vatni, síðan var colostomiupoki límdur á drenginn, þvagsýnið reyndist vera eðlilegt. Moro-próf var gert, sem sýndi neikvæða reaktion. Daglog íiiiiöiinun. Fyrstu sólarhringana var höfð föst vakt yfir drengnum og sá hún um almenna hirðingu hans. Fylgdist hún með að stofuhitinn væri ca 22°C. Þvoði hún barninu reglulega og athugaði allar húð- fellingar og skipti á nærfötum og rúmfötum. Einnig sneri hún barninu til að koma í veg fyrir komplikationir og einnig til að forða, að höfuð barnsins skekktist. Ekki var hægt að fylgjast með vigt barnsins. Þar sem þessi börn hafa mjög litla mótstöðu gegn öllum smit- unum, var hjúkrunarliðið mjög nákvæmt með allt hreinlæti, og aðgætti í hvívetna að bera ekki smit til drengsins: Hjúkrunar- liðið mátti ekki hafa infection, s. s. kvef eða hálsbólgu. Hand- þvottur var með Phisohexi og handþurrkur voru einnota. Einnig var hafður sér hlífðarsloppur merktur drengnum. Samhliða þessu fylgdist vaktin með vökvagjöfinni, sem gekk vel. Taldi púls, sem var stabill 120—130 pr. mín., taldi öndun, sem var eðlileg, 35 pr. mín., og átti drengurinn aldrei í öndunar- erfiðleikum eða fékk krampa, og þurfti aldrei súrefni. Einnig fylgdist vaktin með uppköstum, sem voru sjö sinnum fyrsta sólar- hringinn og alltaf brúnleit. Diuresan kom eðlilega, eftir að In- fusionin var sett upp, en hægðir komu engar. Samhliða þessu sá vaktin um að sefa barnið og róa, og gaf því gjarnan túttu, til þess að það hefði eitthvað til að sjúga. Á fimmta degi töldu læknar, að bezt myndi vera að operera drenginn. Var þá aftur tekin blóðprufa og voru niðurstöður eðli- 138 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS ---------------------------

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.