Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Page 3
Frá aðalfundi HFÍ
Aðalfundur HFÍ samþykkti að taka upp starfsheitið hjúkrunarfræðingur og fól stjórn félagsins að
fá það löggilt. Stwrfsheitið hjúkrunarkona/maður skal eftir sem áður lögverndað fyrir þá
félaga HFÍ, sem þess óska.
Aðalfundur Hj úkrunarfélags
íslands 1974 var haldinn í
Reykjavík 20. og 21. júní sl.
Fundurinn hófst með kjörfundi
í skrifstofu félagsins fimmtu-
daginn 20. júní kl. 12. Kjör-
fundur stóð til kl. 23.
Kjósa átti 2 félaga í stjórn
til fjögurra ára.
I kjöri voru:
Ingibjörg Helgadóttir,
Sigurveig Sigurðardóttir,
Sigþrúður Ingimundardóttir,
Amalía Svala Jónsdóttir.
Atkvæði greiddu 357, þar af 196
á kjörstað og 161 utan kjör-
staðar.
Atkvæði féllu þannig:
Ingibjörg Helgadóttir 323
atkvæði,
Sigurveig Sigurðardóttir 167
atkvæði,
Sigþrúður Ingimundardóttir
164 atkvæði,
Amalía Svala Jónsdóttir 35
atkvæði.
í kjörstjórn voru:
Valgerður Jónsdóttir,
Sesselja Þ. Gunnarsdóttir,
Sólveig Jónsdóttir.
Pundinum var fram haldið í
Átthagasal Hótel Sögu föstu-
^aginn 21. júní kl. 9.30. Kjörn-
ii' fulltrúar voru 49 frá 8 svæðis-
°g sérgreinadeildum, stjórn
HPI, ritstjórn og trúnaðarráði.
Fundinn sátu 46 fulltrúar auk
áheyrnarfulltrúa frá Hjúkrun-
ai'nemafélagi Islands-
Formaður setti fundinn og
bauð fulltrúa velkomna, hóf síð-
an mál sitt með því að minnast
látinna félaga, þeirra:
Guðnýjar Jónsdóttur,
Lilju Halblaub og
Áslu Jakobsen, ásamt
Aagot Lindström, Noregi, og
Maríu Madsen, Danmörku,
en þær voru báðar heiðursfélag-
ar HFl. Risu fulltrúar úr sæt-
um í virðingarskyni við hina
látnu félaga.
Fundurinn samþykkti stofn-
un tveggja nýrra svæðisdeilda,
Suðurnesjadeildar og Suður-
landsdeildar. Fulltrúar þeirra
voru: Ei-na Bergmann og Jó-
hanna Stefánsdóttir f. h. Suð-
urnesjadeildar og Pálína Tóm-
asdóttir f. h. Suðurlandsdeildar.
Varðandi aðra fulltrúa er vís-
að til 2. tölublaðs 1973, en full-
trúar voru þá nýkjörnir til fjög-
urra ára.
Formaður tilkynnti úrslit í
stjórnarkjöri HFl, og voru þær
Ingibjörg Helgadóttir og Sigur-
veig Sigurðardóttir kjörnar.
Óskaði formaður þeim árnaðar.
Vegna fjarveru Ingibjargar
Helgadóttur var ákveðið að
senda henni heillaskeyti.
Varamenn í stjórn HFl:
María Gísladóttir, Kleppssp.,
Guðrún Marteinsson, Borgar-
spítala,
Kristbjörg Þórðardóttir,
Rauða krossi Islands,
Unnur Viggósdóttir, Nýja
h j úkrunarskólanum,
Þui’íður Backman, Borgarsp.,
Sigrún Hulda Jónsdóttir,
Áslaug Björnsdóttir, Borgar-
spítala.
Aðrir höfðu ekki verið tilnefnd-
ir, og töldust því réttkjörnir án
atkvæðagreiðslu.
Fluttar voru skýrslur um
störf stjórnar, nefnda og deilda
innan HFÍ og endurskoðaðir
reikningar félagsins lagðir fram
til samþykktar.
Sumþykktir:
Stjórn Reykjavíkurdeildar
HFÍ lagði fram þá tillögu, að
fulltrúum á aðalfundi HFl 1974
skuli falið að taka afstöðu til
lögverndaðs starfsheitis hjúkr-
unarstéttarinnar. Tillögunni
hafði áður verið dreift meðal
fulltrúa allra deilda á landinu.
Var hún samþykkt.
Þá bárust nokkrar samhljóða
tillögur um starfsheitið hjúkr-
unarfræðingur, og var eftirfar-
andi tillaga samþykkt:
Aðalfundur HFl samþykkir
að taka upp starfsheitið
hjúkrunarfræðingur og felur
stjórn félagsins að fá það lög-
gilt. Starfsheitin hjúkrunar-
kona og hjúkrunarmaður
skulu eftir sem áður lögvernd-
uð fyrir þá félaga HFÍ, sem
þess óska.
Tillagan var samþykkt með 43
atkv. gegn 1.
Stjórn HFl lagði fram tillögu