Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Síða 4
um breytingu á félagsgjöldum.
Fulltrúarnir Jóna Valg. Hös-
kuldsdóttir, Þóra G. Sigurðar-
dóttir, Sigurleif Sigurjónsdótt-
ir og Ingileif ólafsdóttir báru
fram breytingartillögu, er aðal-
lega fól í sér að félagsgjald yrði
reiknað 15% í stað 10% og að
hjúkrunarkonur yfir 60 ára og
nemar greiddu 2%. Breytingar-
tillagan var samþykkt. Tillag-
an hljóðar því endanlega þann-
ig:
Tillaga stjómar HFl urn breyt-
ingu á félagsgjöldum.
1. Félagsgjald sé reiknað 15%
af nóvemberlaunum ári fyr-
irfram og miðað við 18.1auna-
flokk eftir 6 ár (eða þann
lfl. sem alm. hjúkrunarkona
er í) og sé fullt gjald fyrir
hjúkrunarkonur i fullu og
hálfu starfi.
2. Heimilað verði, að þessi
breyting komi til fram-
kvæmda við innheimtu seinni
hluta félagsgjalda fyrir árið
1974.
3. Hjúkrunarkonur yfir 60 ára
og nemar greiði 2%, hjúkr-
unarkonur í afleysingum og
minna en Y> starfi ca. %,
hjúkrunarkonur ekki starf-
andi ca. Ys< hjúkrunarkonur
við framhaldsnám án launa
greiði ekki félagsgjald.
Kjörstjómin að
störfum.
Frá vinstri: Sólveig
Jónsdóttir, Sesselja Þ.
Gunnarsdóttir og
Valgerður Jónsdóttir.
Ljósm. I. Á.
Síðasti kjósandinn sést
hér stinga kjörseðli
sínum x kassann.
Ljósm. I. Á.
Tölurnar séu hækkaðar eða
lækkaðar, þannig að þær hlaupi
á hundraði.
Starfandi hjúkrunarkonur
greiði félagsgjöldin í tvennu
lagi, og stefnt verði að því að
koma á gíróþjónustu við inn-
heimtu félagsgjalda þeirra
hjúkrunarkvenna, sem ekki eru
starfandi.
Einnig voru eftirfarandi til-
lögur samþykktar:
Aðalfundur HFI1974 fer þess
á leit við stjórn HFl og fræðslu-
málanefnd, að þær marki
ákveðna stefnu og beiti sér fyr-
ir undirbúningi námskeiða í
Fulltrúar að störfum.
Frá vinstri: Lilja
Óskarsdóttir, Björg
Ólafsdóttir, fuUtrúi
nemanna og Sigþrúður
Ingimundardóttir.
Ljósm. I. Á.
62 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS