Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 6
Kristín Pálsdóttir, Hjúkrun-
arskóla Islands,
Sigurlín Gunnarsdóttir, Borg-
arspítalanum.
Miina'ðarnesnefnd: Ný nefnd,
sem annast eftirlit með sumar-
húsum félagsins í Munaðarnesi.
Formaður nefndarinnar sé jafn-
framt fulltrúi HFÍ í fulltrúa-
ráði orlofsheimila BSRB. —
Nefndin er kosin til tveggja ára
að þessu sinni, en framvegis til
þriggja ára til samræmis við
kosningu til fulltrúaráðs orlofs-
heimilanna. Eftirtaldar hjúkr-
unarkonur, allar á svæfinga-
deild Borgarspítala, hafa gefið
kost á sér — og hefur Maríanna
Haraldsdóttir jafnframt gefið
kost á sér sem formaður nefnd-
arinnar og fulltrúi HFl í full-
trúaráði orlofsheimila BSRB:
Maríanna Haraldsdóttir,
Ásgerður Tryggvadóttir,
Anna Vigdís Jónsdóttir,
Bergljót Haraldsdóttir,
Gyða Halldórsdóttir.
Jólatrésnefnd:
Edda Árnadóttir,
Þorbjörg Skarphéðinsdóttir,
Ásgerður Tryggvadóttir (frá
1974),
Maríanna Haraldsdóttir (frá
1974).
Endurskoóendur:
Gyða Haraldsdóttir,
Bergljót Haraldsdóttir (frá
1974).
Minningarsjóður Guðrúnar
Gísladóttur Björns:
Agnes Jóhannesdóttir,
Hertha W. Jónsdóttir,
Lilja Harðardóttir (frá
1974).
Samtök heilbrigðisstétta:
Aðalfulltrúar:
María Pétursdóttir,
Hólmfríður Stefánsdóttir,
Sigurlín Gunnarsdóttir,
Ingibjörg Helgadóttir,
Jóna Höskuldsdóttir.
Varamenn:
Magdalena Búadóttir,
Jóhanna Stefánsdóttir,
Sigríður Jakobsdóttir,
Erna Bergmann,
Málfríður Finnsdóttir.
Laganefnd (til endurskoðunar á
lögum HFl) :
Formaður HFl,
fulltrúi HNFl,
Magdalena Búadóttir,
Sigþrúður Ingimundardóttir,
Ingibjörg R. Magnúsdóttir.
Vegna úthlutunar á sumarhús-
um félagsins.
Stjórn Hjúkrunarfélags Is-
lands hefur ákveðið, að á næsta
ái'i verði hafður sá háttur á
með úthlutun á sumarhúsum fé-
lagsins, að sótt verði um þau
skriflega. Með 1. tbl. Tímarits
HFÍ 1975 mun fylgja eyðublað
til nota fyrir þá, sem vilja sækja
um fyrir sumarið 1975.
Berist margar umsóknir um
sömu vikuna, verður starfsald-
ur látinn ráða við úthlutun, a.
m. k. stærra hússins í Munaðar-
nesi, en forgangsrétt að minna
húsinu hafa h j úkrunarkonur,
sem komnar eru á eftirlaun.
Formaður félagsins, María
Pétursdóttir, kvaðst láta af
störfum í september, en þá kem-
ur Ingibjörg Helgadóttir að ut-
an. Hún hefur fallist á að taka
við formennsku út kjörtíma-
bilið.
Formaður þakkaði Gerðu Ás-
rúnu Jónsdóttur fyrir vel unn-
in störf í stjórn félagsins, fund-
arstjóra Elísabetu Ingólfsdótt-
ur góða fundarstjórn, fulltrúum
þátttöku og sleit síðan fundi kl.
19.30.
Þetta er í annað sinn, sem að-
alfundur er haldinn með þessu
sniði, og hefur gefist vel. Var
fundurinn málefnalegur og ár-
angursríkur og öllum þátttak-
endum til sóma.
Telcið saman af
Ingibjörgu Ámadóttur.
„ ORÐASKAK“ út af samheitjnuhjúkrunarfólk
NÝLEGA varð nokkurt orðaskak á fundi einum
í Reykjavík út af samheitinu „hjúkrunarfólk".
Fyrst í stað hélt undirrituð, að heiti þessu væri
ætlað að merkja þá, sem starfa að hjúkrun, þ.
e. hjúkrunarkonur og hjúkrunarmenn, en brátt
kom í ljós, að þarna var ennfremur meiningin
að vísa til ljósmæðra, sjúkraliða og jafnvel hugs-
anlega fleiri heilbrigðisstétta, svo sem röntgen-
tækna og þroskaþjálfara. Bersýnilega þótti
óþarft að telja viðkomandi starfsstéttir upp,
hverja með sínu nafni, og samheitið því notað
til tímasparnaðar. Ekki hafði viðkomandi ein-
staklingum dottið í hug það snjallræði að spara
fyrir sér enn frekar og nota þá lengri spönn
með samheitinu „lækningafólk“, þannig að bæta
mætti læknum við hóp allra hinna. Ef nú ein-
hverjum þætti þess vert að andmæla slíku snjall-
ræði á þeirri forsendu, að enginn megi stunda
lækningar nema læknar, þá ber og að minnast
þess, að Alþingi hefur lögfest, að rétt til að
stunda hjúkrun hér á landi hafa þeir einir, sem
til þess hafa fengið leyfi heilbrigðismálaráð-
herra að afloknu prófi í hjúkrunarfræðum frá
viðurkenndum skóla hérlendis eða erlendis.
Þannig er, sem sé, ekkert ósmekklegra að taka
upp samheitið „lækningafólk“ en samheitið
„hjúkrunarfólk". Bæði þessi heiti eru óæskileg,
m. a. vegna þess, hversu auðvelt er að misskilja
64 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS