Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 12
Samningur
Reykjavíkurborg og Hjúkrunarfélag íslands
gera svofelldan samning skv. 6. gr. reglug. nr.
195/1973:
1. gr.
Frá 1. janúar 1974 til 31. mars 1974 gildir
launastigi samkvæmt aðalkjarasamningi aðila
frá 28. febrúar 1974.
Frá 1. apríl 1974 gildir eftirfarandi grunn-
launastigi (grunnlaun miðast við vísitölu sem
svarar til 149.89 hinn 1. desember 1973 og breyt-
ast í hlutfalli við framfærsluvísitölu með þeim
hætti, sem ákveðið var í kjarasamningum á
almennum vinnumarkaði í febrúar 1974):
1 o s. 8. 8. P, 1 O
o 50
s s s i. s >8. s ■8. •8. |
e -4 >o Ö
09 45.217 47.417 49.717 51.917 54.217 09
10 47.417 49.717 51.917 54.217 56.417 10
11 49.717 51.917 54.217 56.417 58.617 11
12 51.917 54.217 56.417 58.617 60.917 12
13 54.217 56.417 58.617 60.917 63.117 13
14 56.417 58.617 60.917 63.117 65.417 14
15 58.617 60.917 63.117 65.417 68.417 15
16 60.917 63.117 65.417 68.417 71.517 16
20 71.517 74.517 77.617 80.617 83.417 20
21 74.517 77.617 80.617 83.417 86.219 21
Grunnlausn skv. þessari grein skulu hækka um
3% þann 1. desember 1974 og þau grunnlaun
um 3% þann 1. júní 1975.
2. gr.
1. mgr. Störfum félaga í Hjúkrunarfélagi Is-
lands, sem vinna hjá Reykjavíkurborg, skal rað-
að í launaflokka skv. 1. grein eins og greint er
í fylgiskjali með samningi þessum, sem telst
hluti hans. Fram til febrúarloka 1975 skal þó
almenn hjúkrunarkona taka laun sem hjúkr-
unarkona IV í fylgiskjali, sérlærð hjúkrunar-
kona sem hjúkrunarkona III og svæfingarhjúkr-
unarkona sem hjúkrunarkona II í fylgiskjali I.
2. mgr. Frá og með 1. mars 1975 skal hjúkr-
unarkona, er hefur menntun, sem svarar 130
stigum, taka laun skv. 12. lfl. Hjúkrunarkona,
er minni menntun hefur, taki laun einum launa-
flokki neðar, vanti 1—20 stig á ofangreindar
menntunarkröfur, tveimur launaflokkum neðar,
vanti hana 21—35 stig, en ella skv. 9. lfl.
3. mgr. Próf frá Hjúkrunarskóla Islands skv.
núgildandi námsskrá í þessu sambandi er metið
á 87 stig, en stúdentspróf 80 stig.
U. mgr. Stig þau, sem um ræðir í 2. mgr., til
viðbótar hjúkrunarnámi skv. 3. mgr., getur
hjúkrunarkona áunnið sér fyrir menntun og/eða
hjúkrunarstörf. Fyrir hvert ár í fullu starfi
við hjúkrunarstörf vinnst 1.6 stig. Fyrir störf
við almenna hjúkrun vinnast samtals 8 stig
að hámarki. Fyrstu tvö námsár í námi, er nýt-
ast í starfi og viðurkennt er af menntamála-
ráðuneytinu, gefur 15 stig hvort, sé það á stigi
ofar stúdentsprófi, þriðja námsár frá stúdents-
prófi 20 stig. Fyrir hvert ár í fullu starfi, eftir
að 117 stigum er náð, vinnast 2,6 stig, þó þannig
að stig unnin við almenn hjúkrunarstörf og
stig unnin við hjúkrunarstörf sérmenntaðs fólks
verði eigi fleiri en 13 samtals.
5. mgr. Fyrir hverjar 30 stundir í kennslu
á námskeiðum, er menntamálaráðuneytið við-
urkennir sem framhaldsnám fyrir hjúkrunar-
konur, vinnst 1 stig, enda liggi fyrir vitnisburð-
ur námskeiðshaldara um fullnægjandi þátttöku
og frammistöðu á námskeiðinu.
3. gr.
1. mgr. Hjúkrunarkonur, sem vinna reglu-
bundna vaktavinnu, skulu undanþegnar nætur-
vöktum, ef þær óska, er þær hafa náð 55 ára
aldri. Vaktaálag er þá aðeins greitt fyrir þær
unnar stundir, sem falla utan dagvinnutímabils.
4. gr.
1. mgr. Með útkallsvakt er átt við, að hjúkr-
unarkona dvelji ekki á vinnustað, en sé reiðu-
búin að sinna útkalli fyrirvaralaust.
2. mgr. Greiðsla fyrir fasta útkallsvakt, sem
yfirmaður hefur ákveðið, skal nema sömu fjár-
70 TÍMARIT HJÚKRUNARPÉLAGS ÍSLANDS