Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Qupperneq 13
hæð og vaktaálag skv. 2. mgr. 14. gr. aðalkjara-
samnings.
3. mgr. Hafi hjúkrunarkona á útkallsvakt
ekki fengið samfellda hvíld að minnsta kosti 6
klst. á tímabilinu kl. 22.00 til kl. 8.00 vegna
útkalla, ber henni 6 klst. hvíld frá því að útkalli
lýkur, þar til hún mætir til vinnu á ný, án launa-
skerðingar.
U. mgr. Hjúkrunarkonu, 55 ára eða eldri, er
heimilt að losna undan þeirri kvöð að vera á
útkallsvakt.
5. gr.
1. mgr. Fyrir reglubundnar gæsluvaktir
hjúkrunarkvenna, sem starfa á skurðstofum og
svæfingardeildum, skal veitt frí, sem svarar
einum degi fyrir hvern unninn mánuð á gæslu-
vakt í fullu starfi.
2. mgr. Frí þetta má veita hvenær árs sem
er, en hvorki er heimilt að flytja það milli ára
né bæta því við sumarleyfi.
6. gr.
1. mgr. Hafi hjúkrunarkona unnið a. m. k.
6 klst. í yfirvinnu og hefjist venjulegur vinnu-
fími hennar innan 6 klst., skal henni heimilt
^ð hvílast 8 klst. án þess að dagvinnukaup henn-
ar skerðist.
7. gr.
1. mgr. Starfsþjálfunarþrep, sbr. 5. gr. aðal-
kjarasamnings, skal vera eitt fyrir hjúkrunar-
konur.
8. gr.
1. mgr. Við gerð samnings þessa er samn-
ingsaðilum ljós ríkjandi stefna af borgarinnar
hálfu í því efni að leggja starfsmönnum á föst-
um vinnustað til mat og kaffi á venjubundnum
tímum gegn greiðslu matarefniskostnaðar. Telja
samningsaðilar þá stefnu fullnægjandi skipan
þessara mála á samningstímanum, enda verði
þess freistað að gera hlut starfsmanna ein-
stakra stofnana sem jafnastan í þessu efni eftir
aðstæðum á hverjum stað.
2. mgr. Starfsmenn hafi ókeypis fæði eða
Si'eiddan fæðiskostnað skv. 19. gr. aðalkjara-
samnings, starfi þeir fjarri föstum starfsstað.
9. gr.
7- mgr. Fastir starfsmenn skulu vera slysa-
tvyggðir, sem hér segir, miðað við dauða:
h Einhleypir starfsmenn, sem ekki hafa börn
undir 17 ára aldri eða aldraða foreldra yfir
67 ára aldri á framfæri sínu, fyrir kr.
200 000,00.
II. Einhleypir starfsmenn, sem hafa bai*n/
börn undir 17 ára aldri eða aldraða for-
eldra yfir 67 ára aldri á framfæri sínu,
fyrir kr. 500 000,00, sem skiptist að jöfnu
milli aðila.
III. Kvæntir eða giftir starfsmenn fyrir kr.
700 000,00 til maka og að auki kr.
100 000,00 til hvers barns undir 17 ára
aldri, sem þeir hafa á framfæri sínu.
2. mgr. Vegna örorku skulu starfsmenn slysa-
tryggðir fyrir kr. 1 250 000,00 miðað við 100 %
örorku, þannig að hvert örorkustig til og með
75% veiti bætur kr. 10 000,00 fyrir hvert stig,
en hvert stig þar yfir veiti bætur, kr. 20 000,00
fyrir hvert stig.
3. mgr. Tryggingarupphæðir skal endurgreiða
á samningstímabilinu með tilliti til verðlags-
breytinga. Slíka endurskoðun skal miða við ára-
mót.
10. gr.
1. mgr. Hjúkrunarkona, sem vinnur fastan
hluta úr fullu starfi, fái hlutfallslega stytt-
ingu á vinnuskyldu sinni, þegar helgidagar falla
inn í vinnuviku.
11. gr.
1. mgr. Við gerð samnings þessa er samn-
ingsaðilum ljós gagnkvæm þörf borgarinnar
og starfsmanna hennar fyrir, að starfsmenn
eigi kost á reglubundinni þjálfun, námskeið-
um eða annars konar menntun, til að viðhalda
og auka við starfshæfni sína.
2. mgr. Hjúkrunarkona, sem með sérstöku
leyfi forstöðukonu sækir fræðslu- og þjálfun-
arnámskeið, sem viðurkennt er skv. 4. mgr. 2.
gr., skal halda föstum launum með fullu vakta-
álagi meðan slíkt námskeið stendur yfir, allt
að 3 mánuði á hverjum fimm árum.
3. mgr. Samningsaðilar telja þetta svið að
öðru leyti ekki til þess fallið að binda það samn-
ingsákvæðum, en munu á samningstímanum
freista þess að móta frekar en verið hefur
ákveðna stefnu í þessu efni og framkvæma í
samráði sín á milli.
12. gr.
1. mgr. Hjúkrunarkonur á röntgendeild skulu
hér eftir sem hingað til fá vetrarfrí til viðbót-
ar almennu orlofi sem svarar 16 dögum fyrir
hvert heilt ár.
TÍMARIT HJÚKRUNARPÉLAGS ÍSLANDS 71