Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Síða 14

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Síða 14
13. gr. 1. mgr. Sé varðskrá breytt með minna en sól- arhrings fyrirvara, skal greiða tvo tíma í yfir- vinnu. 14. gr. 1. mgr. Fram til febrúarloka 1975 skal heilsu- verndarhjúkrunarkona, sem ekki hefur lokið sérnámi, taka laun samkv. 10. lfl. Ákvæði 4. mgr. 2. gr. samnings þessa taka ekki til þess- ara starfsmanna. 15. gr. 1. mgr. Þær hjúkrunarkonur, sem taka laun samkvæmt 13. lfl. (hjúkrunardeildarstjóri, heilsuverndarhjúkrunarkona með sérnám og yfirhjúkrunarkona á sérdeild), skulu eftir 5 ára starf í slíkri stöðu hjá heilbrigðisstofnun- um Reykjavíkurborgar taka laun samkv. 14. lfl. 16. gr. 1. mgr. Launamálanefnd mun mæla með því við borgarráð, að meðan nauðsynlegt er, að heilsuverndarhjúkrunarkonur sæki sérnám er- lendis, skuli þær halda launum í 4 mánuði með- an á námi stendur, svo sem verið hefur undan- farin ár, en að auki eiga kost á námsláni. Greiðslur þessar afskrifist eftir ákveðnum regl- um miðað við starfstíma hjá Reykjavíkurborg að námi loknu, en séu ella endurkræfar. Heil- brigðismálaráði verði falið að setja nánari regl- ur um tilhögun þessara námslána og fjölda þeirra. 17. gr. 1. mgr. Launamálanefnd mun leggja til við borgarráð, að borgarsjóður leggi fram kr. 300 000,00 til styrktar Orlofsheimilasjóði Hjúkrunarfélags Islands. 18. gr. 1. mgr. Þær heilsuverndarhjúkrunarkonur, sem samkvæmt fyrirmælum yfirmanns hafa fasta símaviðtalstíma á heimili sínu, skulu fá greitt í sérstaka þóknun fyrir þá þjónustu kr. 4 000,00 á ári. 19. gr. 1. mgr. Um gildistíma og uppsögn þessa samn- ings fer skv. ákvæðum reglug. nr. 195/1973. Reykjavík, 15. júní 1974. F. h. Reykjavíkurborgar að áskildu samþ. borgarráðs, ólafur B. Thors Albert Guðmundsson Kristján Benediktsson Sigurjón Pétursson. F. h. Hjúkrunarfélags Islands, María Pétursdóttir Fjóla Tómasdóttir Guðrún Sveinsdóttir Sig'rún Sigurðardóttir Áslaug E. Björnsdóttir. Fylgiskjal I með samningi Reykjavíkurborgar við Hjúkrun- arfélag Islands 15. júní 1974. Röðun starfa hjúkrunarkvenna í launaflokka. S tarfsheiti: Launafl.: Hjúkrunai'kona IV (87 stig) sbr. 2. gr........ 9 Hjúkrunarkona III (95 stig) sbr. 2. gr....... 10 Hjúkrunarkona II (110 stig) sbr. 2. gr....... 11 Heilsuverndarhjúkrunarkona, án sérnáms .... 11 Aðstoðardeildarstjóri við hjúkrun fái greidd laun skv. stöðu sinni að viðbættum einum launaflokki. Hjúkrunarkona I (130 stig) sbr. 2. gr........ 12 Hjúkrunardeildarstjóri ...................... 13 Yfirhjúkrunarkona á sérdeild ................ 13 Heilsuverndarhjúkrunarkona með sérnám .... 13 Hjúkrunardeildarstjóri heilsuverndar ........ 14 Hjúkrunarnámsstjóri Borgarspítala ........... 15 Aðstoðarhjúkrunarframkv.stjóri Borgarspítala 16 Hjúkrunarframkv.stjóri Heilsuverndarstöðvar 20 Hjúkrunarforstjóri Borgarspítala ............ 21 72 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.