Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Side 15

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Side 15
§ ! * 9 .jr t 1 i i W , fm Nemendur Nýja hjúkrunarskólans: Ljósmæður í lijúkrunarnámi. Rœtt við Maríu Pétursdóttur; shólastjóra Nýja hjúbunarshólans Hver voru tildrög að stofnun Nýja hjúkrunarskólans, og live- nær hóf hann starfsemi sína? Til að skýra frá endanlegum tildrögum að stofnun Nýja hJ úkrunarskólans leyfi ég mér birta nokkra orðrétta kafla Ur athugasemdum við frumvarp til laga um, heimild fyrir ríkis- stjórnina til að stofna og reka hjúkrunarskóla í tengslum við Borgarspítalann í Reykjavík. Brumvarp þetta var lagt fyrir Alþing veturinn 1972 og sam- Pykkt sem lög 81. maí 1972. »1 bréfi borgarstjórans í Beykjavík til menntamálaráðu- neytisins, dags. 21. jan. 1972, ei' greint frá því, að á fundi oorgarstjórnar Reykjavíkur 20. s. m. hafi verið lögð fram og samþykkt með samhljóða at- kvæðum eftirfarandi tillaga heilbrigðismálaráðs borgarinn- ar frá 14. s. m.: „Borgarstjórn ályktar að fela borgarstjóra í samráði við borg- arlækni og heilbrigðismálaráð að undirbúa stofnun nýs hjúkr- unarskóla, sem starfræktur verði í tengslum við Borgarspít- alann. Markmið skólans verði að veita nemendum sínum full hjúkrunarréttindi, en starfsemi hans miðuð við að auðvelda hjúkrunar- og líknarstofnunum borgarinnar að fá hjúkrunarfólk til starfa. Borgarstjórn felur borgar- stjóra að hefja viðræður við menntamálaráðuneytið og heil- brigðisráðuneytið um fyrir- komulag skólans, en eðlilegt er, að ríkisvaldið kosti hina bók- legu kennslu, bæði kennslu- krafta, húsnæðiskostnað og ann- að, sem þeim þætti námsins fylg- ir. Borgarstjórn skorar jafn- framt á ríkisvaldið að efla þann skóla, sem fyrir er, og beita sér fyrir stofnun kennsludeildar í hjúkrun við Háskóla Islands, sem taki til starfa svo fljótt sem auðið er.“ Jafnframt fór borgarstjóri þess á leit í bréfinu, að mennta- málaráðuneytið og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið til- nefndu fulltrúa til viðræðna um væntanlegt fyrirkomulag skól- ans, og skýrir frá því, að af hálfu Reykjavíkurborgar muni TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 73

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.