Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Page 16
borgarlæknir, dr. Jón Sigurðs-
son, og framkvæmdastjóri Borg-
arspítalans, Haukur Benedikts-
son, taka þátt í viðræðunum.
Menntamálaráðuneytið svar-
aði bréfi borgarstjóra 4. febrú-
ar 1972 og tjáði sig fúslega
mundu „ræða við borgaryfir-
völd Reykjavíkur um hverja þá
hugmynd, sem líkleg er til að
auðvelda hjúkrunar- og líknar-
stofnunum, ekki aðeins Reykja-
víkurborgar, heldur og landsins
alls, að fá hjúkrunarfólk til
starfa“, og jafnframt var til-
kynnt, að þeir Birgir Thorlacius
ráðuneytisstjóri og Runólfur
Þórarinsson fulltrúi mundu taka
þátt í viðræðunum af hálfu ráðu-
neytisins.
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið tilnefndi af
sinni hálfu til viðræðnanna
Ingibjörgu R. Magnúsdóttur
deildarstjóra í ráðuneytinu með
bréfi dags. 2. febrúar 1972.
Viðræðufundir hófust 6. mars
1972, og var dr. Jón Sigurðs-
son kjörinn formaður nefndar-
innar, en Ingibjörg R. Magn-
úsdóttir ritari.“
I athugasemdum með frum-
varpinu segir ennfremur:
„Eins og fram kemur í svar-
bréfi menntamálaráðuneytisins
frá 4. febrúar sl., vill ráðuneyt-
ið ekki binda þetta eingöngu við
Reykjavíkurborg, heldur landið
allt. Með þetta sjónarmið fyrir
augum, sem fulltrúar ráðuneyt-
isins hafa túlkað í viðræðunum
og viðræðuaðilar eru sammála
um, er lagt til, að hinn nýi skóli
verði ríkisskóli, en hafi aðstöðu
í Borgarspítalanum og e. t. v.
öðrum sjúkrastofnunum. Þar
sem lagaheimild brestur til þess
að koma á fót nýjum hjúkrun-
arskóla, er frumvarp þetta lagt
fram, en jafnframt þarf að end-
urskoða lög um Hjúkrunarskóla
Islands og setja nýja löggjöf
um hjúkrunarskóla og hjúkrun-
ai-nám. Hefur menntamálaráð-
herra ákveðið að skipa nefnd til
slíkrar endurskoðunar."
Skólinn hóf starfsemi sína 8.
október 1972. Skólastjórinn
hafði farið þess á leit við
menntamálaráðuneytið, að hóp-
ur ljósmæðra, sem var að hefja
hjúkrunarnám á vegum heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins, mætti flytjast í Nýja
hj úkrunarskólann og verða
fyrstu nemendur hans. Veitti
menntamálaráðuneytið leyfi til
þess í september 1972.
Hve margir nemendur stunda
nám við skólann ?
Sem stendur stunda nám í
skólanum:
a) 21 ljósmóðir, er ljúka eiga
hjúkrunarnámi í nóvember-
lok 1974.
b) 20 nemendur hjúkrunar-
námsbrautar Háskóla ís-
lands fá kennslu í hjúkrun-
argreinum í skólanum í vet-
ur.
c) 37 hjúkrunarkonur taka þátt
í námskeiði, sem mennta-
málaráðuneytið veitti skól-
anum leyfi til að halda.
Námskeið þetta stendur frá
25. febrúar til 30. maí og er
kennsla 2 daga í viku kl. 16
—19.
Er uppbygging hjúkrunar-
námsins eitthvaS frábrugóin
þeirri skipan, sem tíðkast hef-
ur hér á landi?
I fyrrgreindum lögum um
þennan skóla er tekið fram í
3. gr„ að um hann skuli gilda,
eftir því sem við á, lög nr. 35/
1962, um Hjúkrunarskóla Is-
lands. Var því hjúkrunarnám
ljósmæðranna sniðið eftir sama
kerfi og nám í Hjúkrunarskóla
Islands.
Hvernig er skólinn settur í
húsnæðismálum ?
I bréfi menntamálaráðuneyt-
is, dags. 19. september 1972, til
skólastjóra segir svo:
„Ráðuneytið tekur fram, að
það hefur skrifað borgarstjór-
anum í Reykjavík og farið
þess á leit, að húsnæði verði
látið í té fyrir skólann til
bráðabirgða — eða til þriggja
ára — í hjúkrunarheimili
Reykjavíkurborgar við Grens-
ásveg.“
Reykjavíkurborg hefur látið
umrætt húsnæði í té síðastlið-
inn vetur og í vetur, en í bréfi
borgarstjóra frá 16. maí 1973
er tekið fram, að borgarráð
muni ekki samþykkja afnot
skólans af umræddu húsnæði
lengur en skólaveturinn 1973—
1974.
I ráði er að fá leigt húsnæði
fyrir skólann, en endanleg
ákvörðun hefur ekki verið tek-
in um það enn. Reykjavíkur-
borg hefur gefið fyrirheit um
lóð við Borgarspítalann, en ekk-
ert fé er til í byggingarsjóði.
Hvemiig gengur að fá
kennslukrafta ?
Fastir kennarar hafa verið fá-
ir og aðallega í hálfu starfi, sem
stendur fjórir. Skólinn styrkir
í vetur með leyfi menntamála-
ráðuneytisins h j úkrunarkonu,
sem er við nám í Noregi.
Getur þú frætt okkur nokkuð
um a) framtíðaráætlanir skól-
ans og b) hverjar eru óskir þín-
ar honum til handa?
a) Ekki er hægt að taka ákvörð-
un um framtíð skólans, fyrr
en lög um hjúkrunarnám
hafa verið endurskoðuð og
húsnæði verið tryggt.
b) Að hann fái viðunandi hús-
næði og verðug verkefni í
samræmi við það, sem ætlast
var til af honum.
Ritstjó'inin.
74 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS