Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Qupperneq 17
Nernendur námsbrautar í hjúkrunarfnethim viö Háskóla fslands. Vilborg Ingólfsdóttir er þriðja frá vinstri.
Við framhaldsnám í hjúkrun
Rætt viö Vilborgu Ingólfsdóttur,
hjúkntnarkonu, er stundar
fhttmhaldsnám í hjúkrun við
Húskóla Islands.
f*ú hefur lokið námi í hjúkrun
ft'á H júkrunarskóla íslands,
hvað ávinnst aðallega hjá þér
nieó þessu námi?
Meiri menntun.
Aukin starfsréttindi tel ég
ekki fá með þessu námi,
utan kennsluréttindi, sem
,ir hljóta er lokið hafa B.S.
nami (Bachelor of Science).
Er ekki erfitt fyrir húsmóður
og móður að setjast á skóla-
bekk?
jú — það er ekki sambærilegt
hve miklu meiri tími fer í nám-
ið en að vinna fulla vinnu.
Mundir þú hafa ráðist í fram-
haldsnám, ef þú hefðir þurft að
sækja það til annarra landa?
Hérna vil ég greina á miili
framhaldsnáms og sérnáms. Ef
persónulegar aðstæður hefðu
boðið upp á dvöl í öðru landi,
hefði ég líklega heldur valið sér-
nám (t. d. lyflæknishjúkrun,
gjörgæsluhjúkrun) frekar en
framhaldsnám, eins og ég lít á
þetta hjúkrunarnám við Háskóla
Islands vera fyrir mig.
Álítur þú æskilegt, að sem
flestum hjúkrunarkonum gæfist
kostur á slíku námi?
Já, svo sannarlega og það sem
fyrst. Aukin menntun kemur
öllum til góða.
Starfar þú að einhverju leyti
við hjúkrun, jafnframt náminu?
Námsárið er full vinna, en í
sumar vinn ég við hjúkrunar-
störf.
Ritstjómin.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 75