Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Síða 18
Elín Eggerz-Stefánsson.
Tillögur varðandi menntun
hiúhrunarmannaflans
Eftirfarandi er hér me'ð komiö á framfæri í
málgagni Hjúkrunarfélags Islands, til þess a8
einstökum félögum gefist lcostur á aö kynna
sér hugmyndir undirritaörar og gera athuga-
semdir þar viö, ef óskaö er. Hugmyndir
þessar hafa þegar veriö sendar til umsagnar
stjórnar Hjúkrunarfélags Islands, stjórnar
Sjúkraliöafélags íslands og stjómar Ljósmæöra-
félags Islands og er ætlunin aö leggja þær
fram til umræöu innan nefndar þeirrar, sem
af menntamálaráöherra hefur veriö faliö aö
gjöra tillögur aö frumvarpi til laga um
hjúkrunarm enntun.
TUXÖOUR VAItHAMIl AIKWTI A
II.HKUI.\ARJHXXVI'I.\\S
|>. e. mpiuilun lijúkruHarkvemia/lijiikrunar-
inaima «>í sjúkraliúa.
A. Með tilliti til framkvæmdar nýrra laga um
skólakerfi verði nemendum innan fjölbrauta-
skólakerfisins (menntaskólar þar meðtaldir)
gefinn kostur á tveggja ára sjúkraliðanámi
sem kjörsviði og samtímis verði sjúkraliða-
nám utan hins almenna skólakerfis lagt nið-
ur. Sjúkraliðar skuli og öðlast rétt til við-
bótarnáms innan menntadeilda fjölbrauta-
skólanna, svo að þeir megi öðlast rétt til inn-
göngu í háskólastofnanir til jafns við aðra
nemendur, sem ljúka fjölbrautaskólastiginu.
B. Sem allra fyrst verði inntökuskilyrði til
hvers konar hjúkrunarnáms, m.a. við þriggja
ára hjúkrunarskóla, þau hin sömu og kraf-
ist er til háskólanáms, þannig að hjúkrun-
armenntunin í heild sinni geti miðast við
akademiska námsgetu nemenda og ennfrem-
ur að í framtíðinni verði engar hömlur á.
að útskrifaðir hjúkrunarfræðingar frá hér-
lendum menntastofnunum fái aðgang að
framhaldsnámi á háskólastigi, óski þeir slíks.
(Ath. hjúkrunarfræðingur er sá, sem stað-
ist hefur próf við viðurkenndan hjúkrunar-
skóla).
C. Auk þess að annast heildarnám að M.S.-prófi
í hjúkrun, verði Háskóli Islands gerður þess
umkominn sem fyrst að sinna framhalds-
námi fyrir útskrifaða hjúkrunarfræðinga
frá þriggja ára hjúkrunarskólum, sem afl-
að hafa sér réttinda til háskólanáms, og enn-
fremur framhaldsnámi fyrir handhafa B.S.-
prófs í hjúkrun, svo sem best hentar þjóð-
arþörf. Er hér um að ræða þrenns konar
þætti framhaldsnáms í hjúkrun.
a) framhaldsnám fyrir útskrifaða hjúkrun-
arfræðinga frá 3ja ára hjúkrunarskól-
um, sem afla vilja sér B.S.-prófs í hjúkr-
un.
b) framhaldsnám á ýmsum sérsviðum
hjúkrunar, er veitt getur viðurkenningu
(Diploma) en ekki háskólagráðu.
c) framhaldsnám á ýmsum. sérsviðum hjúkr-
unar, sem byggist á B.S.-prófi í hjúkrun
og miðar að M.S.-prófi.
D. Ljósmæðranám verði stundað sem fram-
haldsnám í hjúkrun á viðkomandi sérsviði.
Til frekari skýringar vísast til m.eðfylgjandi
uppdráttar. Athuga ber að ívaf námsreynslu á
heilbrigðisþjónustustofnunum er afar mikilvægt
fyrir bæði sjúkraliðanema og hjúkrunarnema,
ávallt undir leiðsögn hjúkrunarkennara. Auka
ber og áherslu á þjónustu utan sjúkrahúsa.
Að lokum skal geta þess, að nauðsynlegt er
að minnast þess, að frumskilyröi þess, að unnt
verði að kenna hjúkrunarnemum og sjúkra-
liðanemum, hvar svo sem nám þeirra fer fram,
er að sérmenntaöir hjúkrunarkennarar fáist til
starfa í stórauknum mæli frá því, sem nú er.
Til þess að svo megi verða, er óhjákvæmilegt,
að höfuðáhersla verði strax á það lögð að auð-
velda framhaldsnám væntanlegra hjúkrunar-
kennara héidendis, sem veitir viðurkenningu
(Diploma), og fyrir marga einstaklinga er auk
þessa forsenda slíks náms aukin fyrirgreiðsla
menntamálaráðuneytisins á vegum einhvers
konar „öldungadeildar“ innan fjölbrautaskóla-
kerfisins. Án hjúkrunarkennaranna eru fram-
angreindar breytingar á menntun hjúkrunar-
mannaflans ótímabærar.
76 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS