Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Page 21
Niðurstöður úr könnun varðandiframhalds'
ndm hiúkrunarkvenna
ÁRUM SAMAN hafa íslenskar hjúkrunarkonur
fundið, að knýjandi þörf er fyrir aukna fram-
haldsmenntun til þess að mæta þeim kröfum,
sem gerðar eru til starfa þeirra í heilbrigðis-
þjónustu nútíma þjóðfélags.
Það var því mikið ánægjuefni, er mennta-
ruálai’áðuneytið sendi í októbermánuði 1973
beiðni til Hjúkrunarfélags Islands um að kanna
áhuga hjúkrunarkvenna á framhaldsnámi eða
fi'seðslu í námskeiðsformi.
Fræðslumálanefnd félagsins var falið að
fi'amkvæma könnunina.
Sem hjúkrunarkonum er kunnugt var þeim
óhurn sent eyðublað til útfyllingar með Tíma-
r*i Hjúkrunarfélagsins í febrúar síðastliðnum.
Á eyðublaðinu er gefinn kostur á að merkja við,
hvort áhuginn sé á framhaldsnámi eða nám-
skeiðum og einnig hvort dagnámskeið eða síð-
óegisnámskeið henti betur. Taka skyldi fram,
hvort viðkomandi hjúkrunarkona væri reiðu-
húin að fara í nám strax eða þyrfti einhvern
aðlögunartíma. Spurt var um áhuga á nám-
skeiðshaldi utan Reykjavíkur.
Óskað var eftir, að erindi okkar væru gerð
Hjót og góð skil eða fyrir miðjan apríl, en svör
^afa verið að berast fram að þessu.
Eftirfarandi niðurstöður liggja nú fyrir úr
^önnuninni: 106 hjúkrunarkonur hafa svarað,
°5 þeirra hafa 2 eða 3 óskir fram að færa.
. Eftirfarandi tafia sýnir þær sérgreinar, sem
°skað er eftir:
eo | I ►ií cg 1 o GO *»*» 4?
'1 O eo Ö
1 s & £ g
Námsgrein k g Ö Q VÖ 02 s Ö co
Heilsuvernd 21 18 13 52
Kennsla 8 2 2 12
Geðhjúkrun 6 8 7 21
Stjórnun 6 7 4 17
Barnahjúkrun 4 2 3 9
Ljósmóðurfræði 1 1
Svæfingar 2 2
Gjörgæsla 6 4 10
Hjúkrun handlæknissjúklinga 10 2 12
lyflæknissjúklinga . 6 6
aldraðra 2 2
Almenn endurhæfing 10 6 16
Óákveðnar um val 7 7 5 19
Samtals 55 78 46 179
Könnunarseðillinn var sendur öllum hjúkr-
unarkonum innan Hjúkrunarfélags Islands. Um
sl. áramót voru félagar alls 1209. Erlendis voru
107, á eftirlaunum voru 56 hjúkrunarkonur,
112 hafa framhaldsnám í ýmsum greinum.
Mætti því búast við svari frá 934 og af þeim
hafa svarað 11.3 af hundraði.
Af þeim hjúkrunarkonum, sem óska eftir
framhaldsmenntun, geta 54.5 af hundraði þeg-
ar hafið nám, 51.2 af hundraði þeirra sem óska
eftir dagnámskeiðum og 45.6 af hundraði þeirra
sem óska síðdegisnámskeiða. 21 hjúkrunarkona
óskar eftir fræðslu á 4 stöðum utan Reykja-
víkur.
Tvennt er athyglisvert í niðurstöðum könn-
unarinnar. I fyrsta lagi sá fjöldi hjúkrunar-
kvenna, sem óskar eftir framhaldsnámi í heilsu-
vernd, og í öðru lagi mikil eftirspurn eftir dag-
námskeiðum í hinum ýmsu greinum hjúkrunar.
María Finnsdóttir.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 79