Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Síða 25
h j úkrunarkonur greiði fyrir
barnagæsluna ?
5. Væri raunkostnaður hins
opinbera við dagvistun barna
hjúkrunarkvenna, svo að ráðin
yrði bót á núverandi ástandi,
ekki lítill miðað við heildarfram-
lög til heilbrigðismála? — Þessa
spurningu má meta sjálfstætt
eða í samhengi við fyrri fjórar.
7.
Hér hefur verið bent á viss-
an vanda, sem ekki fellur bein-
línis undir heilsugæslu, en hef-
ur þar slæmar afleiðingar.
Vandinn væri meiri, ef engin
aðstaða til barnagæslu væri á
spítölum. Sú aðstaða skal því
þökkuð.
8.
Ekkert er fjær undirritaðri en
að halda því fram, að vandi
hj úkrunarkvenna um barna-
gæslu sé brýnni en annarra
giftra kvenna, þaðan af síður,
að hjúkrunarkonur eigi að njóta
forréttinda umfram aðrar kon-
ur. Þessi orð eru aðeins rituð
með hliðsjón af þeim aðstæðum
og þeim vanda, sem undirrituð
þekkir.
Lokaorð þessarar greinar eru
þau, að verðmæti nokkur vaxi af
vinnandi höndum. Er sú útgerð
verri en önnur að borga eina
krónu til að fá tíu?
Hafnarfirði, 5. marz 1974.
Auður Gu'öjónsdóttir.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 88