Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Qupperneq 27
Dreifibréf til hjúkrunarkvenna
við heilsugæslustöðvar
Svo sem ykkur er kunnugt tókust samningar
hinn 6. maí sl. milli Hjúkrunarfélags Islands
og fjármálaráðherra um skipan hjúkrunar-
kvenna í launaflokka og aðrar sérkröfur þeirra.
Undanfari þessarar samningagerðar var almenn
kröfugerð af hálfu Hjúkrunarfélags Islands þar
sem meðal annars voru hafðar uppi kröfur um
launaflokkaskipan hjúkrunarkvenna við heilsu-
gæslustöðvar og ýmis sérmál þeirra. Samninga-
nefnd ríkisins taldi sig vanbúna til á þessu stigi
málsins að ræða og semja um kröfur þessara
hjúkrunarkvenna þar sem hér væri um nýja
launastétt innan ríkiskerfisins að ræða. Nefnd-
in vildi fá meira tóm til að athuga þetta mál
og fór þess því á leit við Hjúkrunarfélag Is-
lands að samningum um launakjör téðra hjúkr-
unarkvenna yrði frestað. Átti félagið naumast
annan kost en samþykkja þessi tilmæli til þess
að stofna ekki samningunum í heild í tvísýnu.
Af þessum sökum tekur samningurinn frá 6.
maí sl. ekki til þessara hjúkrunarkvenna og eru
þeirra mál óleyst enn.
Annríki hjá samninganefnd ríkisins var svo
mikið í maímánuði að engin tök voru á að fá
nefndina til viðræðna um kjör hjúkrunarkvenna
við heilsugæslustöðvar. En hér kemur fleira til.
Samningum Hjúkrunarfélags Islands við
Reykjavíkurborg er ekki lokið, en þeim lýkur
væntanlega eigi síðar en 15. þ. m. Þessir samn-
ingar kunna á vissum sviðum að verða leið-
beinandi um kjör þessara hjúkrunarkvenna.
Hjúkrunarfélag Islands telur því hyggilegt eins
og málin standa að doka við fram yfir 15. þ. m.
með samningsgerð fyrir þessar hjúkrunarkon-
ur. En að þeim tíma liðnum mun félagið leggja
ríka áherslu á það við samninganefnd ríkisins
að taka upp viðræður um launakjör hjúkrun-
arkvenna við heilsugæslustöðvar og ljúka þeim
án tafar.
Með félagskveðju,
Reykjavík, 7. júní 1974
f. h. Hjúkrunarfélags Islands.
Maria Pétursdóttir.
Námskeið fyrir starfsstulkur
Stjóm Hjúkrunarfélags Islands sendi heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu eftirfar-
andi bréf, dags. 2. júlí 197U:
I kjarasamningi Starfsstúlknafélagsins Sókn-
ar við Ríkisspítalana, dags. 25. febrúar 1974,
er ákvæði þess efnis, að aðilar séu sammála um
„að koma á námskeiðum fyrir starfsstúlkur, er
vinna við heimilishjúkrun, barnagæslu og hjúkr-
un aldraðra og vangefinna".
Af þessu tilefni leyfir Hjúkrunarfélag Islands
sér að vísa til hjúkrunarlaga, er samþykkt voru
á Alþingi 26. febrúar 1974. í 1. gr. laganna
segir, að sá einn hafi rétt til að stunda hjúkr-
un hér á landi og kalla sig hjúkrunarkonu eða
hjúkrunarmann, sem til þess hafi fengið leyfi
ráðherra. I 8. gr. laganna segir, að heimilt só
að þjálfa sjúkraliða til aðstoðar við hjúkrun.
I lögum þessum er eigi gert ráð fyrir, að aðrar
starfsstéttir hafi heimild til að fást við hjúkr-
unarstörf.
Með tilvísun til framanritaðs telur Hjúkr-
unarfélag Islands ástæðu til að gera athuga-
semd við það, að þau störf, sem starfsstúlkur
í Sókn inna af hendi, séu kennd við hjúkrun.
Hins vegar hefur Hjúkrunarfélag Islands að
sjálfsögðu ekkert við það að athuga, að Sókn-
arstúlkur verði aðnjótandi námskeiða til að auka
starfshæfni sína og þekkingu.
Virðingarfyllst,
f. h. Hjúkrunarfélags Islands
María Pétursdóttir fonmaJóur.
SSN
Fulltrúafundur SSN verður haldinn í Dan-
uiörku dagana 17.—20. sept. n.k.
Aðalviðfangsefni fundarins að þessu sinni er
laun og starfsaðstaða hjúkrunarkvenna á Norð-
urlöndum.
Umræður verða í átta hópum og stuðst við
skýrslur frá öllum löndunum, sem nefnd á veg-
um SSN hefur safnað.
Niðurstöður hópanna verða síðan kynntar á
sameiginlegum fundi allra fulltrúanna.
Nánar verður greint frá fundinum í næsta
blaði.