Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Side 31

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1974, Side 31
RADDIR RJÚKRUAIARWEMA Ritnefnd: María Kristinsdóttir, Þóra Karlsdóttir, Sólveig Björk Grdnz Ferðd nemamót til Bergen, dagana 8,-10. febrúar Dagana 8.—10. febrúar hélt norska h j úkrunarnemaf élagið aðalfund sinn á Haukeland syke- pleieskole í Bergen. 150 hjúkr- unarnemar voru þar saman komnir frá 29 hjúkrunarskólum landsins, auk þeirra voru 2 full- trúar frá Danmörku, 1 frá Sví- þjóð, 1 frá Finnlandi og við. Þessir Norðurlandafulltrúar voru þeir nemar, sem við höfð- um mest samskipti við. Fyrsta daginn var fundargestum skipt í hópa og þeim fengin að verk- efni þau mál, sem á döfinni eru hjá þeim, eins og reikningar félagsins, útgáfa nemablaðs og norræn samvinna. Við gestirnir gengum á milli þeirra hópa, sem ræddu norræna samvinnu, og skipst var á skoðunum. Eitt sameiginlegt vandamál virtist vera hjá öllum, og það var undirtektaleysi hjúkrunar- nema í félagsmálum. Þetta kem- ur þó misjafnlega niður á félög- unum sjálfum, en því veldur uPPbygging þeirra, fjöldi nema og hjúkrunarskóla í viðkomandi landi, samgönguerfiðleikar o. fl. Norsku nemunum fannst óhóflega miklu vera eytt í nor- i’æna samvinnu, og töldu þeir það ekki tímabæra sóun, með- an samvinna og fréttamiðlun er Jafnbágborin innan félags þeirra og raun ber vitni. (Til gamans má geta þess, að kostn- aður norska hjúkrunarnemafé- lagsins til norrænnar samvinnu var 8000 norskar kr. — 2500 fé- lagar, á sama tíma og við greiddum 12 000 norskar kr. — 250 nemar). Á fundi, sem haldinn var með Norðurlandafulltrúunum, gerð- um við grein fyrir, að HNFl kæmi ekki til með að senda full- trúa á fundi oftar en tvisvar á ári vegna fæðar íslenskra hjúkr- unarnema og fjárskorts. Slíkir fundir eru haldnir 7 sinnum á ári. Undirtektir voru nokkuð góðar, því að markmið Norður- landasamvinnunnar er kynning á starfi félaganna, námstilhög- un o. fl., sem snertir okkar skóla- göngu, en þessu má að okkar áliti að nokkru ná með aukn- um bréfaskriftum. Mikill áhugi kom fram og þá helst hjá frændum okkar Norð- mönnum að kynnast HNFl, landi og lýð. Höfum við boðið norrænum h j úkrunarnemum hingað á komandi hausti til að marka stefnu norrænnar hjúkr- unarnemasamvinnu. Einnig ræddum við nemaskipti (náms- ferðir). Því var vel tekið. Þetta mál er þó aðeins á frumstigi, en vonandi ekki þar með sagt, að langt sé í land. Sigríður Guðmundsdóttir, Þóra Karlsdóttir. Frú stjórn II.M B. Félagsstarf HNFÍ frá áramót- um hefur í stórum dráttum ver- ið á eftirfarandi hátt: 30. janúar var haldinn fræðslufundur. Gestir fundar- ins voru þær Ingibjörg R. Magn- úrdóttir deildarstj. í heilbrigðis- málaráðuneytinu og Kristín óla- dóttir formaður launamála- nefndar HFÍ. Ingibjörg fræddi hj úkrunarnema um menntun þá, sem í boði er fyrir hjúkrunar- konur/menn að loknu 3 ára námi í hjúkrun, hvað er hægt að læra á Islandi og hvað þarf að sækja út fyrir landsteinana, hvert er hægt að fara og laun í og eftir sérnám. Einnig kynnti hún okk- ur nám annarra heilbrigðisstétta og svaraði fyrirspurnum að lok- um. Kristín kynnti okkur sér- kröfur HFÍ, er þá voru nýlagð- ar fram, og í hverju þær væru helst fólgnar. Einnig kynnti hún rammasamning þann, er HFl hafði undirritað við ríkið. Að lokum svaraði hún fyrirspurn- um. Að lokum voru ýmis mál nema rædd. Kynntur var mögu- leiki, sem hjúkrunarnemar geta átt kost á í sumar, er felur í sér námsferð/sumarleyfi til hinna Norðurlandaþjóðanna, hið sama og við höfðum gest okkar Kar- sten í í fyrrasumar. 5. mars var haldin ÁRSHÁ- TIÐ HNFl í Súlnasal Hótel Sögu, er hófst kl. 20 með því, að formaður félagsins setti há- tíðina með smáræðustúf, og var síðan borðhald mikið. Meðan fólk renndi niður kræsingunum, skemmtu hjúkrunarnemar með leikþáttum úr námi og starfi, glefsur úr starfi félagsins voru fluttar í bundnu máli, og ýmis- legt fleira var til skemmtunar, TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 85

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.