Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Qupperneq 3
FORSÍÐA:
Hönnun blaðhauss:
Anna M. Híöðversdóttir hjfr.
Uppsetning: Prentsmiðjan Hólar hf.
Merkin gefin út af Schwarz-lndus-
triedesign, V.-Þýskalandi, sem er
samstarfshópur hönnuða og arki-
tekta.
1. tölublað - Mars 1978
54. árgangur
ÚTGEFIÐ AF HJÚKRUNARFÉLAGI ÍSLANDS
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, SÍMI 15316 OG 41622.
RITSTJÓRN:
ANNA MARÍA ANDRÉSDÓTTIR, SÍMI 75940.
INGIBJÖRG HELGADÓTTIR, SÍMI 72705.
SIGRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR, SÍMI 26033.
AUGLÝSINGAR OG BLAÐDREIFING:
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, Sl'MI 15316 OG 41622.
SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, SÍMI 15316 OG 21177.
BLAÐIÐ KEMUR ÚT ÁRSFJÓRÐUNGSLEGA.
ENDURPRENTUN BÖNNUÐ ÁN LEYFIS RITSTJÓRA.
PRENTUN: PRENTSMIÐJAN HÓLAR HF.
EFNISYFIRLIT
Fulltrúafundur HFÍ....................... 2
Úrskurður kjaranefndar .................. 4
Formannaráðstefna BSRB 8
Greinargerð um menntunarmál 10
Mannfræði - Heilbrigðisþjónusta 13
Kaffibolli - og lokaðar dyr 15
Ofurseldir kerfinu ..................... 18
Réttur sjúklings ....................... 20
Að eldast með reisn .................... 21
Hafnarbúðir - Arnarholt..................23
Raddir hjúkrunarnema ................... 26
Sjónarmið .............................. 28
KRAFTA-auglýsingar 29
Brautskráning frá NHS 30
Fréttir og tilkynningar o. fl........... 31
Efnisyfirlit 1976 og 1977 36
hjúkrun
-ANÖSBGKA
3
Ritstjórnarspjall
Ritstjórnin væntir þess að ný forsíða blaðsins hafi
komið lesendum skemmtilega á óvart. Það er a. m. k.
álit okkar í ritstjórn að vel hafi til tekist með þessa
breytingu. Við erum stöðugt með timaritið í endur-
skoðun og markmið okkar er, að sjálfsögðu, að gera
það sem hest úr garði. Að undanförnu höfum við
lagt áherslu á útlit þess og á hvern hátt við gætum
komið betur lil móts við félagsmenn varðandi upp-
lýsingar um félagsmál.
Þetta nýja heiti á tímaritinu „Hjúkrun“ er e. t. v.
ekki mjög frumlegt, en segir það sem máli skiptir, er
hæfilegt að lengd til þess að fara vel á forsíðu o. s.
frv. Ritstjórn lagði hugmynd þessa fyrir stjórn fé-
lagsins í janúar sl. og hlaut hún samþykki. Þess má
geta að þetta er ekki í fyrsta sinn sem heiti blaðsins
er breytt. I upphafi hét það „Tímarit Fjelags ís-
lenskra hjúkrunarkvenna“ og bar það nafn til árs-
ins 1935 eða í 10 ár. Þá var heitinu breytt í „Hjúkr-
unarkvennablaðið og árið 1960 i „Tímarit Hjúkr-
unarfélags Islands". Við höfum ennfremur ákveðið
að taka upp ]>á nýbreytni að hressa upp á forsíðuna
með myndskreytingu og munum á næstunni kynna
nokkur hinna alþjóðlegu sjúkrahúsatákna, sem enn
eru lítið notuð hér á landi þrátt fyrir augljóst nota-
gildi. Þá er ætlunin að hver árgangur hafi sérstakan
lit, eins og verið hefur fram að þessu og líkað vel.
Ein af þeim nýjungum, sem við viljum taka upp
að þessu sinni, er fastur dálkur með upplýsingum
um nöfn stjórnarmanna félagsins, formanna svæðis-
og sérgreinadeilda, form. Kjararáðs, form. Trúnað-
arráðs, aðsetur skrifstofu HFt og Lífeyrissjóðsins.
Efnisyfirlit verður flutt af forsíðu á þessa síðu.
Þær breytingar, sem hér hefur verið lýst, eru í
raun afar auðveldar fyrir ritstjórnina, enda hefur
hún þær sjálf í hendi sér. Það sem aftur á móti er
örðugra er sjálf efnisöflunin. Það er afar mikil
vinna sem liggur á bak við hvert tölublað, t. d. fer
mikill tími í það að viða að efni, þýða greinar, taka
viðtöl og vinna úr því öllu. Ákjósanlegt væri auð-
vitað að fá fleiri til starfa við blaðið, en í því sam-
bandi verður að sjálfsögðu að taka mið af fjárhag
félagsins. Við hvetjum því hjúkrunarfræðinga ein-
dregið til að taka virkari þátt i mótun og eflingu
tímaritsins.
AFN
i n i mnn