Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Page 4
Fulltrúafundur HFI
FulltrÚafundur Hjúkiunarfélags íslands 1978 verður
haldinn í Domus Medica 3. og 4. apríl og hefst kl. 9
fyrir hádegi.
Kjósa skal 1. varaformann og ritara og tvo menn í
varastjórn.
í kjöri eru:
I sœti 1. varaformanns:
Asa Steinunn Atladóttir,
í sœti ritara:
Brynja Guðjónsdóttir,
Sólveig Guðlaugsdóttir
/ varastjórn:
Aslaug Björnsdóttir,
Ásthildur Einarsdóttir,
Dóra Hansen,
Geir Friðbergsson.
Samkvæmt lögum HFI eru stjórnarfulltrúar kosnir
af fulltrúafundi. Kjörtímabil er 3 ár.
Úr stjórn ganga að þessu sinni: Björg Ólafsdóttir og
Sigríður Einvarðsdóttir.
Úr varastjórn: Áslaug Björnsdóttir og María Gísla-
dóttir. Áslaug Björnsd. gefur kost á sér til endurkjörs.
Fundarboð hefur verið sent fulltrúum sem sitja eiga
fulltrúafundinn. Aðrir félagar HFÍ eru velkomnir sem
áheyrnarfulltrúar.
Samkvæmt félagaskrá HFÍ 1. janúar 1978 er félags-
fjöldi svæðisdeilda og fulltrúar á fulltrúafund HFl eft-
irfarandi:
Rey k j aviku rdeild 1025 félagar 21 fulltrúi
Vesturlandsdeild 39 — 1 —
Vestfjarðadeild 37 — 1 —
Norðurlandsdeild 34 — 1 —
Akureyrardeild 119 — 3 fulltrúar
Austurlandsdeild 22 — 1 fulltrúi
Suðurlandsdeild 37 — 1 —
Vestm.eyjadeild 22 — 1 —
Suðurnesjadeild 22 — 1 —
Tilkynning um félagatölu og fjölda fulltrúa hefur
verið send svæðisdeildum ásamt tilkynningu um full-
trúafundinn.
Eftirfarandi er 6. gr. úr lögum HFÍ:
Deildir innan HFl:
Svæðisdeildir HFÍ skulu starfa að málefnum félags-
ins innan síns umdæmis. Stjórn hverrar deildar sér um
að fram fari kosningar fulltrúa og varafulltrúa til full-
trúafundar HFÍ. Rétt til setu á fulltrúafundi á formað-
ur eða varaformaður deildarinnar og 1 fulltrúi fyrir
hverja 50 félagsmenn eða færri, ennfremur 1 fulltrúi
fyrir brot úr fimm tugum. Kjörtímabil er 2 ár. Endur-
kosning er heimil. Stjórn HFÍ skal senda stjórn hverrar
svæðisdeildar tilkynningu um fjölda fulltrúa hverju
sinni, og skal sú tilkynning einnig birt í Tímariti HFÍ.
Félagaskrá miðast við 1. janúar kosningaárið.
Svæðisdeildir frá endurgreiddan ákveðinn hundraðs-
hluta af árgjöldum.
Sérgreinadeildir, er taka til sérgreina í hjúkrun, er
heimilt að stofna innan HFÍ skv. 2. mgr. 3. gr. For-
menn eða varaformenn sérgreinadeilda eiga rétt til setu
á fulltrúafundi HFÍ.
Aðalfundir deilda innan HFÍ skulu haldnir á tíma-
bilinu júní-janúar ár hvert. Deildirnar skulu senda
stjórn HFI árlega skýrslu um starfsemi, fjármál og fé-
lagatal, og skal þá miðað við áramót.
Málefni, sem óskast tekin fyrir á fulltrúafundi, skulu
berast stjórn HFÍ með minnst 7 vikna fyrirvara, svo
unnt sé að kynna þau kjörnum fulltrúum í tæka tíð.
Fulltrúar skulu kynna, innan sinna deilda, þau mál-
efni er ákveðið hefur verið að taka fyrir á fulltrúa-
fundi.
2
HJÚKRUN