Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Side 20

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Side 20
Ofurseldír kerfínu Að verða barn í annað sinn - það er enginn barnaleikur .. . Eftirfarandi greinarkorn birtist í Morgunblaðinu. „SpÍtalaveiki“ hefur það verið kall- að, er sjúklingar í sjúkrahúsum veikjast af einhverju innanhússmiti þar. Hefur þetta nafn verið haft um líkamlega sjúkdóma eina. En nú er komið í ljós, að menn geta líka tekið - og taka margir hugræna sjúkdóma í sjúkrahúsunum. Síðar töldu sjúkdómarnir hafa verið nefndir „spítalasálsýki“. Þeir eiga sér margar rætur. En í höfuð- atriöum er orsökin sú, að menn, sem leggjast inn í sjúkrahús, verða ofur- seldir „kerfinu“ þar. 011 ráð eru tek- in af þeim svo að þeir verða hjálpar- vana og eiga allt sitt undir starfsliði sjúkrahússins. Fulloröiö fólk, sem fram að því hefur ráðið lífi sínu sjálft, er svipt sjálfræðinu og farið með það eins og börn. Meðan það dvelur í sjúkrahúsinu taka aðrir all- ar ákvarðanir, smáar sem stórar, fyr- ir það. Sjálft fær það ekki einu sinni að leggja neitt til eigin mála; hjúkr- unarliðið tekur öll völd. Þetta fær töluvert á marga sjúkl- inga. Þeir verða ruglaðir í ríminu og vita ekki hvað halda skal. Þeir eru neyddir til að gjörbreyta háttum sín- um meöan þeir eru í sjúkrahúsinu. Bregðast menn þá misjafnlega við. Sumum fer þannig, þegar komiÖ er fram við þá eins og smákrakka, að þeir fara að haga sér eins og smá- krakkar. Sumir taka niÖurlæging- unni þegjandi, en huga hjúkrunarlið- inu illt fyrir. Enn aðrir verða „erf- iðir“ o. s. frv. Það voru fræðimenn í Ulm og Hannover í Vestur-Þýskalandi sem fóru að gefa gaum að þessu. Þegar þetta var nefnt við lækna og annað hjúkrunarlið kvaðst það aldrei hafa leitt hugann að því að neinu marki. Var hjúkrunarlið yfirleitt á einu máli um það, að ilestallir sjúklingar löguðust fljótlega og fyrirhafnarlítið að daglegri önn á sjúkrahúsum og tækju með jafnaðargeði því sem að höndum bæri. Fræðimennirnir halda því hins vegar fram, að sjúklingarnir samlag- ist ekki lífinu í sjúkrahúsunum. Þeir gefist hara upp fyrir ofureflinu og leggist í vægt þunglyndi. Þeir virðist taka öllu með jafnaðargeði, en raun- in sé önnur. Þeir taki meðferðinni aðeins þegjandi, bæli tilfinningar sínar og reyni að þóknast hjúkrunar- liðinu — vera þægir, vegna þess að þeir viti, að ekki borgi sig að sýna „mótþróa“. Ekki bætir úr skák sambandsleys- ið milli sjúklinga og hjúkrunarliðs á sjúkrahúsum víðast hvar. Hjúkrun- arliöið mælir mjög á framandi tungu, læknisfræðilegt hrognamál, sem oft veldur misskilningi. Hrogna- mál þetta er síst til þess falliö að draga úr kvíða sjúklings. Það eykur og á vanmáttarkennd hans og al- menna niöurlægingu, að hann þarf sífellt að biðja lækna útskýringar á orðum þeirra. Þegar læknum í Hann- over var bent á það atriði, kváðust þeir bara „ekki hafa athugað þetta“ og töldu, að vandinn leystist, ef þeir temdu sér alþýðlegra málfar í sjúkra- stofunum. Samskipti sjúklinga og hjúkrunarkvenna væru greið, og ekki þyrfti úr neinu að hæta í því efni. Það reyndist þó misskilningur. Það kom nefnilega á daginn, að hjúkrunarkonur reyndu hvað þær gátu að temja sér fræðimál við sjúkl- inga svo að ekki færi á milli mála, að þær væru yfir þá settar. Aum- ingja sjúklingarnir voru sem sé al- veg einir, hver á sínum háti - þeir skildu engan, allir hreyktu sér yfir |>á og ráðskuðust með þá. Þetta legð- ist svo þungt á suma, að þeir tóku „spítalasálsýki“ ofan á það, sem að þeim gekk fyrir . . . The German Tribune. 18 HJÚKRUN

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.