Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Page 33
ingu þessa, var hin svokallaða sögu-
sýning, sýning á gömlum hjúkrunar-
gögnum, sem haldin var í tilefni 30
ára afmælis Hjúkrunarnemafélags-
ins.
Tillaga um að halda slíka sýningu,
kom fram á sameiginlegum fundi
nefnda, og sá fræðslunefnd um að
afla gagna og koma sýningu þessari
á fót.
Nefndinni tókst að safna saman
otrúlega miklu af gömlum munum
og þótti mönnum þar margt merki-
legra gripa.
Þær stofnanir sem lánuðu muni til
sögusýningarinnar voru: Landakots-
spítali, Landspítalinn, Elli- og hjúkr-
unarheimilið Grund, Kleppsspítali
°g einnig voru margir munanna frá
H. S. í. Ennfremur lánaði Þorbjörg
Jónsdóttir, skólastjóri H. S. í., gamla
hjúkrunarbúninginn. Hjúkrunarfélag
íslands lánaði gamla kápu og hatt
bæjarhjúkrunarkonunnar og Bjarn-
ey Samúelsdóttir lánaði einnig tvær
gamlar myndir. Einnig lánaði Verð-
listinn tvær gínur undir búninga.
Viljum við koma fram þakklæti til
allra þessara aðila fyrir góðar undir-
tektir, hjálpfýsi og síðast en ekki síst
fyrir lánið á öllum þessum hlutum.
Fræðslunefnd H. N. F. í.
Rósa Marinósdóttir,
Guð'rún B. Hauksdóttir,
Jónína H. Hafliðadóttir.
Réttur sjúklínga
Framh. aj bls. 20.
5. Það er ekki sanngjarnt að ætlast
til þess af sjúklingunum, að þeir
fullnægi þörfum starfsfólks, t. d.
séu þakklátir fyrir allt sem gert er
fyrir þá, ef þeir eru annarrar skoð-
unar.
6. Virða skal rétt sjúklinga sem ein-
staklinga og sýna skal fyllstu kur-
teisi í allri umgengni. Ranglátt er
að fá útrás fyrir sína eigin reiði á
kostnað sjúklingsins.
7. Allt heilbrigt vinnandi fólk leggur
árlega fram háar peningaupphæð-
ir til viðhalds og eflingar heil-
brigðisþjónustunnar. Þar af leið-
andi hafa flestir greitt fyrir þá
þjónustu sem þeir fá.
8. Starfsfólkið fær greidd laun fyrir
þá vinnu, sem það innir af hendi.
Þess vegna eiga sjúklingarnir
heimtingu á að starfsfólkið geri
sér far um að sinna störfum sinum
eins vel og það getur.
Hjúkrun
27