Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Qupperneq 40
geigvænlega kjaraskerðingu í för
með sér, frá því sem kjarasamningar
gerðu ráð fyrir.
„Grundvallaratriði í samskiptum
manna er að gerðir samnningar séu
haldnir. A undanförnum áratugum
hafa ríkisstjórnir og löggjafinn hvað
eftir annað ógilt kjarasamninga með
lögum. Síðasta samningsrof var
framkvæmt sumarið 1974, þegar
stöðvaðar voru samningsbundnar
vísitöluuppbætur á laun.
Nú verða menn að gera sér ljóst,
að kollsteypur í efnahagslífinu, eins
og teknar hafa verið, leysa ekki
vandann.
Höfuðskilyrði þess, að unnt verði
að ráða við vandamál efnahagslífs-
ins er að traust skapist á þeim stofn-
unum, sem með stjórn fjármála fara,
og stjórnendum þeirra. Ef stjórn-
endur landsins halda áfram á þeirri
braut að lítilsvirða og ógilda gerða
samninga, minnkar traustið sifellt og
það verður undirrót annars ábyrgð-
arleysis í þjóðlífinu.
Launafólk mun ekki lengur sætta
sig við þá ringulreið og fjármála-
spillingu, sem ríkjandi er í þjóðfé-
laginu. Og leita verður langtíma-
lausn til varnar gegn verðbólgu,“
sagði Kristján.
Hann taldi víst að aðgerðir yrðu
undirbúnar um land alt, ásamt stór-
um útifundi á Reykjavíkursvæðinu.
Að lokum las Kristján ályktun for-
mannaráðstefnu BSRB, en hún birt-
ist í heild á blaðsíðu 8 í þessu blaði
og því endurtökum við hana ekki
hér.
Þuríður Backman, varaformaður
HFÍ, fór yf ir nokkur atriði úr kjara-
samningnum. Lögum um kjarasamn-
inga og frumvarpi rikisstjórnarinnar
i efnahagsmálum og óskaði eftir áliti
félagsmanna á þátttöku í væntanleg-
um aðgerðum.
Pálína Sigurjónsdóttir heilsuvernd-
arhjúkrunarfræðingur tók til máls
og kvað hún álit og vilja stjórnar fé-
lagsins ekki hafa komið nægjanlega
skýrt í ljós. Öskaði hún eftir ákveðn-
ari línum.
Ástríður Karlsdóttir Tynes, heilsu-
verndarhjúkrunarfræðingur og for-
maður Reykjavíkurdeildar, tók einn-
ig í sama streng.
Frekari útskýringar komu bæði
frá Þuríði Backman og Sigurveigu
Sigurðardóttur. Að lokum bar Ingi-
björg Helgadóttir fram eftirfandi til-
lögu að fundarsamþykkt:
Fundur í Hjúkrunarfélagi Islands
21. febrúar 1978 mótmælir harðlega
kj araskerðingarlögum ríkisstj órnar-
innar, er fela í sér riftun á nýgerðum
kjarasamningum BSRB.
Fundurinn hvetur alla launamenn
lil að standa vörð um frjálsan samn-
ingsrétt og lýsir eindregnum stuðn-
ingi við framkomnar ályktanir laun-
þegasamtaka í landinu.
Fundurinn felur stjórn Hjúkrunar-
félags Islands að skipuleggja baráttu
félagsmanna og væntanlegar aðgerð-
ir í náinni samvinnu við stjórn
BSRB.
Tillagan var samþykkt einróma.
Fundinn sátu um 100 manns og var
honum slitið kl. 22.10. I. Á.
Nýtt hjúkrunarfræðingatal
Nefnd sú sem starfar að undirbún-
ingi nýs hjúkrunarfræðingatals hef-
ur nú sent út eyðublöð til þeirra
hjúkrunarfræðinga sem útskrifaðir
eru eftir mars 1969.
Þar sem fyrirhugað er að bókin
komi út haustið 1979, er nauðsyn-
legt að hjúkrunarfræðingar bregði
fljótt og vel við, útfylli þessi blöð og
sendi skrifstofu HFI, Þingholtsstræti
30, sem fyrst eða eigi síðar en i maí
1978.
Oski hjúkrunarfræðingar, sem
svarað hafa, að koma frekari upplýs-
ingum á framfæri, taka nefndarkon-
ur eða skrifstofa IIFI góðfúslega á
móti þeim.
Guðrún Guðnadóttir, sími 31313 eða
38160.
Ingileif Ólafsdóttir, sími 42893.
Jóhanna Björnsdóttir, sími 83675
eða 29000.
Magdalena Búadóttir, simi 83565.
Margrét Sæmundsdóttir, sími 32457
eða 38160.
Oddný Ragnarsdóttir, sími 50211.
Heiðursmerki hinnar
íslensku fálkaorðu
Geirþrúður J. Ásgeirsdóttir Kúld
hjúkrunarkona var ein þeirra sem
sæmdir voru heiðursmerki hinnar ís-
lensku fálkaorðu á nýársdag. Var
henni veitt orðan fyrir hjúkrunar-
og líknarstörf.
Geirþrúður lauk námi við HSI
1935. Starfaði síðan í Bretlandi um
hríð og var við framhaldsnám í geð-
hjúkrun í Danmörku 1936. Aðalstörf
Geirþrúðar hér heima voru við ung-
barnavernd Líknar, Barnadeild
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur
og við heimahjúkrun.
Nýr formaður Trúnaðarráðs
Á fundi Trúnaðarráðs HFÍ 1. mars
1978 lét Vígdögg Björgvinsdóttir af
störfum í ráðinu, en hún var formað-
ur þess. Formaður var kjörinn Pál-
ína Sigurjónsdóttir heilsuverndar-
hj úkrunarfræðingur, Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur. 1 ráðinu tók sæti
Þórdís Sigurðardóttir hjúkrunar-
fræðingur á Kleppsspítala.
34
HJUKRUN