Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Page 3
FORSÍÐA:
Postulínsstyttur í eigu Hjúkrunarfé-
lags íslands. Gjöf frá forseta ís-
lands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, til
minningar um móður hennar Sigríði
Eiríksdóttur.
Ljósmynd: Matthew J. Driscoll.
1. tölublað maí 1988
64. árgangur
ÚTGEFIÐ AF HJÚKRUNARFÉLAGI ÍSLANDS
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
STEFANÍA SIGURJÓNSDÓTTIR, SÍMI 687575
RITSTJÓRN:
ÁSA ST. ATLADÓTTIR, SÍMI 51126
SIGRÍÐUR SKÚLADÓTTIR, SÍMI 43908
RANNVEIG SIGURBJÖRNSDÓTTIR, SÍMI 40187
AUGLÝSINGAR OG BLAÐADREIFING: STEFANÍA SIGURJÓNSDÓTTIR, SÍMI 687575 SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, SÍMI 687575
BLAÐIÐ KEMUR ÚT ÁRSFJÓRÐUNGSLEGA. ENDURPRENTUN BÖNNUÐ ÁN LEYFIS RITSTJÓRA. ÁSKRIFTAGJALD ER KR. 500
EFNISYFIRLIT
Hjúkrun barna með sjúkdóma í stoðkerfi 2
Tíðni blöðrubólu ungabarna (Pemphigus neonatonum) á Stór-Reykjvíkursvæðinu 8
Framhverf könnun á áhrifaþáttum og einkennum fyrirtíðarspennu 12
Hjúkrunarfræðingur sem yfirmaður, sérfræðingur í hjúkrun og sá sem ákvarðanir tekur 22
Lífið eftir brottnám brjósts 26
Kenningar Júlíu Völdan um tengsl mataræðis og sjúkdóma 29
Starfsmannafræðsla á sjúkrahúsum 34
Kynning á bráðamóttöku Landspítalans 36
Menntunarmál 38
Kristilegt félag heilbrigðisstétta 10 ára 42
Á skurðstofuhjúkrun að vera eyland í hjúkrunarferlinu? 46
Letur: Times 10 pt. á 12 pt. fæti. Millifyrirsagnir 12 pt.
myndatextar 8 pt. á 10 pt. fæti. t A S,1'.1' ■ / .
Pappír: fincoat 100 gr.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Góðir felagsmenn
Það hefur verið viðburðaríkur tími í sögu félagsins, ef horft
er til baka til haustdaga 1986. En frá þeim tíma hefur undir-
rituð gegnt formennsku í forföllum kjörins formanns Sig-
þrúðar Ingimundardóttur.
Á tímamótum er jafnan hollt að staldra við og líta yfir farinn
veg og meta árangur þeirra starfa, er unnin hafa verið.
Hvað hefur áunnist, hvar stöndum við?
Það hafa verið sviptingar í kjarabaráttunni, nokkuð hefur
áunnist og öðru hefur verið fórnað. Árangur kjarabarátt-
unnar metur hver og einn fyrir sig, en félagið hefur fengið
viðurkenningu ríkisvaldsins fyrir því, að öll hjúkrunarstéttin
skuli búa við svipuð kjör.
í lok ársins 1986 voru samþykkt á Alþingi ný lög um samn-
ingsrétt opinberra starfsmanna, en með þessum lögum er
samningsrétturinn fluttur til einstakra stéttarfélaga og verk-
fallsrétturinn er nú hjá þeim félögum, er samningsréttinn
hafa.
Með þessum lögum hefur HFÍ verkfallsrétt fyrir 2/3
félagsmanna sinna, staða félagsins er því gjörbreytt.
í síðustu samningum reyndi fyrst á breytta stöðu við samn-
ingagerð og má margan lærdóm af því draga.
Fulltrúar frá kjararáði og stjórn félagsins sátu ráðstefnu í
Danmörku í marss.l., erfjallaði um launaþróunog kjaramál
hjúkrunarfræðinga.
Þar komu fram nokkrar athyglisverðar hugmyndir um leiðir
til þess að lyfta upp launum hjúkrunarfræðinga.
Nágrannaþjóðir okkar hafa við svipuð vandamál að glíma
og við þekkjum, flótti frá þjónustustörfum og störfum í þ águ
þess opinbera, minnkandi þjóðartekjur, offramleiðsla og
niðurskurður á framlögum til heilbrigðismála.
Ný husakynni
Flutningur félagsins í ný húsakynni á s.l. sumri er einn
merkasti áfangi í sögu félagsins og á eftir að breyta miklu
umalltinnra starffélagsins, erþess nú þegarfariðaðgæta.
Félaginu hefur tekist að eignast glæsilega eign á einum
fegursta stað borgarinnar.
Að svo vel hefur tekist til, sem raun ber vitni, má þakka
mörgum, svo sem forsjálni forvera okkar að sjá svo um, að
hjúkrunarfræðingar hafa getað búið að „sínu“ og ávallt séð
um að ávaxta sitt ptind.
En ekki hafa félagsmenn í dag síður látið sitt eftir liggja, því
fjárframlög og allhá félagsgjöld hafa gert okkur þetta kleift.
Skyggnst inn í framtíðina
Með aukinni fagþekkingu og fræðimennsku í hjúkrun, nýrri
hugmyndafræði og breyttum viðhorfum, er rík þörf fyrir
aukið sjálfstæði í starfi. Fræðimennska og rannsóknirkalla
á aukið fjármagn, ef árangur á að nást. Þess vegna er öflugt
stéttarfélag nauðsynlegt baráttutæki, ekki aðeins í beinni
kjarabaráttu heldur einnig til þess að hafa þjóðfélagsleg
áhrif, sem getur stuðlað aö framþróun í hjúkrun.
Sameiginlegt markmið allra íslenskra hjúkrunarfræðinga
þarf því að vera að efla stéttarvitund og styrkja samstöðu
meðal hjúkrunarfræðinga og sameiginlega að vinna að
bættum kjörum.
Fyrirhugað er norrænt samstarf um gæðamat í hjúkrun.
HFÍ hefur leitað eftir samstarfi við FHH við undirbúning að
þessu verkefni. Bæði félögin hafa fullan hug á að vel takist
til um þetta viðamikla verkefni.
Góðirfélagsmenn.
Hér kveður undirrituð og þakkar fyrir góð samskipti við
félagsmenn og hvetur alla hjúkrunarfræðinga til þess að
sýna stéttvísi og taka fullan þátt í félagsbaráttunni.
ýa'iina/JLjurjonsdóUir
;j p <
HJÚKRUN '/{«-64. árgangur 1