Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Blaðsíða 10
Inga Teitsdóttir hjúkrunarstjóri sýkingavarna á Landspítala
Tíðni blöðrubólu ungbarna
á Stór-Reykjavíkursyæðinu
Grein þessi er byggð á fyrirlestri, sem haldinn var á fræðslufundi
Samtaka um sýkingavarnir á sjúkrahúsum 15. maí 1986
Eins og þeir vita gerst sem vinna á
fæðinga- og nýburadeildum orsak-
ast alvarlegar sýkingar í nýburum
aðallega af staphylococcus aureus,
hæmolytiskum streptococcum af
gr. A og B svo og af klebsiellu og
enterobacter.
Auk þeirrar bakteríuflóru, sem
börn geta fengið á sig frá móður-
inni í fæðingu er það vel þekkt að
bakteríur berast milli barnanna
með höndum starfsfólksins. Sýnt
hefur verið fram á, að bakteríu-
bólfesta hjá nýburum byrjar við
naflastreng og dreifist þaðan út
um líkamann.
Klasasýklar, það er að segja stap-
hylococcus aureus voru þekktasta
orsök spítalasýkinga í kringum
1950. Þrátt fyrir að slíkar sýkingar
væru ekki einskorðaðar við nýfædd
börn komu helstu faraldrarnir fyr-
ir á fæðingardeildum þar sem húð-
sýkingar voru algengar og stund-
um í kjölfar þeirra lungnabólga,
blóðsýkingar og dauði.
Blöðrubóla ungbarna (pemphigus
neonatorum) er húðsýking af
völdum staphylococcus aureus,
sem nýburarnir fá á sig á fyrstu
dögum ævinnar. Sýkingarein-
kenni koma þó yfirleitt ekki í ljós
fyrr en eftir að heim er komið á
10.-12. degi eða jafnvel síðar.
Einkennandi fyrir sýkinguna er
bóla með vessafylltri blöðru í
toppnum. Stundum er aðeins um
eina eða fáar bólur að ræða, en
stundum breiðast bólurnar út og
koma nýjar og nýjar í langan tíma.
Sé um útbreidda sýkingu að ræða
geta sýklarnir komist í blóð nýbur-
ans og er hann þá í lífshættu.
Aðferðirnar við að draga úr
þessum sýkingum fela í sér notkun
sótthreinsiefna við böðun barn-
anna eða sótthreinsun á nafla-
streng eingöngu svo og almennt
hreinlæti starfsfólks einkum góð-
an handþvott. Margskonar sótt-
hreinsunarefni hafa verið notuð
með misjöfnum árangri þó. Má
þar nefna triple dye, sem er blanda
þriggja sótthreinsandi litarefna
(gentian violet, brilliant green,
malachite green), hexachloro-
phen, silver-sulfadiazine og ýmis
sýklalyf, svo sem bacitracin, neo-
mycin og polymyxin. Notkun triple
dye á naflastúf hindrar vöxt stap-
hylococcus aureus í ákveðinn tíma
en í a.m.k. tveimur rannsóknum
(1977) jókst vöxtur gramneikvæðra
baktería og streptococca af gr. B.
Jafnframt hefur verið sýnt fram á
hættu á eitrun og ofnæmi af völd-
um triple dye (1969 og 1972). Það
sem mælir gegn almennri meðferð
með sýkladrepandi smyrslum er
hættan á að fram komi ónæmir
stofnar. Hexachlorophen, öðru
nafni physohex, kom á markaðinn
upp úr 1950 og var á næstu ára-
tugum algengasta sótthreinsiefnið
við böðun nýbura. Enginn vafi er á
að hexachlorophenböð drógu úr
tíðni blöðrubólu.
Upp úr 1970 varð uppvíst að hexa-
chlorophen getur frásogast gegn-
um opna eða óþroskaða húð. Var
eftir það víða hætt að baða nýbura
úr þessu efni og færðist þá þessi
kvilli í aukana og sums staðar marg-
faldaðist tíðni hans.
Á fæðingadeild Landspítalans
voru hexachlorophenböð nýbura
tekin upp um 1960. Fyrir þann
tíma var blöðrubóla ungbarna
talin viðloðandi af og til og var
almennt nefnd „Landspítalabóla“
þó hún kæmi upp annars staðar
líka. Milli 1960 og 1974 dró mjög
úr tíðni blöðrubólu á Landspítal-
anum og voru aðeins skráð 2-4 til-
felli árlega 1972-74. Árið 1975
varð aukning á þessari sýkingu og
voru það ár skráð 7 tilfelli, flest á
seinni helmingi árs en árið eftir
þ.e. 1976 voru skráð 27 tilfelli,
flest á fyrri hluta ársins. Fram að
8 HJÚKRUN Vte-64. árgangur