Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Qupperneq 9

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Qupperneq 9
og þroska þannig að magnið er frekar það sem horfa verður á. Hjúkrun: Til þess að fylgjast með vökvabúskap er hentugt að athuga ástand húðar (turgor) og slím- húðar m.t.t. þurrks, einnig þvag- útskilnað og eðlisþyngd þvags. Til þess að auka inntekt fæðu þarf að athuga matarvenjur barns fyrir innlögn á sjúkrahúsið (m.t.t. mat- málstíma, venja og hvaða mat barnið hefur helst viljað borða). Ef um er að ræða yngra en 2 ára þarf að vanda sérstaklega til upp- lýsingasöfnunar og fyrirmæla um mataræðið. Þekking þarf þá að vera fyrir hendi á t.d. pelavenjum og hvort það var byrjað á fastri fæðu. Hvernig matarlystin er og matarvenjur almennt? Ef bera fer á lystarleysi er hægt að setja upp óskalista í samvinnu við barnið og foreldrana. Sjálfsagt er að gefa barni bætiefni t.d. Dolci- vit, til viðhalds og í sérstökum til- gangi t.d. til vinnslu á Ca++. Þegar talað er um aðlaðandi umhverfi er t.d. átt við að barnið sé hreint, og að vel fari um það í vinalegu hreinu umhverfi. Að maturinn sé lagður þannig fyrir það að auðvelt sé fyrir það að matast. Einnig að tannhirðing hafi átt sér stað, því það getur aukið matarlyst barnsins. Mikilvægt get- ur verið að á stofunni ríki ró, og að foreldrar séu viðstaddir/fjarver- andi allt eftir því hvað hefur áhrif á betri matarlyst hjá barninu. Hjúkrunargreining 7 - Rökstuðningur Oftast raskast fæðuinntekt og hægðavenjur við rúmlegu. Rúm- lega getur t.d. dregið úr eðlilegri hvöt hjá barni til hægðalosunar vegna minnkaðrar hreyfingar, óþæginda og vöðvaslappleika, og á endanum getur farið svo að það hætti að svara kalli. Við langvarandi legu er depurð ekki óalgeng, sem óneitanlega hefur áhrif á matarlyst barns. Ef matarlystin er um tíma léleg kemur hægðatregða gjarnan í kjölfarið. Tíðni/magn/form hægða getur verið einstaklingsbundið og breyt- ingar þar að lútandi því mismun- andi hjá hverjum og einum. Mikil- vægt er því að fá nákvæmar upp- lýsingar um hægðavenjur barns m.t.t. að obs. frávik frá hinu eðli- lega, og að setja raunhæf markmið í hjúkruninni. Hjúkrun: Til þess að geta gripið til viðeigandi ráða, ef tregða fer að gera vart við sig, þarf fyrst að obs. hægðir m.t.t. tíðni, magns og forms. Einnig má benda á önnur einkenni s.s. ógleði, þaninn kvið og almenn óþægindi. Nauðsynlegt er að virða næði barns tengt hægðalosun. Að hafa hægðir inni á stofu getur verið feimnismál hjá því, og það getur þess vegna farið að halda í sér. Að stuðla að ríkulegri vökvainn- tekt er mikilvægur þáttur í að spornagegn hægðatregðu. Ef barn innbyrðir ekki nægjanlegan vökva til viðhalds vökvaþörf líkamans, verður upptaka vökva úr melting- arvegi meiri en eðlilegt er, sem leiðir til hægðatregðu og erfiðleika við hægðalosun. Barn á rúmlegu hefur einnig tilhneigingu til að fá hægðatregðu vegna hreyfingar- leysis eins og fram hefur komið. Ef hvatning og fræðsla til barnsins um nauðsyn þess að drekka vel og velja úrgangsríkt fæði ber ekki árangur, er hægt að grípa til hægðalyfja fast s.s. syr. Laktu- losu. Heimildaskrá Luckman, J. og Sörensen K.C. 1979 Basic Nursing A psykophsiologic approach. W.B. Saunders Company. Luckman, J. og Sörensen K.C. 1980. Medical Surgical Nursing. W.B. Saund- ers Company, second edition. „The Nursing Clinic's of N.A." Dec. 1981 16:4. Hjúkrunargreiningar við barnadeild Landa- kotsspítala ’85-’86. N. Am. Nrg. - Diag. Ass., apríl ’84. Höfundur er hjúkrunarfrœðingur á slysadeild Borgarspítalans Kristilegt félag heilbrigðisstétta býður öllu starfsfólki, sem vinnur á sjúkrahúsum, heilsugæslu- stöðvum, hjúkrunarheimilum eða’samsvarandi stofnunum að taka þátt í hinni fyrstu norrænu ráðstefnu KFH 9.-16. ágúst 1988. Mótsstaður: Alþjóðlegur menntaskóli Postulakirkjunnar, Lykke- gaardsvej 100, 6000 Kolding, Danmörku. Sími: 90 455 524 795 Yfirskrift mótsins er: Nú er hagkvæm tíð. Ræðumenn fjalla um það efni frá ýmsum sjónarhornum. Munu þeir höfða sérstaklega til þeirra sem vinna meðal sjúkra og fatl- aðra. Auk þess verða kennslustundir um: • „Alhliða umönnun sjúkra“ • „Siðræn vandamál" • „Persónulega bænastund" • „Legvatnsskoðun" • „Líknardráp" • „Ýmsar lækningaaðferðir í Ijósi Biblíunnar" • „Fjölskyldulíf" • „Ný-aldar hreyfinguna“ Nánari upplýsingar veitir skrifstofa KFH, Hátúni 4, 2.h., sími 91-14327. HJÚKRUN — 64. árgangur7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.