Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Síða 30

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Síða 30
málaráðherra mun skv. lögunum hafa allan rétt til ákvörðunar- töku í þessu máli og því er ekki tryggt að stéttarfélög opinberra starfsmanna muni hafa nokkuð að segja um ákvörðun svo- kallaðra viðbótarlauna í framtíðinni. Það er því erfitt að leggja mat á það hvort ákvarðanir um laun opinberra starfsmanna á íslandi muni verða meira eða minna miðstýrðar en þær eru nú. Fjármálaráðuneytið segist stefna að því að færa launaákvarð- anir í meira mæli til stofnana og fyrirtækja ríkisins og að laun ákvarðist fremur af þáttum eins og hæfni og ábyrgð en starfs- aldri og aldri. Fulltrúar opinberra starfsmanna hafa hins vegar bent á að ný lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna séu aðför að samningsrétti stéttarfélaga og stefni í átt til mikillar miðstýringar þar sem fjármálaráðherra mun vera sá sem stýrir. Mismunandi áherslur í kjarasamningagerð Það er ljóst að kjör flestra hjúkrunarfræðinga á Norður- löndum eru ákveðin í kjarasamningum og því er mikilvægt að stéttarfélög þeirra velti því fyrir sér á hverjum tíma hvaða leiðir í kjarasamningagerð eru árangursríkastar. A að leggja áherslu á það að launaákvarðanir séu miðstýrðar þannig að laun allra starfsmanna séu ákveðin við eitt samningaborð milli stéttar- félagsins og opinberra vinnuveitenda. Eða er það vænlegra til árangurs að dreifa launaákvörðunum þannig að þær séu teknar nær vinnustöðum hjúkrunarfræðinga. Þá leið hafa t.d. sænskir hjúkrunarfræðingar farið. Þar gerir stéttarfélagið n.k. ramma- samning við vinnuveitendur um lágmarkslaun og heildar- fjárhæðina sem er til skiptanna og sfðan er samið um skiptinguna annað hvort á milli fulltrúa félagsins á viðkomandi vinnustað og/eða hver einstaklingur semur við sinn vinnuveit- anda um tiltekin laun og tiltekna launahækkun. Þegar samn- ingar eiga sér stað á þennan máta er félagið yFirleitt bundið friðarskyldu eftir að rammasamningur hefur verið undirritaður þannig að félagsmenn geta ekki farið í verkfall þegar samnin- gar eiga sér stað milli félagsins eða félagsmanna og viðkom- andi vinnustaðar. Hér á landi hefur átt sér stað nokkur umræða um kosti og galla þess að færa launaákvarðanir frá miðstýrðu samnings- borði stéttarfélagana nær vinnustöðum starfsmanna og þar sýnist sitt hverjum. Rök gegn miðstýrSum launaákvörðunum Opinberir vinnuveitendur hafa lýst áhuga sínum á að gera kjarasamninga þannig úr garði að launaákvarðanir dreifist meira, þ.e. færist í meira mæli frá miðstýrðum kjarasamn- ingum nær vinnustöðum starfsmanna. Meðal stéttarfélaga opinberra starfsmanna eru skiptar skoðanir. Menn hafa bent á það sem rök með dreifðum launaákvörðunum að eðlilegt sé að laun ráðist af hæfileikum og frammistöðu launamanna en ekki starfsaldri eða aldri eins og gert er ráð fyrir í núgildandi kjarasamningum. Það sé liins vegar ekki hægt að kveða á um það að laun ráðist af hæfileikum og frammistöðu í miðstýrðum kjarasamningum því hér sé um að ræða huglæg matsatriði sem ekki er unnt að leggja algilda mælistiku á. Einnig hafa menn l)ent á það að ef launaákvarðanir dreifist meira auki það sveigjanleika launa og þannig muni framboð og eftirspurn hafa meiri áhrif á laun. Sem dæmi um þetta má nefna að ef laun heillar starfsstéttar eru ákveðin í einum miðstýrðum samningi þá hafa allir möguleika á að fylgjast með og meta launa- breytingar hjá þessum starfsmönnum. Þetta getur síðan valdið tregðu vinnuveitenda við að hækka laun þessa hóps umfram laun annarra starfshópa því launahækkanir stórrar starfsstéttar skapa gjarnan fordæmi fyrir launahækkanir til annarra og vinnuveitendum er í mun að halda í ákveðinn stöðugleika á vinnumarkaði. Hins vegar ef launaákvarðanir færast í auknum mæli út á vinnustaði þá er hugsanlegt að það auki möguleika starfshópa eins og hjúkmnarfræðinga á að ná fram ákveðnum launaskriði þannig að laun ákveðinna hópa hjúkrunarfræðinga t.d. á ákveðnum svæðum hækki meira en laun annarra laun- þega og niðurstaða samninganna verði þannig í heildina hægstæðari hjúkrunarfræðingum en hún hefði annars verið. Það hefur einnig verið bent á það að ef kjarasamningar færast að vemlegu leiti frá miðstýrðu samningsborði nær vinnustöðum starfsmanna þá komi fleiri félagsmenn með beinum hætti að samningsborðinu og stundum verður hver og einn félagsmaður að leggja sig fram að ná fram bættum kjömm með samningum við sinn vinnuveitanda. Þetta hvetur fleiri og oft alla félags- menn til að leggja sitt af mörkum í baráttu fyrir bættum kjömm. Rök með miðstýrðum launaákvörðunum Þeir sem hafa talað gegn dreifðum launaákvörðunum hafa hins vegar bent á það m.a. að ómögulegt sé að mæla árangur og álag í starfi margra starfshópa opinberra starfsmanna þannig að unnt sé að nota mælinguna sem grundvöll launaákvarðana. Slíkt getur skapað hættu á að teknar séu ómálefnalegar ákvarðanir um launakjör einstaklinga á vinnustöðum. Menn hafa einnig bent á að það sé alls ekki víst og raunar frekar ólíklegt að þó launaákvarðanir færist til stofnana muni framboð og eftirspum hafa áhrif til launahækkunar fyrir hjúkmnar- fræðinga. Ef vinnuveitendur hjúkmnarfræðinga em fáir þá bendi margt til þess að það muni gæta vemlegrar tregðu af þeirra hálfu til að hækka laun, jafnvel þó eftirspurn sé meiri en framboð eins og ég lýsti hér áðan. Menn hafa einnig haft áhyggjur af að ef hver og einn félagsmaður þarf að fara að beijast fyrir sínum kjömm, og þá jafnvel í samkeppni við aðra félagsmenn, þá geti slík barátta veikt samstöðu stéttarinnar, menn eyði kröftum sínum í baráttu gegn hver öðrum f stað þess að standa saman um að bæta kjör heildarinnar. Að lokum hefur verið bent á það að dreifðar launaákvarðanir hafa víða leitt til meiri launamunar milli einstaklinga, en hvort það sé kostur eða galli verður hver og einn að meta fyrir sig. Af þessu öllu hafa síðan margir ályktað sem svo að það sé eðlilegt að vinnuveitendur vilji gjarnan dreifa launaákvörð- unum. Dreifðar launaákvarðanir veiki samstöðu félagsmanna innan stéttarfélaga en opinberir vinnuveitendur, sama hversu ólíkir þeir em, muni alltaf vera í þeirri aðstöðu að eiga auðvelt með að standa saman gegn launahækkunum og launakröfum af hálfu stéttarfélaga og félagsmanna. Opinberir vinnuveitendur muni ekki keppa hver við annan um starfsfólk, þeir muni ekki yfirbjóða hvern annan því þeir hafi það náið samráð sín á milli og aðstæður þeirra flestra séu á þann veg að fjármagn til rekstursins komi úr sömu buddunni. Afstaða Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Félag íslenskra hjúkmnarfræðinga hefur ekki tekið formlega afstöðu með eða á móti því að breyta kjarasamninga- gerð þannig að launaákvarðanir dreifist meira. íslenskir TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. 1996

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.