Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Síða 38
Vinnuvernd
í verki
Björg Ámadóttir, hjúkrunarfræðing
Heilbrigðisráðgjöf í fyrirtækjum
Nýr starfsvettvangur
hj úkrunar fræðinga?
Hvers vegna verður heilsuvernd starfsmanna ekki að
raunveruleika?
Eins og margir vita er slík heilsuvernd lögbundin
samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á
vinnustöðum nr. 46/1980. Þar er kveðið á um að slík þjónusta
skuli veitt af næstu heilsugæslustöð. Eins og staðan er nú fer
því fjarri að þessi ákvæði séu uppfyllt.
Þar kemur margt til. í fyrsta lagi að ekki hefur náðst
samkomulag um framkvæmd þessara ákvæða. Efasemdir hafa
verið uppi um að framkvæmd þessa sé best komið innan hins
opinbera heilbrigðiskerfis og vilji er fyrir hendi að stuðla að
ákveðinni samkeppni innan þessa sviðs. Einnig hefur reynst
erfitt að skilgreiria þjónustuna, þ.e. hvaða þjónusta fellur innan
ramma heilsuverndar starfsmanna.
Karlmennskan í fyrirrúmi
Síðast, en ekki síst, hefur reynst efitt að sannfæra vinnu-
veitendur um gildi slfkrar heilsuvemdar. Þar ríkja oft skamm-
tímasjónarmið og ekki er horft til framtfðar. Á íslandi er
vinnuharka mikil og „karlmennskan“ í fyrirrúmi. Unnið er þar
til eitthvað gefur sig. Þá hættir starfsmaðurinn og nýr er ráðinn
í staðinn. Mun auðveldara er að sannfæra vinnuveitendur ef
framleiðsla þeirra, varan sjálf, er í hættu. Nærtækasta dæmið
er t.d. að fyrirtæki óska þess nú í auknum mæli að starfsmenn
séu heilbrigðisskoðaðir vegna nálægðar þeirra við matvæli og
neysluvörur. Verið er að vernda vömna og tryggja að starfs-
maðurinn skaði ekki vömna og þar með fyrirtækið. Aftur á móti
er á brattan að sækja ef minnst er á að skoða heilsufar starfs-
manna vegna áhrifa vinnuumhverfis á þá.
ísland og Evrópusamstarf
Greinileg breyting hefur þó orðið á hugarfari stjómenda
fyrirtækja nú á síðustu ámm með tilkomu ýmissa reglna og
ákvæða er tengjast Evrópuvæðingu íslendinga. Fyrirtæki eru
farin að leggja sig fram um að uppfylla hina ýmsu staðla
varðandi framleiðslu sína. Mikið ber þó á því að það sé gert á
þann hátt sem ofangreint dæmi sýnir og langur vegur að því
marki að framkvæmd um heilsuvernd starfsmanna uppfylli
ákvæði laganna.
Ekki er þó að öllu leyti við vinnuveitendur að sakast. Oft á
tíðum telja þeir sig vera að veita starfsmönnum viðunandi
starfsaðstöðu og aðbúnað. 1 mörgum tilfellum þekkja vinnu-
veitendur ekki skyldur sínar samkvæmt lögunum. Mikið ber á
óöryggi hjá þeim þegar kemur að rekstararþáttum er varða
starfsmanninn sjálfan, t.d. veikindi og fjarvistir vegna þeirra og
þáttum er lúta að aðbúnaði. Vinnuveitendur átta sig oft ekki
einu sinni á tengslum vinnuumhverfis og fjarvista.
Starfsmenn bera óbyrgð ó eigin heilsu
Starfsmaðurinn sjálfur er einnig oft mjög illa upplýstur.
Algengt er að starfsmenn líti á sjálfa sig sem fórnarlömb
vinnuumhverfis síns. Þeir líta oft á vinnu sína og daglegt líf
utan hennar sem tvo aðskilda þætti. Þeir láta sig heilsu sína og
aðbúnað ekki varða fyrr en það er orðið of seint.
Þóttur hjúkrunarfræðinga
Mikilvægt er fyrir báða aðila, starfsmann og vinnu-
veitanda, að fá hlutlausa ráðjöf án forræðishyggju. Þar kemur
að hlut okkar hjúkrunarfræðinga. Þekking okkar á þessu sviði
er þó lítil og hefur hingað til mest verið bundin opinberri
heibrigðisþjónustu. Miklu máli skiptir að við áttum okkur á
þeim gildum sem ráða á almennum vinnumarkaði.
Forræðishyggjan gildir þar ekki í sama mæli og innan veggja
sjúkrastofnana. Starfsmenn verða að átta sig á því að atvinna
þeirra er hluti lífsins og það er þeirra að bera ábyrgð á heilsu
sinni þar sem og annars staðar. Vinnuveitendum getum við
veitt stuðning með „tæknilegri“ ráðgjöf er varðar veikindi og
aðbúnað starfsmanna.
Það er tímabært að hjúkrunarfræðingar leiti í auknum
mæli atvinnuskapandi tækifæra utan sjúkrastofnana. Þekking
hjúkrunarfræðinga og sú heildarsýn sem hún veitir á líðan
einstaklinga er fágæt úti á hinum almenna vinnumarkaði. Með
ráðgjöf til einstaklinga í eigin umhverfi gefst einstakt tækifæri
til þess að hvetja fólk, starfsmenn og vinnuveitendur, til
ábyrgðar á eigin heilsu. Almennur vinnumarkaður er stór
óplægður akur fyrir hjúkrunarfræðinga, með fjölda spennandi
atvinnutækifæra.
#
HÁALEITIS APÓTEK Háaleitisbraut 68 sími 581-2101 Iðunnar Apótek Domus Medica Egilsgötu 3, sími 563-1020 ^XStjörnu Apötek
Hafnarstræti 91-95 Akureyri, sími 463-0452
262
tImarit
HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. 1996