Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Síða 46
Frá Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga
Norræn
geðhjúkrunarráðstefna
verður haldin
dagana 17. - 19. september
1997 á Hótel Lof’tleiðum.
Yfirskrift ráðstefnunnar er:
Geðhjúkrun - frá luktum
heimi út í nýjar víddir.
Framkvæmd ráðstefnunnar er í
höndum HH Ráðstefnuþjónustunnar,
Helgu Bjarnason, í samvinnu við
fagdeild geðhjúkrunarfræðinga.
Drög að dagskrá:
16. september:
Komudagur erlendra
þátttakenda,
skráning og móttaka.
17. september:
Fagleg dagskrá allan daginn.
Móttaka í Ráðlnísi Reykjavíkur.
18. september:
Fyrirlestrar og vinnusmiðjur
um:
•Félagslega jajálfun (social
skills)
•Kynhegðun (sexulaitet)
•Vitræna meðferð (cognitive
therapy)
•Framandi menningu (fremmed
kultur)
•Fjölskyldumeðferð (family
therapy)
•Áhrif neytenda
(brugeii n (ly delse)
19. september:
Fyrirlestur.
Að lokinni skoðunarferð, lýkur
ráðstefnunni með kvöldverði.
Tveir fyrirlestrar verða framlag
íslands á ráðstefnunni:
Fjölskvldumeðferð og Skráning
hjúkrunar (dokumentasionl.
Hjúkrunarfræðingar sem hafa
áhuga á að senda inn fyrirlestra um
ofangreind efni þurfa að gera það
fyrir 15. desember n.k. og senda til
formanns fagdeildarinnar,
Guðbjargar Sveinsdóttur, sem hefur
síma: 561 2612.
Nánari upplýsingar um faglegu
ráðstefnuna verða sendar út í
febrúar- mars.
V
J
Frá ICN
- Alþjóðasambandi
hjúkrunarfræðinga
Hjúkrunarfræðingar taki ríkari
þátt í að móta heilbrigðiskerfi
Þátttakendur á 49. þingi WHA -
World Health Assembly- sem haldið var
f Sviss nú í sumar sýndu nær einróma
stuðning við áætlanir um að styrkja
hjúkrunar- og ljósmæðrastörf um allan
heim. Samþykkt var ályktun sem
hljóðar á þá leið að hjúkrunarfræðingar
eigi að koma að vinnunni við að byggja
upp eða breyta heilbrigðiskerfi landa
sinna og var WHO falið að gera um
þetta framkvæmdaráætlun. Einnig var
samþykkt að fara fram á að WHO styddi
að hjúkrunarfræðingar/ljósmæður
fengju þjálfun í að starfa við rannóknir.
Einelti á vinnustað
í Bretlandi hefur komið í ljós að
orsök fjarvista starfsfólks má í helmingi
tilfella rekja til eineltis á vinnustað.
Yfirleitt eru það yfirmenn sem leggja
undirmenn sína í einelti og lýsir það sér
m.a. á þann hátt að gert er lítið úr
starfsmanninum, fylgst er með nánast
hans hverju skrefi og hann gagnrýndur
eða skammaður fyrir hvað eina sem út
af ber. Líkamleg áhrif eineltis geta verið
talsverð, s.s. vanlíðan, svitaköst, skjálfti
og svefnleysi, auk þess sem andleg
vanlíðan getur verið mjög mikil.
Kynferðisleg áreitni
gerð útlæg
Á Filipseyjum hefur verið gripið til
aðgerða sem koma eiga í veg fyrir
kynferðislega áreitni á vinnustað. Ný lög
þar um segja að héðan í frá eigi þeir sem
verða fyrir áreitni rétt á vernd og bæði
opinberir starfsmenn, sem og þeir sem
vinna í einkageiranum, geta verið gerðir
ábyrgir fyrir því að lög þessi séu virt á
vinnustöðum.
Foreldrafrí
Báðir foreldrar hafa rétt á að taka
sér a.m.k. þriggja mánaða „foreldrafrí“
til viðbótar við barnsburðarleyfið
samkvæmt samningi milli evrópskra
vinnuveitendasambanda og stéttarfélaga
(European employers and trade union
contract) sem undirritaður var í des-
ember 1995. Samningurinn, sem er fyrsti
undirritaði samningurinn sem fellur
undir félagslega hluta Maastricht
samkomulagsins, er nokkuð sveigjan-
legur. Foreldrafrí má taka í einu lagi,
sem hluta úr degi, eða í hlutum fram að
áttunda afmælisdegi barnsins.
(SEW NEWS, júní 1996)
Várd i Norden
Várd i Norden er vfsindarit sem Samvinna hjúkrunarfræðinga
á Norðurlöndum (SSN) hefur gefið út síðan 1981. Áhersla
hefur verið lögð á útgáfu ritsins vegna þess að það er talið
hafa mikilvægu hlutverki að gegna til að hvetja norræna
hjúkrunarfræðinga til vísindastarfa. Greinar sem í því
birtast eru fyrst og fremst á tungumálunum þremur sem eru
viðurkennd innan SSN, þ.e. dönsku, norsku og sænsku, en
einnig eru inn á milli greinar á ensku. Með útgáfu Várd i Norden
liefur SSN tekið sér stórt verkefni fyrir liendur. Upplag tímaritsins hefur ekki
vaxið eins og vonir stóðu til en með aukinni rannsóknarvinnu hjúkrunarfræðinga
ætti að rætast úr því. Efni sem birtist í Várd i Norden stendur síður en svo efni í
blöðum frá enskumælandi heimi að baki og viðfangsefni þess standa gjarnan nær
íslenskum raunveruleika eti t.d. bandarískt efni. Várd i Norden kemur út 4
sinnum á ári og kostar í áskrift 225 Nkr en hvert eintak 65 NKr. í lausasölu.
Nemendur fá 50% afslátt. Heimilisfangið er:
Várd i Norden. Posthoks 2681. Sl. Hanshaugen. N-0L81 Oslo. Norge.
Fylgirit me& bla&inu
Með blaðinu fylgir að þessu sinni auglýsing í lausblaðaformi þar sem
auglýstur er litríkur fatnaður sem hentar við flest störf.
Þarna koma fram allar nauðsynlegar upplýsingar um fatnaðinn svo og
pöntunareyðublað.
TfMARIT HJÚKRUNARKRÆÐINCA 5. tbl. 72. árg. 1996