Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Page 56
Enn um reykingar
Hættuleg kynni
Þótt þú hafir
aldrei reykt áttu
samt á hættu að fá
lungnakrabbamein
af völdum reykinga
ef þú ert stöðugt í
umhverfi þar sem þú verður fyrir
óbeinum reykingum, s.s. á heimili eða
vinnustað. í rannsókn á 1900
borgarbúum á fimm stöðum í
Bandaríkjunum var kannað hvaða
áhrif það hefði á konur, sem aldrei
höfðu reykt, að búa stöðugt við
óbeinar reykingar. Niðurstöður sýndu
að áhættan er 30% meiri hjá konum
reykingamanna.
Einnig sýndi hún að hættan óx í
réttu hlutfalli við magn reyksins
(pakkaár) sem konan bjó við.
(Pakkaár samsvarar því að reykja
pakka af sígarettum á dag í eitt ár).
(Nursing95, aprílhefti)
Börn og astmi
Börn kvenna, sem reyktu á
meðgöngu, hafa fæðst með óeðlilega
þröngan öndunarveg sem getur leitt til
þess að börnin eru móttækilegri fyrir
astma og öðrum öndunarfæra-
sjúkdómum. Óbeinar reykingar eru
einni g hættulegar; böm foreldra sem
reykja eru helmingi líklegri til að fá
astma, og fá oftar astmaköst, en börn
foreldra sem ekki reykja.
(Nursing96, febrúarhefti)
Ýmislegt um
Islendingar að þyngjast
Þrátt fyrir töluverða umræðu um
líkamsrækt, óhollustu ákveðinna
fæðutegunda, aukins framboðs á fitu-
lítilli fæðu og umræðu um óhollustu þess
að vera ofþung(ur), þá hefur komið í ljós
að íslendingar, eins og margar aðrar
vestrænar þjóðir, eru að þyngjast.
Samkvæmt niðurstöðum MONIKA
rannsókn Hjartaverndar þá eru íslenskir
karlar og konur að jafnaði 4-5 kílóum
þyngir en þeir voru fyrir 10 árum.
(Tíminn, 2.mars 1996).
Vara á við hættu strax
Rannsókn á hjúkmnarfræðingum í
Bandaríkjunum hefur sýnt að jafnvel
lítilsháttar fitusöfnun eykur hættuna á
ótímabæmm dauða. Fylgst var með
115.000 hjúkmnarkonum í 16 ár.
Rannsóknin sýndi að hjúkrunarfræð-
ingar á miðjum aldri virtust hafa til-
hneigingu til að vera um 10-15 kílóum
yfir kjörþyngd.
Hvernig offita gat verið orsaka-
þáttur dauða var sýnt með því að að bera
feitar konur saman við þær grennstu í
rannsóknini. Dauðatíðni vegna krabba-
meins var tvisvar sinnum hærri hjá
þyngstu konunum og fjórum sinnum
hæni vegna hjartasjúkdóma. Offita var
talin orsökin fyrir þriðjungi allra
dauðsfallanna vegna krabbameins og
V________________________________
aukakílóin
helmings vegna hjartasjúkdómanna.
Þeir sem voru í fyrirsvari
rannsóknarinnar telja að rekja megi
offitu sem orsök í 25% tilfella þeirra
300.000 fullorðinna sem látast á ári í
Bandaríkjunum. Einungis reykingar em
meiri orsakavaldur í ótímabæmm dauða.
Mesta hættan er þegar konur em
orðnar vemlega feitar og fita safnast á
með ámnum. Fæstar eru of feitar um
tvítugt og best er að grípa til aðgerða um
leið og fyrstu kílóin fara að bætast á. Þær
sem aldrei verða eru of þungar virtust
vera við bestu heilsuna.
Hjúkmnarfæðingar eru nú beðnir að
vara sjúklinga sína við strax þegar fyrstu
kílóin yfir kjörþyngd fara að bætast við.
(Samanlekl úr greininni „RN Study
Convicts Fat as a Killer; Even at Weights Seen
as .Average ( AJN, nóvember 1995).
Herferð hafin gegn offitu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) hefur hafið herferð gegn offitu og
varar við því að þær aðferðir sem beitt
hefur verið gegn henni hafi brugðist og
þetta heilbrigðisvandamál fari sfversn-
andi víða um heim. Stofnunin segir
líkurnar á dauða af völdum sjúkdóma
séu 12 sinnum meiri á meðal fólks sem
er of feitt en annarrra á aldrinum 25-35
ára.
(Morgunblaðið, 17. mars 1996).
_____________________________________J
Bólusetning gegn pneumókokkasýkingum
Dreifibréf nr. 6/96 frá Landlæknisembættinu
Bólusetning gegn inílúensu
Alþjóðaheilbrigðismálstofnunin
ráðleggur að innflæuensubóluefni 1996-
1997 innihaldi eftirtalda stofna:
A/Wuhan/359/95 (H3N2i - lfkur stofn
A/Singapore/6/86fHlNH - líkur stofn
B/Beiiing/184/93 - lfkur stofn
Hverja á að bólusetja?
•Alla einstaklinga eldri en 60 ára
• Öll börn og fullorðna sem þjást af
langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og
lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja
sjúkdömum og öðrum ónæmisbælandi
sjúkdómum.
• Starfsfólk heilbrigðisþjónustu og
aðra þá sem daglega annast fólk með
aukna áhættu.
Brýnt er að bólusetningu ljúki eigi
síðar en í nóvemberlok.
Frábendingar
Ofnæmi gegn eggjum, formalíni eða
kvikasilfri. Bráðir smitsjúkdómar.
Bólusetning gegn
pneumókokkasýkingum
Landlæknir vill einnig minna á
bólusetningar gegn pneumókokka-
sýkingum á 10 ára fresti til handa ölluin
sem eru eldri en 60 ára og á 5 ára fresti
til handa einstaklingum sem eru í
sérstökum áhættuhópum.
Bros ó dag....
Hugmyndankur orðasmiður sendi
þennan orðalista:
að þykkna upp = veða ólétt
afhenda = höggva hönd af
arfakóngur = garðyrkjumaður
búðingur = verlunarmaður
dráttarkúla = eista
féhirðir = þjófur
ílygill = flugmaður
formælandi = sá sem blótar mikið
forhertur = maður með harðlífi
kviðlingur = fóstur
meinloka = plástur
nágreni = gröf
penisilín = nærbuxur karla
pottormar = spaghetti
kaupfélag = sambúð
veiðivatan = rakspíri
TlMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. 1996