Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 7
Ritst órasp a
Erfiður vetur er að baki og
framundan er betri tíð með blóm í
haga. í þessu tölublaði kennir að
venju ýmissa grasa. Fyrst ber að
geta ritrýndrar greinar um hjúkrun
sykursjúkra eftir Árúnu K.
Sigurðardóttur.
Eins og Ólafur Ólafsson,
fyrrverandi landlæknir, benti á í
viðtali hér í Tímariti hjúkrunar-
fræðinga í febrúar á liðnu ári,
geta hjúkrunarfræðingar unnið
merkilegt starf til að bæta heilsu
almennings með fræðslu og
ráðgjöf. Við fjöllum um hvernig
hægt er að bæta heilsuna með
reykleysi, eða hvað hjúkrunar-
fræðingar eru að gera til að koma
í veg fyrir sjúkdóma af völdum
reykinga og aðstoða fólk við að
hætta að reykja. Reykingar
orsaka mörg af helstu heilbrigðis-
vandamálum nútímans og það er
m.a. eitt af helstu verkefnum
Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
arinnar WHO nú um stundir að
berjast gegn þeim. Annað mikið
heilbrigðisvandamál tengist
næringu, stór hluti heilbrigðis-
vandamála heimsins á rætur að
rekja til lélegs mataræðis, offitu
eða vannæringar. í þessu tölu-
blaði er rætt við Þorbjörgu
Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræð-
ing, um námskeið sem hún býður
íslenskum konum að sækja til að
breyta um fæðu og auka lífs-
orkuna. Þorbjörg hefur um árabil
verið búsett í Danmörku og rekur
ásamt fleirum meðferðarstofu þar
sem notaðar eru óhefðbundnar
aðferðir við að greina og með-
höndla sjúkdóma.
Þá er fjallað um fyrstu nem-
endur sem Ijúka meistaranámi í
hjúkrun frá Háskólanum á
Akureyri, og Rannsóknarstofu í
hjúkrunarfræðum.
Það er ávallt ánægjulegt að fá
fréttir úr starfi hjúkrunarfræðinga
sem vinna á hinum ýmsu
stofnunum og í þessu tölublaði
eru m.a. pistlar frá Neskaupstað
og Reykjalundi auk ýmiss annars
efnis.
Gleðilegt sumar!
Menalind
Vernd fyrir viðkvæma húð
HARTMANN
'I'
BEDCO & MATHIESEN EHF
Bæjarhrauni 10
sími 565 1000 • fax: 565 1001
Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 2. tbl. 76. árg. 2000
71