Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 9
Árún K. Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og lektor við Háskólann á Akureyri 1Appli{m af hjúkrun sykursjúkra uið uppkA{ ÍH.súlÍM.w.eð'fe.v'ðAY"* Lykilhugtök: Að ná tökum á meðferðinni, fræðsla, blóðsykurstjórnun, skipulag hjúkrunar Útdráttur Tilgangur rannsóknarinnar var að lýsa hvernig hjúkrunar- fræðingar sem starfa við hjúkrun sykursjúkra upplifa hlut- verk sitt við upphaf insúlínmeðferðar hjá fullorðnum einstaklingum með insúlínháða sykursýki. Fyrirbærafræði- leg rannsóknaraðferð var valin. Úrtakið var tilgangsúrtak, níu hjúkrunarfræðingar sem unnu á tveimur lyflækninga- deildum á stóru sjúkrahúsi í Reykjavík og á göngudeild sykursjúkra. Viðtöl voru tekin við þátttakendur og þau greind eftir aðferð Colaizzis. Niðurstöðurnar sýndu að hjúkrunarfræðingunum fannst hlutverk sitt helst einkennast af eftirfarandi sex þemum: a) að kynna sjúklingum heim sykursýkinnar; b) að hjálpa þeim að ná tökum á meðferðinni; c) að milda áfallið, d) að kenna þeim á sykursýkina; e) að meta og tryggja öryggi sykursjúkra og f) að stuðla að samfellu í meðferð sykur- sjúkra. Rannsóknin gefur til kynna hve hjúkrun sykursjúkra við upphaf insúlínmeðferðar er margslungin. Heildræn sam- felld hjúkrun er þýðingarmikil svo að hinn sykursjúki nái tökum á meðferðinni og hjúkrunarfræðingar geti fremur stutt hann í því ferli sem aðlögun að sykursýkismeðferð og blóðsykurstjórnun er. Vísbendingar komu fram um að þarft væri að skipuleggja hjúkrun sykursjúkra öðruvísi en nú er gert, s.s. að ákveðnir hjúkrunarfræðingar beri meginábyrgð á hjúkrun sykursjúkra á almennum deildum. Inngangur Þeim sem greinast með sykursýki hefur fjölgað hlutfalls- lega á undanförnum árum. Árið 1995 var tíðni sykursýki í heiminum 4,0% en árið 2000 4,2%, og samsvarar það því að 154 milljónir manna þjáist af sykursýki (King, Aubert og Herman, 1998). Mikilvægt er að þeir sem greinast með sykursýki nái tökum á aðferðum við að stjórna blóðsykr- inum, s.s. insúlíngjöf og lifnaðarháttum. Með fræðslu, stuðningi og ráðgjöf geta hjúkrunarfræðingar aðstoðað sykursjúka við að koma í veg fyrir afleiðingar sykursýkinnar og kljást við þær. Draga má úr fylgikvillum sykursýkinnar með markvissri blóðsykurstjórnun (DCCT, 1996). Hjúkrun- arfræðingar eiga að hafa mikil áhrif varðandi það að hinn sykursjúki öðlist þekkingu, vilja og hæfni til að ná tökum á sykursýkismeðferðinni. í fyrri rannsókn höfundar, sem gerð var í Bretlandi, kom í Ijós að hjúkrunarfræðingar með sér- leyfi í hjúkrun sykursjúkra telja mjög mikilvægt að aðstoða hinn sykursjúka við að ná góðum tökum á sykursýkis- meðferðinni strax frá greiningu sykursýkinnar. Það er talið auðvelda hinum sykursjúka að fella meðferðina inn í dag- legt líf og geta komið í veg fyrir að slæmar venjur komist á sem síðan getur reynst erfitt að venja sig af (Árún K. Sigurðardóttir, 1997). Hér á eftir verður fjallað um hjúkrun sykursjúkra og hvernig hjúkrunarfræðingar upplifa og skilja starf sitt þegar einstaklingur greinist með sykursýki og þarf á insúlínmeðferð að halda. Nýlegar rannsóknir hafa staðfest mikilvægi góðrar blóðsykurstjórnunar til að draga úr fylgikvillum sykursýki, s.s. augn- og nýrnaskemmdum (DCCT, 1996). Stjórnun blóðsykurs til langs tíma er mæld með því hve hátt hlutfall af blóðrauða er bundið sykri (HbA1). Ef blóðsykur er hár hækkar HbA1 gildið. Tilly, Belton og MacLachlan (1995) komust að raun um að HbA1 gildi sykursjúkra sem höfðu haft sykursýki í minna en eitt ár minnkaði meira við skipulega fræðslu en þeirra sem höfðu lengri sögu um sykursýki. Þetta var talið sýna að fræðsla nýtist sykursjúk- um best ef ekki er liðið mjög langt frá greiningu sykur- sýkinnar. Sykursýki hefur mikil áhrif á daglegt líf sykur- Árún Kristín Sigurðardóttir lauk MSc prófi í hjúkrunarfræði frá háskólanum í Wales árið 1997. Hún er lektor við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri og verkefnastjóri við Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. * Ritrýnd grein Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000 73

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.