Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 21

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 21
stuðla þannig að heilbrigði. Mér finnst skipta öllu máli hvernig tekið er á þessum málum." Ruth segir að margir viti að sjúkrahúsið sé reyklaust en það hafi komið sér á óvart hversu vel sjúklingar hafi tekið reykingabanninu. „Við höfum dæmi um að sjúklingar hafi hætt endanlega að reykja eftir stutta bráðainnlögn." Á sjúkrahúsinu í Neskaupstað eru haldin endur- hæfinganámskeið fyrir hjarta- og iungnasjúklinga. „Þeim er boðið upp á markvissa fræðslu í tóbaksvörnum. Meðal annars er fjallað um sjúkdóma sem tengjast reykingum, auk þess sem þeir fá einstaklingshæfð stuðningsviðtöl hjá hjúkrunarfræðingi og nikótínlyf eftir þörfum. Við mælum með því að fólk noti nikótínlyf í langan tíma, um 3-12 mánuði og dragi síðan smám saman úr notkun þeirra. Á heilsugæslustöðinni í Neskaupstað hefur einnig verið boðið upp á námskeið í tóbaksvörnum og þar fer fram einstaklingshæfð viðtalsmeðferð, fræðsla og stuðningur. Einnig er áhersla lögð á breyttan lífsstíl, svo sem hollt mataræði og mikilvægi þess að auka hreyfingu.“ Bannað að reykja á Reykjalundi Á lungnaendurhæfingardeild á Reykjalundi eru markvissar reykingavarnir í höndum hjúkrunarfræðings. Steinunn Ólafsdóttir, hjúkrunarstjóri á lungnaendurhæfingardeild, segir að reykingar sjúklinga hafi verið bannaðar árið 1995, en frá 1991 hafi smám saman verið unnið að því að draga úr reykingum á deildinni. „Reykleysi er nú skilyrði fyrir innlögn á lungna- og hjartaendurhæfingadeild. í fyrstu urðu þessar reglur til þess að einstaka sjúklingur hætti við að koma en síðan hefur þróunin snúist við og sífellt fleiri reykingamenn sækjast eftir aðhaldi og stuðningi. Læknar eru farnir að vísa yngra fólki en áður hingað og oft er það í forvarnar- skyni, en þeir sem hingað koma eiga allir sameiginlegt að búa við einhvers konar skerðingu á starfsemi lungna.“ Fræðsla og umsjón með hópum sem eru að hætta reykingum eru í höndum Jónínu Sigurgeirsdóttur, starfandi aðstoðarhjúkrunarstjóra á lungnaendurhæfingadeild. Reykingavarnir eru markvissar á öllum deildum á Reykjalundi og er Jónína ráðgjafi í þeim. Með henni starfa tveir sjúkraliðar sem hafa fengið sérstaka þjálfun til verkefnisins. Meðferðin felst meðal annars í vikulegum fræðslufundum, umræðum og stuðningi, auk þess sem nikótínlyf eru gefin eftir þörfum. „Fræðsla hefst viku fyrir innlögn þegar hjúkrunarstjóri ræðir við sjúkling í síma. Þannig hefur nauðsynleg hugarfarsbreyting átt sér stað þegar sjúklingur kemur til okkar. Meðferð er einstaklingsmiðuð eftir því sem kostur er og við leggjum áherslu á hópefli og stuðning innan hópsins. Venjulega er fólk í sex vikur í lungnaendurhæfingu og fer að öllu jöfnu heim um helgar. Hluti af aðhaldi hjá okkur er mæling á kolmónóxíði í útblæstri þegar komið er aftur á Reykjalund eftir helgarfrí. Með því móti sést hvort viðkomandi hefur reykt beint eða óbeint síðasta sólarhring. Ef mæling sýnir of mikið kolmónóxíð er það vísbending um að við þurfum að veita viðkomandi meiri hjálp, til dæmis fleiri stuðningsviðtöl, virka hlustun eða aukinn skammt af nikótínlyfjum." Fá viðurkenningarskjal Að lokinni meðferð fá allir sem staðist hafa bindindið viðurkenningarskjal og segir Jónína að flestum þyki mjög vænt um það. „Við gerum áætlun fyrir hvern og einn um hvernig best sé að draga úr notkun nikótínlyfja. Við fylgjum fólki eftir í eitt ár með símtölum og könnum hvort það er ennþá reyklaust, ásamt því að styðja það, hvetja og stappa í það stálinu." Um þessar mundir er Jónína að hefja rannsókn á árangri reykingavarnarnámskeiðsins á Reykjalundi en nokkur ár eru síðan slík rannsókn var síðast gerð þar. Hún segist hafa sérstakan áhuga á að kanna hvaða þættir hafa mest áhrif á að fólk haldi reykbindindi. „Ég hef á tilfinningunni að reglubundin hreyfing og hollt mataræði hafi mikil áhrif á árangur en okkur skortir rannsóknar- niðurstöður. Upplýsingasöfnun mun standa yfir í tvö ár.“ Á síðasta ári var gerð tilraun í meðferð gegn reykingum á Reykjalundi sem fólst í að skipta fólki í tvo hópa eftir kyni. Jónína segir að það hafi gefist mjög vel, enda virðast ólíkar aðferðir henta hvoru kyni. „Mér fannst þetta gefa góða raun en kynjaskipt meðferð krefst fleira starfsfólks og því miður er ekki útlit fyrir að við getum leyft okkur þetta aftur í bráð.“ Rætt við verðandi foreldra Helga Gottfreðsdóttir, Ijósmóðir við miðstöð mæðra- verndar heilsugæslunnar í Reykjavík og kennari við náms- braut í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands, segir að á síðustu misserum hafi færst í vöxt að talað sé við verðandi mæður um áhrif reykinga. „Við spyrjum hvort þær reyki og hvort reykt sé í umhverfi þeirra. Ljósmæður eru flestar ófeimnar að ræða skaðsemi reykinga, bæði áhrif á fóstur ef móðirin reykir og áhrif óbeinna reykinga ef reykt er nálægt ungum börnum. Við látum konur hafa fræðslu- bækling um efnið en helst vildi ég að við gætum boðið þeim sem reykja sérstök tóbaksvarnarnámskeið." Helga segist telja að um þriðjungur verðandi foreldra hætti reykingum strax og Ijóst er að von er á barni. „Um þriðjungur dregur úr reykingum og um þriðjungur heldur áfram óbreyttu reykingamynstri." í viku í Hveragerði Heilsustofnun Náttúrulækningafélags íslands í Hveragerði mun vera eina heilbrigðisstofnunin hér á landi þar sem fólk er lagt inn gagngert til að hætta reykingum. Námskeið hafa verið haldin síðastliðin fimm ár og að sögn Huldu 85 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.