Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Qupperneq 24
Forvarnapistill: Áslaug Halldórsdóttir og Sigríður Jónsdóttir
Kransæða- og lungnasjúkdómar eru alvarlegt heilsufars-
legt vandamál. Til þess að sporna við þeim verður gildi
forvarnarstarfs seint ofmetið. Forvarnir verða sífellt veiga-
meiri þáttur í starfsemi heilbrigðisþjónustunnar og þá
sérstaklega heilsugæslunnar.
Á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga er lögð mikil áhersla á
forvarnir. Starfsfólk stofnunarinnar vildi leita nýrra leiða í
forvarnarstarfi og þegar því bauðst að taka þátt í átaks-
verkefni með Tóbaksvarnarnefnd var slegið til og verkefn-
inu Ráðgjöf í reykbindindi hrundið af stað.
Það er hefð fyrir því að fólk stígi á stokk um áramót og
strengi þess heit að hætta að reykja. Áramót eru því
tilvalinn tími til að ná til þeirra sem vilja hætta að reykja og
styðja þá í þeirri viðleitni. Verkefnið Ráðgjöf í reykbindindi
felst í símaþjónustu þar sem sérþjálfaðir hjúkrunarfræð-
ingar veita fólki sem vill hætta að reykja, eða er nýhætt að
reykja, ráðgjöf og stuðning. í kjölfar símaráðgjafar er
sendur út bæklingur með ýmsum ráðum til að hætta að
reykja. Ásgeir Helgason sálfræðingur, höfundur bæklings-
ins, var fenginn til að þjálfa hjúkrunarfræðingana í að veita
ráðgjöf og stuðning með símaþjónustu en hann hefur
mikla reynslu af slíku starfi. Hann átti þátt í að koma á fót
stofnun í Svíþjóð sem kallast Sluta-röka-linjen þar sem
fólki er hjálpað að hætta að reykja með þessum hætti.
Ráðgjöf í reykbindindi þjónar landinu öllu og er svarað í
grænt símanúmer, 800 6030. Tóbaksvarnarnefnd sér um
fjármögnun verkefnisins.
Reynslan frá Svíþjóð hefur sýnt að þeim sem leita til
símaþjónustunnar áður en þeir hætta að reykja farnast
betur en þeim sem ekki notfæra sér þessa þjónustu.
Þjónustan felst í því að reykingamaðurinn getur hringt í
grænt númer og komist í samband við ráðgjafa sem ræðir
við hann, metur fíkn hans, gefur góð ráð og fylgir samtal-
inu eftir með því að senda bæklinga til viðkomandi og
hringja í hann að ákveðnum tíma liðnum óski hann þess.
Þeir sem hringja skiptast aðallega í tvo hópa, þeir sem
ætla að hætta að reykja og svo þeir sem eru hættir að
reykja en eiga erfitt með að standa sig í bindindinu.
Átakið Ráðgjöf í reykbindindi hófst í byrjun janúar sl.
með röð auglýsinga sem Tóbaksvarnarnefnd lét birta
bæði í sjónvarpi og dagblöðum. [ auglýsingunum var fólki
bent á að hringja í græna númerið og leita sér aðstoðar.
Hringingarnar héldust í hendur við birtingu auglýsinganna.
Á annað hundrað manns nýtti sér þjónustuna fyrstu vik-
urnar og fram kom í viðtölum við fólk að áhrifamáttur
88
auglýsinganna var mikill. Eftir að auglýsingaherferðinni lauk
hefur dregið úr hringingunum. Ljóst er að þörfin fyrir þessa
þjónustu er mikil og margir þeirra sem hana nýttu urðu að
hætta að reykja heilsu sinnar vegna.
Þjónustan Ráðgjöf í reykbindindi heldur áfram en nú
með breyttu sniði. Þeir sem hringja inn komast í samband
við símsvara og þar er hægt að leggja inn skilaboð.
Hjúkrunarfræðingar stofnunarinnar sjá um að svara skila-
boðum og veita ráðgjöf og stuðning. Vonir eru bundnar við
að þessi þjónusta sé komin til að vera og eru ýmsir fleiri
möguleikar tengdir henni, svo sem skipulögð námskeið.
Um símsvörunina sáu níu hjúkrunarfræðingar sem voru
allir starfandi við stofnunina. Ljóst er að hjúkrunarfræðingar
hafa mikinn áhuga á þessum málaflokki og þeim mögu-
leikum sem slík verkefni bjóða upp á. Símsvörunin og
ráðgjafarvinnan var ýmist unnin á heilsugæslustöðinni eða
heima hjá hjúkrunarfræðingunum sjálfum. Það að geta
unnið heima er fyrirkomulag sem getur hentað mörgum
vel, t.d. hjúkrunarfræðingum sem búa á landsbyggðinni.
Stórum áfanga er náð þegar einstaklingur tekur
ákvörðun um að hætta að reykja og stórsigur unninn
þegar honum tekst það. Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar
Þingeyinga vill leggja sitt að mörkum til að árangur náist í
baráttunni gegn reykingum. Það er hlutverk okkar sem
störfum í heilbrigðisþjónustunni að stuðla að því að sem
flestir sigrar vinnist.
Golfmót
hjúkrunar-
fræðinga
Sumarmót hjúkrunarfræðinga
verður haldið á Strönd, golf-
velli Hellu, 9. júni 2000. Mótið
hefst stundvíslega kl. 14.30 og er mæting að Suður-
landsbraut 22, kl. 13.00. Kvöldverður og verðlauna-
afhending verður í golfskálanum að loknu móti.
Skráning og nánari upplýsingar fást í síma
568 7575 og tölvupósti hjukrun@hjukrun.is
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000