Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 25
Valgerður Katrín Jónsdóttir: J_í{«sorkA k\jimA Lífsorka kvenna, hagnýtt heilsunámskeið fyrir konur, nefnist námskeið sem auglýst var í dagbiöðunum fyrir skömmu. Við nánari eftirgrennslan kom í Ijós að verkefnis- stjóri námskeiðsins var Þorbjörg Hafsteindóttir, hjúkrunar- fræðingur. Til að fá svör við ýmsum spurningum um þetta námskeið og aðstandendur þess lagði ritstjóri Tímarits hjúkrunarfræðinga land undir fót og heimsótti þátttakendur á lokadegi námskeiðsins. Námskeiðið var haldið í gistiheimilinu Frosti og funa í Hveragerði. Er þangað var komið var matarhlé og þátttak- endur að gæða sér á hollusturéttum. Sólveig Eiríksdóttir, sem kennd er við Grænan kost, var á leið út úr húsinu eftir að hafa búið til gómsæta rétti. í forstofunni var Þorbjörg, önnum kafin við að leysa ýmis skipulagsmál í gegnum símann. Hún bauð mér að bragða á réttunum úr borð- salnum. Þar mátti sjá ýmsar gerðir af baunaspírum, salat- blöð, grænmetisrétt og ofnbakaðan lauk svo nokkuð sé nefnt. Meðan við snæddum hádegisverð sagði Þorbjörg frá sjálfri sér og námskeiðinu. Hún hefur verið búsett í Danmörku frá því að hún var tvítug og eyddi flestum sumrum uppvaxtaráranna þar. „Fór þangað oft sem smástelpa þar sem ég á móðursystur í Kaupmannahöfn, ég fór til Danmerkur eins og margir aðrir fóru í sveitina," segir hún þar sem við sitjum innan um fræðslubækur og kennslugögn í fundarherbergi gisti- heimilisins. Áhuga á matargerð segist hún einnig hafa haft frá því hún var lítil. „Móðir mín, Ingveldur Guðmundsdóttir, bjó oft til grænmetisrétti, var á tímabili á námskeiði á Heilsuhælinu í Hveragerði og ég vandist því að borða linsubaunarétti og alls kyns baunamat og „macro-biologiskt“ fæði. Ég fór snemma að fást við matargerð, er skilnaðarbarn og tók fljótt á mig ábyrgð, var farin að elda níu ára gömul. Áhugi minn á matargerð varð til þess að ég byrjaði í matar- tæknanámi í Danmörku, en mér leiddist það, fannst námið ekki spennandi og hætti þegar ég ófrísk var látin skera í sundur og matreiða svínahjörtu." Það var einnig maður hennar, Jörgen Jespersen, sem bjargaði henni úr svínahjörtunum, en hann er kennari að mennt og bauðst að fara til Alsír um tveggja ára skeið að kenna börnum danskra verktaka sem þar voru að vinna í sementsverksmiðju. „Við höfðum búið í Marokkó í sex mánuði og kunnum svo vel við okkur í þessari norður- afrísku menningu að við vorum tilbúin að fara aftur.“ Hún segir þó að þetta hafi verið mjög ólík svæði, kommúnismi „Það verður að byrja á börnunum og venja þau á góðar og hollar matarvenjur frá blautu barnsbeini. “ hefði sett svip sinn á Alsír, fólk hafi verið orðið hrætt og tortryggið. Þau bjuggu um 30 km frá Dananýlendunni í litlu þorpi, nálægt Sahara-eyðimörkinni og hún var ófrísk að næstelstu dóttur sinni, Idu Björk. En hún segir landið hafa verið mjög fallegt. Stórfenglegt og magnað í rústrauðum litum og þau hafi notað tímann mikið til að ferðast milli þess sem hún sinnti húsmóðurstörfum við mjög frum- stæðar aðstæður, handþvott og vatnsleysi. ídu átti hún í Danmörku og fór aftur með hana til Alsír er hún var fimm vikna gömul. Flugið til baka segir hún hafa verið mikla þrekraun því fluginu var frestað í tvo sólarhringa og hún hafi þurft að vera á flækingi með tvö börn, annað á brjósti og hitt, Ástu Leu, eins og hálfs árs gamla, hlaupandi út um alit. „Mér verður oft hugsað til þessarar reynslu er ég lendi í mótlæti í lífinu og fyrst ég komst í gegnum þetta finnst mér ég geta allt." Verslað með te í Kaupmannahöfn Frá Alsír lá leiðin til Kaupmannahafnar en þar setti hún upp verslun þar sem hægt var að velja milli 100 mismunandi te- og kryddtegunda og gátu viðskiptavinir blandað þeim saman að vild. „Það var mikill og góður teilmur í loftinu og í litlu herbergi á bak við var ég með testofu þar sem menn gátu bragðað teið og fengið ýmsa smárétti sem ég bjó til. Þar var pláss fyrir 11 manns og alltaf fullt. Þetta var á 89 Tímarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 76. árg. 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.