Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 26
Frederiksberg, á Gammel Kongevej. Staöinn sóttu nágrannar og einnig kom mikið af frægu fólki og listafólki þangað. Börnin tvö skriðu um allt og voru með í öllu. Ég seldi auk þess lýsi og íslenskar ullarvörur, var að reyna að skapa markaðsstemningu sem mér fannst svo skemmtileg í Norður-Afríku. Við áttum heima í skuggahverfi, Vesterbro, og vorum alltaf að fara að flytja þaðan. Og þegar Ida kom eitt sinn inn skjögrandi með eiturlyfjasprautu sem hafði verið notuð var engin spurning lengur. Við ákváðum að flytja út á land og láta gamlan rómantískan draum rætast.“ Þorbjörg og fjölskyldan fluttu til Stevns á Suður- Sjálandi og innan skamms settist hún á skólabekk í Næst- ved. Hún var ákveðin í að læra óhefðbundna næringar- ráðgjöf en vildi læra hjúkrunarfræði fyrst. „Þetta var 1986. Mér fannst námið mjög skemmtilegt og það kom mér á óvart hvernig litið var á manninn heildrænt, eða sem hluta af umhverfi, menningu og þess háttar. Við lærðum sál- fræði, næringarfræði og um orkustöðvar líkamans, svo eitthvað sé nefnt. Þær sem sáu um kennsluna þarna vildu kynna fyrir okkur ýmsar hugmyndir sem gaman var að kynnast. Þegar ég fór svo að vinna á deildum sjúkra- húsanna voru önnur áhersluatriði og sjúkrahúskerfið að sjálfsögðu ekki byggt upp með þessum áherslum." Hún fór því næst í nám í næringarráðgjöf sem er þriggja ára nám í einkaskóla. Institut for optimal ernæring heitir skólinn sem hún sótti. Stofnandi og skóiastjóri skólans er Eva Lydeking Olsen sem kannski er mörgum kunnug enda hefur hún skrifað fjölmargar bækur sem fjalla um mataræði samkvæmt sérstökum kenningum. Þessar kenningar eru m.a. kenndar við Suzette van Hauen, læri- meistara Evu, og hún er „the grand old lady“ hinnar óhefð- bundnu næringarstefnu. „Ég hef verið svo lánsöm að vinna með báðum þessum kostakonum og Suzette er góð vinkona mín og leiðbeinandi." Með náminu vann Þorbjörg við heimahjúkrun, ók um sveitina og hlúði að eldra fólkinu og ræddi um líf þess. „Það var mjög gaman og lærdóms- ríkt, fólk hafði frá mörgu að segja þó svo að sumir hefðu aldrei farið út fyrir sveitina sína.“ En um hvað fjallar næringarráðgjöf sú sem Þorbjörg veitir? „Næringarráðgjöf mín, eða okkar sem starfa á þennan hátt, byrjar með því að ég „hlusta" á sögu sjúklingsins með öllum skynfærum, beiti virkri hlustun og greini orsakir einkennanna eða sjúkdómsins. Því næst hefst fyrsti hluti meðferðarinnar sem fjallar um hreinsun eða „elimination" af t.d. óæskilegum eiturefnum, veirum, sýklum, sveppum o.s.frv. Svo þarf að styðja og styrkja t.d. ónæmiskerfi, meltingu, ensýmframleiðslu, náttúrulegan bakteríuvöxt og lifrarstarfsemi. Þetta geri ég m.a. með mataræði, þar sem ég tek tillit til fæðuóþols sem oftast tengist ójafnvægi í líkamanum og með mismunandi hreins- andi og styrkjandi efnum, oft eru notuð smáskammtalyf, jurtir og þau bætiefni sem henta hverju sinni. Þetta er að sjálfsögðu unnið út frá einstaklingnum og reynt að taka tillit 90 til allra þátta sem geta haft áhrif á fyrstu þróun sjúkdóms- ins og þá um leið á bata. Oft mæli ég með stuðnings- meðferð, t.d. nuddi, svæðanuddi eða nálarstungum. En mikilvægur liður í bata sjúklingsins er að gera hann ábyrgan fyrir eigin bata og hjálpa honum að öðlast skilning á þeim krafti sem felst í því. Virkur sjúklingur sem aflar sér verkfæra til sjálfshjálpar er eftir minni reynslu betur á sig kominn en sá sem aðhefst ekkert og leggur ábyrgðina á aðra. Það er ekki bara reynsla mín heldur vel þekkt meðal fleiri aðila sem fást við sjúklinga. En það er því miður oft ekki rými fyrir óþekka sjúklinga í heilbrigðiskerfinu. Það að vera virkur og leita stuðnings á öðrum sviðum og með aðferðum sem ekki eru nefndar hefðbundnar, mætir litlum skilningi og oft vanþóknun og lítilsvirðingu stétta hins opinbera heilbrigðiskerfis." Að námi loknu vann Þorbjörg með Evu að bein- þynningarverkefni þar sem þær sýndu fram á að hægt sé að bæta beinþynningu með mataræði án hormónameðferðar. „Þetta var lítið verkefni en vakti samt það mikla athygli að það var fjallað um það í Journal of Nutritional Medicine." Hún segir þær Evu hafa verið mikið á ferðalögum þennan tíma, með fyrirlestra um beinþynningu og hormónameðferð, og tóku þær þá börnin iðulega með sér á ráðstefnur út um allan heim. Börnin eru meðal þess mikilvægusta í lífi Þorbjargar. „Það verður að byrja á börn- unum og venja þau á góðar og hollar matarvenjur frá blautu barnsbeini." Hún tók sér því stöðu sem sundheds- lærer, eða heilsukennari, á Fröbels pædagogseminarium í Kaupmannahöfn og kenndi þar, ásamt klínískum störfum sínum, í þrjú ár. Hún kom fram með ný sjónarmið í faginu sem tengjast mataræði og hvernig rétt mataræði hefur áhrif á heilbrigði og þroska barna. Hún sýndi hvernig má fyrirbyggja t.d. „vöggustofupest“, þ.e. síendurteknar sýk- ingar ungbarna, með réttu mataræði, betri umgengni, meiri útivist og fleiru sem styrkir ónæmiskerfi barnanna. Þorbjörg segir mikla grósku í svokölluðum kjörlækn- ingum í Danmörku og um 30% þjóðarinnar leitar til kjör- lækna ef eitthvað bjátar á. Á stofunni þar sem hún vinnur eru í boði margar mismunandi meðferðaraðferðir undir sama þaki. „Ritarinn okkar er hjúkrunarfræðingur og hún greinir hvaða meðferð passar best fyrir skjólstæðinga okkar og þar af leiðandi hvert okkar hún vísar á, en auk mín vinna þarna sálfræðingur, svæðanuddari, „osteopath" og læknir einu sinni í viku.“ Þetta er einkarekin meðferðarstofa í Birkerod, skammt frá Kaupmannahöfn. Hún segir mjög mikið að gera hjá þeim og þau þurfi aldrei að auglýsa. Þorbjörg segir fæðuóþol og ofnæmi vera meðal annarra fylgifiska óholls mataræðis. „í Danmörku er fjórða hvert barn með ofnæmi. Þess vegna lagði ég mikla áherslu á að kenna tilvonandi leikskólakennurum hvað við getum gert fyrir börn, t.d. þau sem eru alltaf veik, hvernig við getum bætt ónæmiskerfi þeirra með betra mataræði. Það er t.d. athyglisvert að ef mjólkurvörur eru teknar af börnum sem Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.