Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 28
„Hef verið með fæðuóþo
íí
Ingunn Sigurgeirsdóttir, fjármála-
stjóri Féiags íslenskra hjúkrunar-
fræöinga, var meðal þátttakenda á
námskeiði um lífsorku kvenna.
Hún hefur verið með fæðuóþol frá
því hún var barn. „Ég borðaði t.d.
aldrei saltkjöt og aldrei kartöflur, og
það hefur líklega bjargað mér að
ég var ekki látin borða þann mat
sem ég þoldi illa.“ Hún segir að
hún hafi verið með stöðuga magaverki frá því hún var um
tvítugt en þann tíma hafi hún ekki passað vel upp á
mataræði. Rúmum áratug síðar var maginn iðulega
uppblásinn, jafnvel þannig að hún komst ekki í föt og í
kjölfarið fylgdu ótal rannsóknir. Það eina sem kom út úr þeim
var að hún var með mjólkuróþol.
Hún segist hafa séð viðtal við Þorbjörgu á Stöð 2 og
hugsað með sér að þetta væri eitthvað fyrir hana og er
ánægð með námskeiðið. „Það er oft erfitt að finna út hvað
má borða þegar fólk er með fæðuóþol og gott að fá
fræðslu og upplýsingar um það sem hægt er að borða í
staðinn," segir hún. Hún segir höfuðverk, þreytu og
orkuleysi hafa fylgt sér alla tíð.
Hún segist hafa fundið mikla breytingu á sér á nám-
skeiðinu, þó að hún hafi orðið vör við höfuðverk og ýmis
fráhvarfseinkenni sem fylgja breyttu mataræði. „Ég var
miklu orkumeiri þegar ég kom heim og litarháttur minn
breyttist til betri vegar." Hún hefur breytt mataræðinu frá
því hún kom heim og segir að sér líði mun betur en áður
...og á eftir að líða enn betur." Það taki tíma fyrir líkam-
ann að venjast breyttu fæði. „Við erum einnig vön að nota
ákveðnar vörur við matargerð og það tekur tíma að
venjast öðrum.“ Hún segir mikið vanta á fræðslu til
almennings varðandi mataræði og of algengt sé að fólk
borði óhollan mat og skyndibitafæði. Það sé ekki síst
slæmt fyrir þá kynslóð sem er að vaxa úr grasi og eflaust
ástæða þess að margir eigi við fæðuóþol að stríða.
- vkj
HUGSAÐU
HLYTT
TIL
HUÐARINNAR
ICELAND
Ef þú vilt byggjo upp og viðholdo nóttúrulegum roka
húðorinnor ættir þú a5 leita róðo hjó sjólfri nóttúrunni.
Blue Lagoon rakokremið geymir einstoko samsetningu af
söltum úr Blúa lóninu sem stuðlo aö heilbrigðu rokojofnvægi
í húðinni. Þoð er sérstoklego gott sem dagleg húðvernd
ó allan líkamonn, jafnt fyrir börn og fullorðno. Blue Logoon
rakakremið er án ilmefna, fer sérstaklego vel meö viökvæma
og þurra húÖ og mýkir einnig exem og psoriasis húö.
Blue Lagoon vörurnar fást í apótekinu.
www.bluelagoon.is
\
\
92
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000