Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Qupperneq 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Qupperneq 29
Kveð a frá Neskauostað Ýmsar nýjungar hafa orðið í starfsemi Fjórðungs- sjúkrahússins í Neskaupstað á síðustu árum Á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað (FSN) eru 43 rúm sem skiptast í 32 rúm á handiæknis- og lyflæknis- deild, þar af eru 6 rúm á fæðingargangi, og 11 rúm á öldrunardeild. Innlagnir hafa verið á bilinu 800-1.015 síð- ustu þrjú ár. 33% sjúklinga koma frá Neskaupstað en 67% annars staðar að. Fæðingar eru 40-60 á ári og þar af eru 4-6 keisaraskurðir. Aðgerðir á skurðstofu eru á bilinu 400-460 árlega, meðal annars speglanir. Bráðaaðgerðir eru 70 til 80. FSN er eina bráðasjúkrahúsið sem er algjörlega reyklaust. Það hefur komið okkur á óvart hversu vel hefur gengið að framfylgja því og sem dæmi má nefna að sjúklingar hafa hætt reykingum í kjölfar bráðainnlagnar og látið okkur vita að þeir séu enn reyklausir að ári liðnu. Endurhæfingarnámskeið Undanfarin fimm ár hafa verið haldin tvö til þrjú endurhæf- ingarnámskeið á hverju ári fyrir hjarta- og lungnasjúklinga. Endurhæfing miðar að því að gera þann sem misst hefur færni eða getu hæfan á nýjan leik. Flún er unnin í þverfag- legri teymisvinnu, en í teyminu eru Björn Magnússon, lyflæknir og sérfræðingur í lungnasjúkdómum, Anna Þóra Árnadóttir og Fleiðrún Snæbjörnsdóttir sjúkraþjálfarar og Anna Sigurveig Ólafsdóttir og Ruth Guðbjartsdóttir hjúkrunarfræðingar. Endurhæfing er fyrir sjúklinga sem farið hafa í hjarta- aðgerð eða kransæðaútvíkkun eða hafa aðra hjartasjúk- dóma og einstaklinga með langvinna lungnasjúkdóma. Markmið er að auka þrek og hindra framgang sjúkdóms með þjálfun og fræðslu um áhættuþætti. Mikilvægt er einnig að auka vellíðan og sjálfsöryggi sjúklings. Hér er HL hópurinn. í tækjasalnum. bæði um grunn- og viðhaldsþjálfun að ræða. Námskeiðin hefjast með þrek- og áreynsluprófum til að meta og greina sjúkdómsástand hvers og eins. Við höfum nýlega eignast fullkominn tækjabúnað til þolprófunar, einnig er hér góð þjálfunaraðstaða með tækjasal og sundlaug. Við upp- lýsingasöfnun eru gerðar hjúkrunargreiningar, markmið sett fram í samvinnu við sjúkling og hann fær stuðning og hvatningu til að ná þeim. Flóparnir eru litlir, sjö til tíu manns sem koma víða af Austurlandi. Námskeiðin standa í 4 til 6 vikur í senn og eru byggð upp með fræðslu, þjálfun, slökun og afþreyingu. Stunda- skrá er frá klukkan átta til fjögur á daginn. Fyrir hádegi eru leikfimi og sund, auk þess er hjólað á þrekhjóli, eftir hádegismat er farið út í göngu í fylgd sjúkraþjálfara og hjúkrunarfræðings og síðan fer fram slökun. Eftir kaffi er fræðsla í fyrirlestraformi. Læknir sér um fræðslu um sjúk- dóma og lyfjameðferð. Sjúkraþjálfarar um áhrif þrek-, þol- og viðhaldsþjálfunar, síðan sjá hjúkrunarfræðingar um fræðslu um streitu og streitustjórnun, mataræði og breyttan lífsstíl. Reykingarvarnir er einnig stór þáttur í fræðslunni og stuðningur við þá einstaklinga sem eru að takast á við að hætta reykingum. Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 2. tbl. 76. árg. 2000 93

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.