Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Side 30
Hvíldarstund i gönguferðinni.
í slökun.
Eldað ofan i mannskapinn.
Síðast en ekki síst er lögð áhersla á afþreyingu sem
hefur verið í ýmsu formi, s.s. línudans, myndlist, föndur,
spilastundir o.s.frv. í lok námskeiðs elda allir saman
hollustukvöldverð, bæði sjúklingar og starfsfólkið í teyminu.
Fjör, glens og gaman hafa einkennt þessar stundir og allir
hafa fundið samkennd og gleði yfir árangri innan hópsins.
Fyrir útskrift er árangur hvers og eins metinn með þrek-
og þolprófi, öndunarmælingu og viðtölum þar sem metið
er hvort settum markmiðum hefur verið náð. Hver og einn
fær skriflega úttekt á mælingum fyrir og eftir útskrift.
Markmið okkar allra er að fá fólk til að halda áfram þjálfun
og viðhalda breyttum lífstíl. Svo vitnað sé í orð hjarta-
sjúklings tveimur árum eftir þátttöku hans í endurhæfingar-
námskeiði „glæddi mig nýju lífi, setti í mig kraft, ekki síst
andlega, breytti lífsháttum mínum og kom mér á nýja
braut’’ (Hálfdán Haraldsson fyrrverandi skólastjóri).
94
Fjarfunda- og fjarlækningabúnaður
Þessi búnaður var gefinn af Krabbameinsfélagi Austfjarða
og hefur komið að góðum notum. Unnt er t.d. að senda út
speglanir til annarra landshluta frá FSN öðrum til fróðleiks
eða til að fá sérhæfða ráðgjöf. Vikulega eru sendir út
fræðslufundir frá FSA, auk þess sem við höfum miðlað
fræðslu til annarra á landsbyggðinni.
Spegianir
Fjórðungssjúkrahúsið eignaðist mjög góðan speglunar-
búnað fyrir tveimur árum og með honum geta læknar gert
speglanir á berkjum, maga, ristli, blöðru, kviðarholi og liðum.
Svefnrannsóknartæki
Svefnrannsóknartæki sem gefin eru af Rauða kross deild
Norðfjarðar eru væntanleg innan nokkra daga. Þessi tæki
eru notuð til greiningar á svefnröskunum og nýtast einnig
til að taka heilalínurit og til rannsóknar á sýrubakflæði.
Þessi tækjabúnaður mun styrkja og efla heilbrigðisþjónust-
una á Austurlandi.
Hjúkrun
Eins og sjá má er hjúkrunin á breiðum grundvelli og við
höfum tekið upp einingarhjúkrun (modular nursing). Við
störfum í teymisvinnu, handlæknisteymi og lyflæknisteymi,
og skiptum okkur niður á hin ýmsu svið hjúkrunar, t.d.
bráðahjúkrun, hjarta- og lungnahjúkrun, verkja- og
krabbameinshjúkrun og geðhjúkrun, svo eitthvað sé nefnt.
Fundir eru haldnir hálfsmánaðarlega innan hvers teymis og
eru nýttir til að miðla fræðslu meðal starfsfólks.
Við teljum að sjúkrahúsið okkar búi yfir góðum tækja-
búnaði og húsnæði. Starfsfólkið er metnaðarfullt og við
fáum hér sérfræðiþjónustu frá ýmsum sviðum. Það sem
okkur vantar er hjúkrunarfræðingar og teljum við að hérna
væri áhugaverður starfsvettfangur fyrir nýútskrifaða hjúkr-
unarfræðinga, sem og reynda hjúkrunarfræðinga.
Framtíðarsýn
Áformað er að setja upp endurhæfingardeild sem starf-
rækt yrði allt árið og þjóna myndi öllu Austurlandi og stytta
biðlista á öðrum endurhæfingardeildum. Á sjúkrahúsinu er
gamall skurðstofugangur sem hentar vel fyrir slíka starf-
semi en þarf endurbóta við. Einnig er nauðsynlegt að fá
stöðuveitingu fyrir iðjuþjálfara. Tölvusneiðmyndatæki
myndi styrkja og bæta þjónustuna við Austfirðinga. Til að
sporna við flótta frá landsbyggðinni teljum við að einn
mikilvægasti þátturinn sé að tryggja íbúum góða og
aðgengilega heilbrigðisþjónustu.
Kveðja,
Anna Sigurveig Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Ruth Guðbjartsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000