Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 35
tilraunir þeirra til aö aðlaga einkenni að hversdagsleikanum og hvernig einkennin eru loks upplifuð sem eitthvað hættulegt sem þarf að bregðast við. Þörfin fyrir viðbrögð kemur fram sem hræðsla, eitthvað sem allir viðmælendur vilja tjá sig um að fyrra bragði. Sjúklingurinn er hræddur við verkina sem slíka og hræddur við að deyja. Hjúkrunar- fræðingurinn getur fundið til hræðslu við að gera mistök, en hann er líka hræddur um sjúklinginn. Þegar fréttist af komu sjúklings í alvarlegu ástandi geta hjúkrunarfræðingar í stutta stund fundið fyrir mikilli hræðslu, sem virðist eiga uppruna sinn í umhyggju fyrir sjúklingnum. Andstæða hræðslu var hér túlkuð sem léttir og vellíðan (comfort). Skilyrði vellíðunar er að hræðslu og verkjum sé haldið í skefjum og að hæft starfsfólk sé nærri. Hjúkrunar- fræðingar geta upplifað eins konar „flæðistilfinningu", þegar vitað er hvernig bregðast á við og meðferð gengur vel, jafnvel þegar sjúklingurinn er mjög veikur. Niðurstöðurnar gætu hjálpað heilbrigðisstarfsfólki til að skilja betur hvernig bæði sjúklingar og hjúkrunarfræðingar upplifa bráð hjartavandamál. Dóróthea Bergs, hjúkrunarfræðingur, MSc „Faldi skjólstæðingurinn" Konur sem hugsa um eiginmenn með krónískan lungnasjúkdóm. Tilgangur þessarar eigindlegu rannsóknar var að lýsa mati þátttakenda af gæðum lífs síns, þ.e. kvenna sem búa með mönnum með krónískan teppusjúkdóm í lungum (COÞD) og annast þá. Þessar konur leggja oft á sig ómælt erfiði til að sjá um eiginmenn sína heima fyrir. Þar sem sjúklingar með krónískan lungnasjúkdóm tapa smátt og smátt þreki sínu eftir því sem sjúkdómurinn ágerist, eru þeir háðir því að einhver annist þá þegar þeir eru ekki inni á sjúkrahúsi. Eftirfarandi rannsóknarspurning var sett fram og notuð við gagnasöfnun: „Hvert er mat kvenna sem annast eiginmenn með krónískan lungnasjúkdóm (COPD) á gæðum lífs síns?” Notuð var reynsiubundin rannsóknar- aðferð (phenomenology). Upplýsingum var safnað frá sex eiginkonum manna sem haft höfðu sjúkdóminn í tvö ár eða lengur og voru hættir að geta unnið. Konurnar voru á aldrinum 47-69 ára. Notuð voru óstöðluð opin viðtöl eftir að konurnar höfðu skrifað undir staðfestingu þess efnis að þær tækju þátt í rannsókninni. Helmingur kvennanna var í vinnu utan heimilis. Að fullu var tryggður réttur kvennanna til þess að hætta þátttöku hvenær sem væri auk þess að farið væri með öll gögn sem einkamál. Við öflun upplýsinga og greiningu þeirra var lögð áhersla á að hver kona lýsti reynslu sinni á sem huglæg- asta hátt. Við greiningu upplýsinga var notuð aðferð Colaizzis en hún tryggir áreiðanleika niðurstaðna þar sem þær eru bornar undir þátttakendur um leið og þær eru túlkaðar. Niðurstöður sýna að huglægt mat kvennanna af gæðum lífs síns er háð mörgum þáttum sem þær skynja í hlutverki sínu sem umönnunaraðilar og er samofið lífi þeirra. Almennt séð finnst þeim gæði lífs síns frekar lítil, þar sem þær eru óánægðar með marga þætti í lífinu. Frístundir utan heimilis eru af skornum skammti, stuðn- ingur frá fjölskyldu og ættingjum er lítill og þeim finnst að heilbrigðisstarfsfólk sýni þeim ekki nægilegan skilning. Erfitt samband við eiginmennina hefur mikil áhrif á það hvernig þátttakendur í ransókninni skynja líf sitt. Hins vegar töldu konurnar að þeirra eigin heilsa væri ekki vandamál sem þær leiddu hugann að. Mikilvægast töldu þær að vera við betri heilsu en eiginmennirnir svo þær gætu annast um þá. Niðurstöður sýndu ennfremur að sjúkdómur eiginmannsins hefur áhrif á fleiri þætti í lífi eiginkvennanna, eins og fjölskylduhlutverk og ábyrgð, tengsl við börnin, félagslíf, svefn og andlega heilsu. Konurnar upplifa það sem grimm örlög að vera bundnar yfir eiginmönnum sínum og vita ekki hvort og hvenær þær fá einhverja aðstoð. Rannsóknin sýnir að með gæðabundinni nálgun við viðfangsefnið er hægt að öðlast vitneskju um heilsufar kvenna, í þessu tilfelli mat eiginkvenna af gæðum lífs slns meðan þær annast eiginmenn með krónískan teppu- sjúkdóm í lungum. Víðtækari stuðningur fyrir eiginkonur sem eru í umönnunarhlutverki er nauðsynlegur vegna þess að þeirra eigin heilbrigði fellur oft í skuggann fyrir alvarlegu heilsufari eiginmannanna. Þannig gefur þessi rannsókn vísbendingu um þörf fyrir aukna fræðslu og stuðning frá hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki til handa ættingjum sem sjá um langveika ástvini í heimahúsum. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000 99

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.