Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 37

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 37
niðurstöðunum kemur m.a. fram að tveir grundvallarþættir, tímaskipulag og samskipti milli hjúkrunarfræðinga og annara fagstétta, virðast hindra hjúkrunarfræðinga í að veita skjólstæðingsmiðaða hjúkrun. Á deildinni þar sem þessi rannsókn er gerð þurftu hjúkrunarfræðingar að vera á tveimur stöðum á sama tíma, á milli kl. 09:00 og 10:30. Af þessari niðurstöðu er dregin sú ályktun að þessi skörun á tíma hindri hópvinnu sem er ein af forsendum fyrir skjólstæðingsmiðaðri hjúkrun. Einnig benda niðurstöður rannsóknarinnar til þess að til að skapa og viðhalda einhvers konar einingu innan sjúkrahúsumhverfisins virðast hjúkrunarfræðingar vera félagsmótaðir sem undirstétt. Samskipti þeirra við aðrar fagstéttir, sérstaklega þær sem eru settar fyrir „ofan“ þá, bera merki slíkrar undirokunar. Laura Sch. Thorsteinsson hjúkrunarfræðingur, MSc Gæði hjúkrunar frá sjónarhóli eínstaklinga með langvinna sjúkdóma í þessari rannsókn voru kannaðar með eigindlegri aðferða- fræði upplifun og skynjun einstaklinga með langvinna sjúkdóma á gæðum hjúkrunar. Upplýsingar voru fengnar með opnum viðtölum við 11 einstaklinga með langvinna sjúkdóma, sem legið höfðu á Landspítala, Fossvogi eða Landspítala Hringbraut á árunum 1997-1998. Viðtölin voru greind samkvæmt Vancouver aðferðafræðinni varð- andi fyrirbærafræði. Helstu niðurstöður voru þær að umræddir einstaklingar töldu sig að mestu hafa fengið gæðahjúkrun í heilbrigðis- kerfinu og voru að flestu leyti ánægðir með störf hjúkr- unarfræðinga. Niðurstöðurnar sýndu jafnframt að gæði hjúkrunar voru nátengd þeim hjúkrunarfræðingum sem hjúkrunina veittu og því var persónulegum eiginleikum þeirra iðulega lýst. Nefnd voru atriði, svo sem að þeir væru velviljaðir, elskulegir, umhyggjusamir, hefðu góða framkomu, sýndu faglega færni o.s.frv. Sérstakan áhuga vakti að margir hjúkrunarfræðingar virtust beita kímni við störf sín og kunnu einstaklingarnir í rannsókninni því vel; „næring fyrir sálina" sagði einn þeirra. Þeir sem fannst þeir ekki hafa fengið gæðahjúkrun lýstu þeim hjúkrunarfræðingum sem slíka hjúkrun veittu sem áhugalausum, frumkvæðislausum og með litla þjónustulund. Ytri þættir, svo sem vistarverur, aðbúnaður og matur skiptu einstaklingana minna máli í þessu sambandi en eiginleikar og framkoma hjúkrunarfræðinganna. Einstaklingarnir lýstu því að gæðahjúkrun hefði í för með sér öryggis- og vellíðunartilfinningu. Líklegt má telja að niðurstöður þessarar rannsóknar geti gefið einhverjar vísbendingar um gæði heilbrigðisþjónustu almennt. Þá geta rannsóknarniðurstöðurnar haft margvís- legt notagildi fyrir hjúkrun, kennslu, stjórnun og rannsóknir. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að kanna skoðanir skjólstæðinga heilbrigðisþjónustunnar á henni og upplifun þeirra varðandi gæði í þeim tilgangi að bæta þjónustuna. Sigfríður Inga Karlsdóttir, Ijósmóðir og hjúkrunar- fræðingur, MSc Ánægja barnshafandí kvenna með þjónustu Ijósmæðra í mæðravernd Þessi megindlega rannsókn lýsir upplifun barnshafandi kvenna af þeirri þjónustu sem þær fengu frá Ijósmæðrum á heilsugæslustöðvum á þremur stöðum á landinu. Gagnasöfnun fór fram í mæðravernd Heilsugæslustöðvar- innar á Akureyri, í mæðravernd á Sólvangi í Hafnarfirði og á göngudeild, kvennadeildar Landspítalans í Reykjavík. Alls voru 256 konur í úrtakinu og 232 þeirra svöruðu spurningalistunum, það gaf 91,3% svörun sem telst mjög góð svörun í megindlegum rannsóknum. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000 101

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.