Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 38
Meginniðurstöður voru þær að 68,6% kvennanna voru
mjög ánægðar þegar litið var á alla þætti mæðravernd-
arinnar, 29,7% voru frekar ánægðar, 1,3% hvorki ánægðar
né óánægðar og 0,4% sögðust vera mjög óánægðar með
þjónustuna í heild.
Þegar litið var á einstaka þætti þjónustunnar voru það
þættir eins og hversu ánægðar konurnar voru með upp-
lýsingar og fræðslu sem þær fengu, lengd viðtals, ánægja
með viðmót Ijósmóðurinnar, ánægja með samfellu í þjón-
ustunni og áhugi Ijósmóðurinnar á starfi sínu sem höfðu
mest áhrif á það hvernig þær mátu þjónustuna í heild.
Það virtist líka hafa mikil áhrif á ánægju kvennanna
með þá þjónustu sem þær fengu frá Ijósmæðrunum ef
þeim fannst mátulega langur tími milli koma í
mæðraverndina og ef þær þurftu ekki að bíða lengi í
biðstofunni eftir því að komast inn til Ijósmóðurinnar.
Einnig skipti miklu máli ef þeim fannst þær tengjast
Ijósmóðurinni og að þær gætu náð í hana í síma þegar
þær þyrftu.
Rannsóknin hefur tvímælalaust mikið gildi varðandi
þjónustu við barnshafandi konur og maka þeirra. Nokkrar
breytingar hafa orðið á þeirri þjónustu sem barnshafandi
konum og mökum þeirra stendur til boða, meðal annars
hefur tími sem hefur verið ætlaður í hverri komu verið
lengdur, meiri áhersla hefur verið lögð á að sama
Ijósmóðirin sinni fólkinu frá upphafi meðgöngunnar og á
sumum stöðum allt að viku eftir fæðingu barnsins.
Sárlega hefur vantað upplýsingar um hvernig konur
vilja hafa þá mæðravernd sem Ijósmæður sinna á
heilsugæslustöðvum um landið þannig að þær breytingar
sem framundan eru byggist meðal annars á óskum hinna
verðandi foreldra en að ekki sé eingöngu tekið tillit til
kostnaðar við mæðravernd.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Hjúkrunarfræðingar
Fjórðungssjúkrahúsið á Akuregri óskar eftir
hjúkrunarfraeðingum til starfa.
hað eru lausar stöður á: gjörgæsludeitd,
lyfjadeild, barnadeild, öldrunardeitdum.
Ennfremur eru lausar stöóur vegna
sumarafleysinga á öórum deildum.
Starfstími og starfshlutfall eftir samkomulagi.
Einskaktingsbundin aðlögun í boði.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
framkvæmdastjóra hjúkrunar.
Laun samkv. gitdandi samningi viðkomandi
stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri hjúkrunar,
sími 463-0273, netfang thora@fsa.is
Reyklaus vinnustaður.
OSWALDS
sími 551 3485
ÞJÓNUSTA AI.I.AN
SÓLARHRINGINN
AÐALSTRÆTI 4B • 101 REYKJAVÍK
Davíð Inger Ólafur
Utfararstj. Umsjón Útfararstj.
LIKKISTUVINNUSTOFA
EYVINDAR ÁRNASONAR
fáfef 1899
102
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000