Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Qupperneq 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Qupperneq 41
Brot úr starfsáætlun og ályktunum sem samþykktar voru á aðalfundi Bandalags háskólamanna 31. mars og 1, apríl 2000 Úr starfsáætlun Markmið Bandalags háskólamanna er og verður að menntun háskólamanna sé virt sem forsenda þróunar og framfara og hún metin að verðleikum (sjá nánar á www.bhm.is). Meginverkefni BHM á árunum 2000 og 2001 eru eftirfarandi: Almennt • Að vinna að endurskoðun laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna með það að markmiði að ein vinnulöggjöf gildi um íslenskan vinnumarkað. í tengslum við þá endurskoðun verði tryggt að verk- fallsréttur fylgi samningsrétti við einstakar stofnanir, • að aðstoða aðildarfélögin við að efla trúnaðarmanna- kerfi sín, • að hafa frumkvæði að því að kanna hvort og hvernig félög geti sameinast um trúnaðarmenn á stofnunum þar sem fieiri en ein fagstétt starfar, • að móta stefnu varðandi félagsmenn á almennum vinnumarkaði, • að efla rannsóknir á kjörum félagsmanna, • að stuðla að því að ákvæðum kjarasamninga um athugun á áhrifum nýs launakerfis sé framfylgt, • að tryggja réttarstöðu félagsmanna við breytt eignar- og rekstrarform stofnana; Innra starf • að skipuleggja upplýsingastreymi innan bandalagsins, þannig að gögn og þekking þess verði ávallt aðgengileg aðildarfélögum, • að stjórn BHM haldi fundi með forystu einstakra aðildarfélaga, • að styrkja tengsl og skapa vettvang fyrir samskipti innan bandalagsins, • að einfalda rekstur bandalagsins og gera hann skilvirkari; Kjarasamningar 2000 • að ná samningum um réttindi opinberra starfsmanna, • að halda kjararáðstefnu í maí 2000. Á þeirri ráðstefnu verði m.a. ákvarðað nánar hvert verði hlutverk BHM við gerð komandi kjarasamninga, • að halda samningastefnu og samningatækninármskeið að hausti 2000, • að koma á vettvangi fyrir lifandi gagnvirka kjara- umræðu. Úr ályktunum um kjara- og réttindamál og vinnuumhverfi Aðalfundur Bandalags háskólamanna: 1. Leggur til að skipuð verði sjálfstæð milliþinganefnd sem hafi það hlutverk að móta stefnu í málefnum háskólamanna gagnvart almenna vinnumarkaðnum. Markmiðið er að auðvelda aðildarfélögum að ná kjarasamningi við atvinnurekendur. 2. Beinir því til stjórnar BHM að hún beiti sér fyrir könnun á launakjörum háskólamenntaðra manna á íslenskum vinnumarkaði þar sem sérstaklega verði borin saman kjör starfsmanna ríkis, sveitarfélaga, sjálfseignastofn- ana og starfsmanna almenna vinnumarkaðarins. 3. Beinir því til stjórnar BHM að hún kanni meðal aðildar- félaganna álit þeirra á helstu kostum og göllum á framkvæmd dreifstýrðs launakerfis. 4. Felur stjórn bandalagsins að samræma aðgerðir þeirra aðildarféiaga sem þess óska gagnvart stofn- unum sem hafa ítrekað beitt öllum brögðum til að komast hjá því að fara að gerðum samningum eða þegar ekki næst niðurstaða í samstarfsnefnd. 5. Áréttar sameiginlega kröfugerð heildarsamtaka opin- berra starfsmanna frá haustmánuðum 1999 varðandi fæðingarorlof og veikindarétt. 6. Vinnulöggjöf í landinu verði samræmd. Tekið verði sérstakt tillit til breytts samningsumhverfis hjá aðildar- félögum BHM, þannig að verkfallsréttur verði dreif- stýrður eins og samningsrétturinn. 7. Réttur trúnaðarmanna til upplýsinga verði virtur, þar með talin réttindi til upplýsinga um launakjör umbjóð- enda þeirra. Heimild til fjarvista án skerðingar á iaunum verði aukin. Áréttuð er kröfugerð um réttar- stöðu trúnaðarmanna sem lögð var fram á sameigin- legum fundi BSRB, BHM og KÍ10. september 1999. 8. Gætt verði að því að stjórnarskrárvarið félagafrelsi háskólamanna verði virt í hvívetna og íhlutun atvinnu- rekenda eða annarra í frjálst val háskólamenntaðs launafólks á stéttarfélagi verði ekki liðin. 9. Telur að samræma skuli og skýra ákvæði hvíldartíma- 105 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.