Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Page 42
kafla kjarasamninga í komandi kjarasamningum með
það að markmiði að ekki sé vafi um vinnuverndar-
tilgang þeirra.
10. Áréttar að stéttarfélögum verði fengin virkari úrræði til
þess að fylgja eftir brotum á kjarasamningsbundnum
hvíldartímareglum.
11. Vill að Vinnueftirliti ríkisins verði fengin virkari úrræði til
þess að bregðast við öðrum brotum gegn vinnu-
verndarlöggjöfinni, ekki síður hjá opinberum stofn-
unum en hjá fyrirtækjum.
12. Telur að samræma og skýra þurfi ákvæði um hvernig
taka skuli út yfirvinnu í fríi.
Ályktun um skattamál
Aðalfundur Bandalags háskólamanna leggur áherslu á að
tekið verði tillit til fjárfestinga einstaklinga í menntun og að
skattakerfið verði nýtt sem stjórntæki til þess að lækka
áhrif jaðarskatta. Þessu má ná fram með að:
• Námsmenn geti að námi loknu nýtt persónuafslátt
sem safnast hefur upp á námstímanum eða að hluti af
námslánaafborgunum dragist frá tekjuskattstofni.
• Vextir af námslánum verði meðhöndlaðir eins og vextir
af húsnæðislánum með tilliti til vaxtabóta.
• Kostnaður við símenntun verði frádráttarbær frá
tekjuskattstofni.
Kæru hjúkrunarfræðingar
Ég tók við starfi hagfræðings
hjá Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga 1. febrúar
2000. Þrátt fyrir stuttan tíma í
starfi hefur hann verið
skemmtilegur og lærdómsríkur,
ég hlakka því til þess að takast
á við verkefnin sem fylgja
þessu starfi.
Ég lauk BS-gráðu í hagfræði við Háskóla íslands
vorið 1991. Frá þeim tíma hef ég unnið í fjármála-
ráðuneytinu, á Skattstofunni í Reykjavík og í Ráðhúsi
Reykjavíkur, fyrst í hagdeild, síðan í fjármáladeild.
Ég er gift og á tvö börn, 7 ára dreng og 20
mánaða stúlku.
Ágætu hjúkrunarfræðingar, ég fagna því mjög að
fá tækifæri til að vinna í ykkar þágu. Með von um
gott og mikið samstarf.
Helga Birna.
Nýr starfsmaður á skrífstofu!
Aðalfundur Bandalag háskólamanna leggur áherslu á
að börn fái persónufrádrátt eins og aðrir einstaklingar og
sá hluti persónufrádráttarins sem börn nýta sér ekki nýtist
foreldrum til skattaafsláttar.
Ályktun um málefni bótaþega
Aðalfundur Bandalags háskólamanna haldinn 31. mars og
1. apríl 2000 vill hvetja stjórnvöld til sérstakra aðgerða
vegna kjara þeirra sem þurfa að framfleyta sér á bótum
almannatrygginga eða á öðrum opinberum bótum og
skorar á stjórnvöld að leiðrétta raunlækkun þeirra síðustu ár.
Það er réttlát krafa þessa fólks að geta framfleytt sér á
viðunandi hátt og að tekjur þeirra fylgi almennri launaþróun
í landinu. Aðalfundurinn vill jafnframt benda á þau
grundvallarréttindi að bætur almannatrygginga verði ekki
tengdar við tekjur maka.
AA-fundir hjúkrunarfræðinga
AA-fundir hjúkrunarfræðinga eru haldnir að Þing-
holtsstræti 17 (í húsnæði Kvennakirkjunnar)
fimmtudaga kl 17.
Ég heiti Anna Árnadóttir og
hlakka til að takast á við ný
störf hjá Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Ég lauk
námi úr Verslunarskóla íslands
og hef unnið við launaútreikn-
ing, endurskoðun og önnur
skrifstofustörf. Ég hef einnig
rekið verslun og ferðaþjónustu.
Til hamingju!
Anna Lilja Gunnarsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, sem var
gjaldkeri í fráfarandi stjórn
Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, var ráðin
framkvæmdastjóri fjárreiða
og upplýsinga á Land-
spítalanum frá 1. maí sl.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar
henni velfarnaðar í hinu nýja starfi.
106
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000