Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 44

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 44
fræðingar aðgang að tölvu til uppflettingar. Tölvan kemur þannig í stað möppunnar og er eftirlit með aðgangi að þessum upplýsingum f formi lykilorða sem aðeins skilgreindur hópur hefur aðgang að. Læknar hafa aðgang að sömu gögnum á skrifstofum sínum. 4. Útskriftarmat. Umfjöllun um árangur hjúkrunarmeð- ferðar eða hindranir á árangri. Einnig er skráð hvernig gengið hefur verið frá viðhaidsmeðferð og/eða annarri þjónustu eftir útskrift. Byggt er á útskriftarviðtali. Þessi hluti er enn á textaformi, en verið er að huga að árangursmælikvörðum. Markmið með þessari uppstokkun var að auka gæði hjúkrunarskráningar og upplýsingaflæði til annarra starfs- stétta. Það er mikilvægt í því þverfaglega vinnuumhverfi sem við vinnum í. Áhersla var lögð á bætta skipulagningu gagna, samhæfingu orðalags, einföldun vinnuumhverfis (nýta tölvurnar til hagræðingar) og að skýringar á ákvörðunartöku væru skráðar ef við átti. Það að gera hjúkrunina sýnilega fyrir skjólstæðingum sem hluta af meðferð var tilraun sem við vissum ekki hvort myndi takast. Við vildum einnig forðast margskráningu og vonuðumst til að með bættu skipulagi myndi tími með skjólstæðingum aukast og vinnuumhverfi verða þægilegra. Lögð er áhersla á að gögnin séu þannig sett fram að þau standist tímans tönn sem hluti af sjúkraskrá, t.d. að samstarfsmenn séu skráðir undir starfsheiti, en ekki fornafni eins og víða sést. Eitt af markmiðunum var að gögnin gæfu sem skýrasta mynd af hjúkruninni, ferli endurhæfingar og líðan skjól- stæðings, jafnvel þó þau væru lesin eftir fimm ár. Stefnt var að því að byggja upp vinnuumhverfi sem hægt væri að nýta áfram þegar rafræn sjúkraskrá yrði að veruleika í fyllingu tímans. Samræming á orðalagi og að orða það sem við hjúkrunarfræðingar erum að gera var einn þátturinn og sá erfiðasti. Til að einfalda þessa vinnu og draga úr endurtekn- ingum var unnið að söfnun algengustu hjúkrunarmeðferða og hjúkrunargreininga í miðlægt Word skjal. Tengiliðir á hverri deild vinna við upplýsingasöfnunina. Handbókin og allir staðlarnir eru vistuð á móðurtölvu Reykjalundar og aðgengileg á öllum deildum. Þannig var þróuð rafræn handbók fyrir alla hjúkrunarfræðinga stofnunarinnar með þeirra eigin framlagi. Þetta var upphaflega gert til að minnka vinnu við innslátt því hægt er að nota „copy“ og „paste“ til að flytja texta eða kafla úr handbókinni á blað fyrir hjúkrunarmeðferð. Uppsetning og flokkun efnis, auk tenginga við kóðakerfi (til undirbúnings á gagnagrunni fyrir hjúkrun) er á hendi undirritaðrar. Við fórum einnig út í að skoða hjúkrunarmeðferðir og tengsl þeirra við vandamál sjúklinga, til að meta gæði þjónustunnar. Líklegt er að slík vinna fari fram innan teymanna á næstu árum. Hver starfsstétt mun án efa þurfa að skilgreina betur framlag sitt í meðferð skjólstæðinga og auka þannig samhæfingu. 108 Rafræna handbókin inniheldur helstu greiningar og meðferðir sem notaðar eru í endurhæfingahjúkrun á Reykjalundi. Efnið er sett upp eftir Gordonslyklum og notað er flokkunarkerfi NANDA, sem ekki þarf að kynna, og verið er að flokka hjúkrunarmeðferðir eftir NIC (nursing intervention classification). NANDA og NIC eru viðurkennd flokkunarkerfi í hjúkrun og mun notkun þeirra gefa okkur tækifæri til samanburðar við aðrar stofnanir innanlands og stofnanir í öðrum löndum. Þessi flokkunarkerfi munu einnig auðvelda okkur að mæla árangur hjúkrunarþjónust- unnar því að þau tengjast viðurkenndu flokkunarkerfi árangursmælinga sem nefnt eru NOC (nursing outcome classification). Það skiptir miklu fyrir endurhæfingarhjúkrun vegna þess að í þjónustusamningagerð er mikið rætt um árangursmælingar. Til gamans get ég upplýst að hjúkrunarfræðingarnir hafa nú þegar greint yfir 60 gerðir hjúkrunarvandamála sem algeng eru á Reykjalundi og algengustu meðferðarþættir (valkostir) eru um 6-10 fyrir hvert þeirra. Lauslega áætlað eru þetta því 400-500 meðferðarliðir sem að svo komnu er búið að skilgreina. Þeir voru áður lítt sýnilegir - einnig okkur hjúkrunar- fræðingum sjálfum. Vegna skorts á gagnagrunni er ekki enn tækifæri til frekari samantekta. Greiningahandbókin er grunnur að gerð meðferðarstaðla sem verið er að þróa á hverri deild fyrir tiltekna skjólstæðingahópa. Meðferðar- staðlarnir eru síðan einstaklingshæfðir og stöðugt bætt inn nýjum greiningum og meðferðum, en textinn er sóttur í handbókina til að spara vinnu. Hún er ekki endanlega frá- gengin enda lítum við á þetta sem stöðugt þróunar- verkefni. Stefnt er að gagnagrunni fyrir hjúkrun á Reykjalundi. Sá grunnur þarf að vera hluti af þverfaglegri, rafrænni sjúkra- skrá. Við erum að Ijúka undirbúningi fyrir slíkt vinnu- umhverfi. Væntanlega mun framlag hjúkrunar birtast í rafrænni sjúkraskrá og veita upplýsingar um líðan og fram- vindu meðferðar hjá skjólstæðingum, en auk þess sem tölfræðilegar upplýsingar um tegund og fjölda hjúkrunar- greininga og -meðferða sem veittar eru. Slík gögn munu bæði gera hjúkrun sýnilegri og bæta gæði þjónustunnar, ef rétt er með þau farið. Það að þekkja þær breytur sem unnið er með í hjúkrun og þann árangur sem hjúkrunar- stéttin nær með hjúkrunarmeðferð er mikilvægt fyrir alla hjúkrun í landinu. Aukin fræðsla starfsmannna. Á vormánuðum 1999 var haldið námskeið í endurhæfingarhjúkrun fyrir sjúkraliða og aðstoðarfólk við hjúkrun. Helsta efni var: Hjúkrun eftir heilaáfall, hjúkrun gigtarsjúklinga, verkir og verkjameðferð, slökun, gleði og ánægja (meðferð við þunglyndi). Einnig var fjallað um samskipti við skjólstæðinga og boðleiðir innan stofnunarinnar. Kennsla var í höndum hjúkrunar- fræðinga Reykjalundar. Fékk þetta ákaflega góðar undir- tektir og voru þáttakendur yfir 30 talsins. Á haustdögum Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.