Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Blaðsíða 45
héldum við allmarga fræðslu- og umræðufundi fyrir hjúkr-
unarfræðinga um gæði hjúkrunarskráningar í tengslum við
átak í þeim efnum, eins og áður hefur komið fram. Einnig
höfum við haft nokkra fræðslufundi um persónuvernd í
tengslum við tölvuskráningu persónupplýsinga. Næsta
vetur stefnum við að því að auka áherslu á þjónustu við
aðstandendur.
Endurhæfingarhjúkrun var kynnt hérlendis og erlendis.
Tveimur hjúkrunarstjórum á Reykjalundi var á síðastliðnu
ári boðið að halda fyrirlestra á alþjóðlegum hjúkrunarráð-
stefnum. Ragna Valdimarsdóttir kynnti á hjúkrunar-
ráðstefnunni Neuroscience in nursing niðurstöður rann-
sóknar sinnar á fólki sem hefur fengið heilablóðfall. Þar
naut hún aðstoðar Svövu Ingimarsdóttur. Steinunn Ólafs-
dóttir fjallaði um skipulag á endurhæfingarhjúkrun lungna-
sjúklinga á ráðstefnunni Nordisk kongress for syge-
plejersker i lungemedicin og allergologi í Kaupmannahöfn.
Þetta eru eftir því sem ég best veit fyrstu íslensku
hjúkrunarfræðingarnir sem hafa flutt fyrirlestra um endur-
hæfingarhjúkrun á erlendum hjúkrunarráðstefnum. Á ráð-
stefnunni Hjúkrun 99 fluttu hjúkrunarfræðingar af Reykja-
lundi tvo fyrirlestra. Annar fjallaði um rannsókn á árangri
hjúkrunarmeðferða sem beitt er í verkjameðferð sjúklinga
með langvinna verki og hinn um hugræna atferlismeðferð
og þann árangur sem hefur náðst með henni. Á WENR-
ráðstefnunni í vor verða tveir hjúkrunarfræðingar frá
Reykjalundi með veggspjald um rannsókn á ungum
konum með þunglyndi.
Uppbygging rannsókna í endurhæfingu. Rann-
sóknir tengdar Reykjalundi hafa ekki verið margar. Aðeins
ein rannsókn hefur verið birt og var hún framkvæmd af
hjúkrunarfræðingunum Guðbjörgu Rétursdóttur og Mar-
géti Baldursdóttur. Það var rannsókn á áhrifum reykinga-
varna á Reykjalundi og var samanburðarhópur fengin á
Vífilstöðum. Þessi rannsókn var kynnt á veggspjöldum á
alþjóðaráðstefnu hjúkrunarfræðinga í Vancouver í Kanada
vorið 1997. Þar hlotnaðist þessum frumkvöðlum sá heiður
að veggspjaldið var valið það besta á ráðstefnunni. Ein
þverfagleg könnun sem gerð var á Reykjalundi hefur verið
birt. Það var könnun á endurhæfingu eftir aflimun sem var
gerð árið 1996 af Elísabetu Guðmundsdóttur, hjúkrunar-
fræðingi, Hjördísi Jónsdóttur, lækni, og Kristínu Reynis-
dóttur, sjúkraþjálfara.
í dag er verið að vinna að hjúkrunarrannsókn á árangri
hjúkrunarmeðferða við verkjum. Silvía Ingibergsdóttir, Olga
Guðmundsdóttir og Anna Kristín Þorsteinsdóttir vinna að
þeirri rannsókn. Einnig er í undirbúningi samanburðar-
rannsókn við fyrrnefnda rannsókn á árangri reykingavarna
og mun Jónína Sigurgeirsdóttir stýra henni. Handleiðsla er
fengin frá Rannsóknarstofnun í hjúkrunarfræði. Báðar
rannsóknirnar hafa fengið styrk úr Oddssjóði. Margar fleiri
hugmyndir eru að rannsóknum og er það markmið
hjúkrunarstjórnenda að rannsóknir verði hluti af daglegu
vinnuumhverfi.
Eins og þið sjáið er hjúkrunarfræðingum á Reykjalundi
ekki fisjað saman eins og hjúkrunarforstjórinn okkar, Gréta
Aðalsteinsdóttir, segir oft. Hún er nú að hætta störfum og
leggur á önnur mið. Ég ætla að nota þetta tækifæri og
þakka henni samstarfið fyrir hönd hjúkrunarfræðinga á
Reykjalundi. Sérstaklega þökkum við stuðning við upp-
byggingu hjúkrunar og rannsókna hér á Reykjalundi á
undanförnum árum. Hann hefur verið ómetanlegur. Ekki
má heldur gleyma því að mikill styrkur er að tilkomu
Rannsóknarstofnunar í hjúkrunarfræði sem var stoð okkar
og stytta síðastliðið ár.
Með kveðju úr lundinum græna,
Elísabet Guðmundsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri.
Ályktun frá Land-
sambandinu gegn
áfengisbölínu
Fulltrúafundur Landsambandsins gegn áfengisbölinu,
haldinn 7. febrúar 2000, heitir á íslensku þjóðina að
skera upp herör gegn þeirri vá sem áfengi veldur
hvarvetna í þjóðfélaginu.
Sannað er hvert órofa samhengi er milli neyslu
áfengis og annarra vímuefna og að áfengisneysla er
oftast frumorsökin.
Heildarneysla áfengis eykst ár frá ári enda aðgengi
sífellt gert greiðara, m.a. með fjölgun útsölustaða og
áfengisveitingastaða. Þá hefur ekki síst áhrif linnulaus
áróður fyrir ágæti áfengisneyslu og andvaraleysi
almennings.
Afleiðingarnar blasa hvarvetna við í skelfilegum
kostnaði samfélagsins, að ógleymdri þeirri mannlegu
ógæfu sem vágestur þessi veldur.
Það er brýn nauðsyn að snúa af braut þessarar
óheillaþróunar en stefna til háleitra markmiða þar sem
hollum lífsháttum verði lyft í öndvegi. Látum nýja öld
einkennast af einbeittri sókn gegn vá vímunnar og
verum samtaka í því að gera áfengi útlægt sem allra
víðast.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000
109