Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Síða 48

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Síða 48
Umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðínga um frumvarp til laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsínga Allsherjarnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um frumvarp til laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Nefnd á vegum stjórnar og siðanefndar félagsins hefur fjallað um málið og byggist umsögn félagsins á niðurstöðu nefndar- innar. í nefndinni sátu Lilja Þorsteinsdóttir, Anna Sigríður Indriðadóttir, Þóra Ákadóttir, Dagrún Hálfdánardóttir, Þorbjörg Guðmundsdóttir og Hildur Helgadóttir sem var fulltrúi stjórnar. Þær Lilja og Hildur kynntu umsögn félagsins fyrir allsherjarnefnd 30. mars sl. Hér fylgir stytt útgáfa hennar en umsögnina í heild má nálgast á skrifstofu félagsins. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnar frumvarpi til laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og telur mikilvægt að fram fari reglulega endurskoðun á gildandi lögum um meðferð persónuupplýsinga vegna þeirrar öru þróunar sem er á rafrænni skráningu og mikilli upplýsinga- söfnun um einstaklinga sem vex dag frá degi. Við lestur frumvarpsins og gerð umsagnar tók nefndin fyrst og fremst mið af skráningu sjúkragagna og meðhöndlun þeirra og notkun persónuupplýsinga í vísindarannsóknum. Meginathugasemdir Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga við frumvarp til laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga 1. Samþykki. í 7. tölulið 2 gr. frumvarpsins er fjailað um samþykki einstaklings fyrir vinnslu tiltekinna upplýsinga um hann. í umsögn með frumvarpinu er talað um að hér sé átt við upplýst samþykki. í 8. gr. frumvarpsins er síðan talað um ótvírætt samþykki. Hvað ótvírætt samþykki felur í sér kemur ekki fram í frumvarpinu en athyglisvert er að við vinnslu almennra persónuupplýsinga er krafist ótvíræðs samþykkis en ekki fyrir vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga, þar er aðeins talað um samþykki. Til að taka af allan vafa hvers konar samþykki átt er við telur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga rétt að skilgreina upplýst samþykki með svipuðum hætti og gert er í frumvarpi til laga um lífsýnasöfn og einnig hugtakið „ótvírætt” samþykki þar sem það hugtak er notað í frumvarpinu án þess að skilgreiningu sé að finna á því. Einnig er spurning hvort í þessu frumvarpi ættu ekki heima skilgreiningar á öðrum formum samþykkta, s.s. ætlað samþykki og opið samþykki. 2. Félagslegar upplýsingar, upplýsingar um barnaverndar- mál og fjárhag einstaklinga ættu að falla undir 112 viðkvæmar persónuupplýsingar því oft eru þær þess eðlis að hægt er að skaða einstaklinga með þeim og geta þær varðað ákvæði um friðhelgi einkalífsins, sbr. 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins íslands. 3. í 36. gr. frumvarpsins um skipulag Persónuverndar og stjórnsýslu er lagt til að ráðherra skipi alla stjórnarmenn og það án tilnefningar. Félag íslenskra hjúkrunarfræð- inga telur rétt og leggur til að einn af fimm stjórnar- mönnum verði siðfræðingur, tilnefndur af Siðfræði- stofnun Háskóla íslands, vegna eðlis persónuverndar- mála og siðfræðilegra álitaefna sem óhjákvæmilega eru alltaf tengd vinnslu þeirra. 4. Inn í frumvarpið vantar ákvæði sem er að finna í VI kafla, 28. grein, 7. tölulið tilskipunar Evrópuþingsins og Evrópuráðsins 1995/46/EB frá 24. október 1995 um að eftirlitsyfirvaldið og starfsmenn þess skuli bundnir þagnarskyldu, einnig eftir að þeir hafa látið af störfum, um trúnaðarupplýsingar sem þeir hafa aðgang að. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga telur nauðsynlegt að ákvæði um þagnarskyldu Persónuverndar og starfs- manna hennar verði í lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga leggur áherslu á mikilvægi þess að lög og reglugerðir um sjúkraskrár verði endurskoðuð í framhaldi lagasetningar um persónuvernd. F.h. vinnuhópsins, Hildur Helgadóttir, Lilja Þorsteinsdóttir Vantar tengilíð! Borist hefur bréf frá: International Transplant Nurses Society, re: The Tenth International Transplant Nurses Society Symposium and General Assembly 30.8-1.9, 2000, Cambridge, England. Beðið er um að hjúkrunarfræðingar sem áhuga hafa á þessu og á að vera tengiliður (resource person) á íslandi, hafi samband við: Yvonne Davenport, Cardiac Transplant Office Northern General Hospital, Herries Road, Sheffield SS 7AV, England Vefsetur: http://www.transweb.org.itns Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.