Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2000, Qupperneq 51
Málþing um rafrænar hjúkrunarupplýsingar
Frá málþinginu.
Um 170 hjúkrunarfræðingar sóttu málþing sem siða- og
sáttanefnd og fræðslu- og menntamálanefnd Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga stóð að 5. apríl.
Herdís Sveinsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga, setti þingið og sagði við það tækifæri meðal
annars að góð skráning væri ein af forsendum góðrar
hjúkrunar og þó að tæknin hefði tekið miklum breytingum
á undanförnum árum hefði það ekki breyst hvað ætti að
skrá.
Dögg Pálsdóttir lögfræðingur flutti erindi þar sem hún
fjallaði um sjúkraskrár með tilliti til laga og reglugerða. Hún
sagði m.a. að hvergi í lögum væri skylda til að halda
sjúkraskrá, en í reglugerð frá 1991 eru fyrirmæli um að
læknar eigi að halda sjúkraskrá. í læknalögum frá 1988
fengu sjúklingar rétt til að lesa sjúkraskrár sínar og sam-
kvæmt lagabreytingum frá 1990 varð skylt að afhenda
sjúklingi afrit af sjúkraskránni. Þá fjallaði hún um hver ætti
þær upplýsingar sem kæmu fram í skránni og taldi
eðlilegast að telja að sjúklingurinn ætti þær upplýsingar
með takmörkuðum eignarrétti.
Lilja Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur ræddi um raf-
ræna sjúkraskrá og skráningu hjúkrunar. Hún fjallaði m.a.
um hjúkrunarskráningu og flokkunarkerfi og sýndi dæmi
um hvernig rafræn skráning fer fram. Þá sagði hún frá því
sem hefur gerst í kjölfar rafrænnar skráningar í öðrum
löndum en hún hefur haft í för með sér að magn og gæði
skráningar hefur aukist verulega. Þá sagði hún frá þróun
rafrænnar skráningar á Landspítalanum og tilraun sem
hefur staðið frá 1997. í lokin gaf hún upp slóðina
www.rsp.is/hjukstjo/skraning_hjuk/ fyrir þá sem vildu
kynna sér verkefnið nánar.
Rakel Guðjónsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri endur-
hæfingar og taugasviðs Landspítala Grensás, var næst á
mælendaskrá. Hún flutti fyrirlestur sem hún nefndi Sjúkra-
skrá, „hin helgu vé” og sagði frá ýmsum hugleiðingum
varðandi skrárnar og könnun sem gerð var á viðhorfum
almennings.
Að loknu kaffihléi fjallaði Anna Birna Jensdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri öldrunarsviðs Landspítala
Landakoti, um siðareglur og hjúkrunarskráningu og sagði
m.a. að það væri skylda hjúkrunarfræðinga samkvæmt
siðareglunum að þróa þekkingu í hjúkrun og til þess að
það væri hægt þyrfti upplýsingar. Hún sagði frá RAI-
mælitækinu sem hefur auðveldað gerð einstaklings-
hæfðrar hjúkrunargreiningar og aukið færni hjúkrunar-
fræðinga til að meta sjálfsbjargarhæfni sjúklings. Hún
sagði að lokum að kerfisbundin skráning leiddi til betri
þjónustu.
Að loknum framsöguerindum svöruðu fyrirlesarar
fyrirspurnum úr sal en auk þeirra sátu fyrir svörum þær
Hildur Helgadóttir deildarstjóri og Ásta Thoroddsen lektor.
Fundarstjóri var Vilborg Ingólfsdóttir, hjúkrunarfræðingur
hjá Landlæknisembættinu.
-vkj
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 76. árg. 2000
115