Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Blaðsíða 7
Ritstjóraspjall
Uppskrift að góðum jólum
leiksboðskap kristninnar, því að menn eigi
að vera góðir hver við annan. Það gildir
auðvitað um alla aðra daga ársins, okkur
tekst það misvel en flest reynum við að
vera aðeins betri en venjulega hvert við
annað yfir.hátíðarnar.
A/lenalind
Vernd fyrir viðkvæma húð
Þá eru jólin enn einu sinni að ganga í
garð og nýtt ár innan seilingar. Allir kepp-
ast við að þvo og bóna, baka og skreyta
og meðan á því stendur er ekki óalgengt
að fólk líti yfir farinn veg, líti yfir árið sem
er að baki og taki ákvarðanir um árið sem
fram undan er og næstu ár þar á eftir.
Flestir kannast við að stíga á stokk og
strengja ýmis áramótaheit, í flestum
tilfellum eitthvað sem bætir líf viðkomandi
og hans nánustu. Algengt áramótaheit
hjá mörgum hefur verið að leggja af, svo
sem nokkur kíló. Mönnum tekst misvel
að standa við slík heit - sumum alls ekki.
í þessu tölublaði er sagt frá bók sem er
nýkomin út fyrir þá sem ekki hafa getað
staðið við slík heit, bók um OA-samtökin
sem hafa hjálpað mörgum, sem eiga við
offituvanda að stríða, og m.a. einum
viðmælanda okkar. Annað vinsælt
áramótaheit er að hætta að reykja. í
þessu tölublaði kynnumst við aðferðum
sem Jennifer Percival, hjúkrunar-
fræðingur, var að kynna félögum sínum
hér á landi og notaðar hafa verið með
góðum árangri í Bretlandi til að aðstoða
þá sem vilja hætta reykingum.
Mikil starfsemi er hjá fag- og svæðis-
deildum í Félagi íslenskra hjúkrunarfræð-
inga. í þessu tölublaði eru birtir pistlar frá
tveimur fagdeildum um það sem efst
hefur verið á baugi hjá þeim, en fagdeild-
unum hefur verið boðið að koma fréttum
á framfæri í tímaritinu og flestar deildir
skipað fréttaritara sem sér um að koma
þeim á framfæri. Nýr pistill öldungadeildar
er kynntur, en í honum verður sagt frá
ýmsu sem tilheyrir sögu hjúkrunarfræð-
inga og í fyrsta pistlinum segir Bergljót
Líndal frá stofnun Líknar. Annar nýr þáttur
er kynntur í þessu tölublaði en það er
bréf til tímaritsins og skrifar Ásta Möller
um nauðsyn þess að varðveita gamla
muni sem hafa mikið gildi fyrir sögu
hjúkrunar, en hjúkrunarfræðingar eru
hvattir til að skrifa bréf um hvaðeina sem
þeim liggur á hjarta. Þá eru í þessu tölu-
blaði fræðigreinar um mikilvægi þess að
hlusta á þau merki sem líkaminn sendir,
upplýsingar á internetinu og þriðja grein
um vinnuálag hjúkrunarfræðinga. Sagt er
frá svæfingarhjúkrun og verða hinar ýmsu
sérgreinar hjúkrunar kynntar áfram í
næstu tölublöðum. Viðtal er við hjúkr-
unarfræðing frá Filippseyjum, m.a. um þá
menntun sem liggur að baki hjúkrunar-
námi þar, og er tilgangurinn m.a. að auka
skiining og draga úr fordómum gagnvart
erlendum hjúkrunarfræðingum sem starfa
hér á landi.
Þessa síðustu daga fyrir jól, þegar
flestir hafa keppst við að skiptast á upp-
skriftum um jólakræsingar, er ekki úr vegi
að velta fyrir sér uppskriftinni að góðum
jólum. Hún þarf ekki að vera flókin, það
er hægt að halda góð jól við fábrotnar
aðstæður eins og Hildur Magnúsdóttir
segir frá er hún rifjar upp jólahald í
Afganistan. En hver er uppskriftin að
góðum jólum? Líklega felst hún í kær-
HARTMANN
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001
295