Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Side 19
Aldursdreifing þátttakenda
Vikur könnunar
Mynd 1. Fjöldi innsendra svara á viku.
lágmarksgagnatap. Afritin eru geymd í læstri hirslu og
þess ber að geta að notendaskrá og gagnaskrá gagna-
grunns-afritanna eru eins og í frumgagnagrunninum, alls
ótengd.
Reynslan af gagnasöfnun á Internetinu meðal
íslenskra hjúkrunarfræðinga
Ekki er tímabært að gera grein fyrir niðurstöðum könnun-
arinnar sjálfrar þar sem einungis fyrri áfanga hennar (Inter-
netkönnun) er lokið (síðari áfangi felst í póstsendri könn-
un). Þess í stað verður stuttlega gerð grein fyrir því hvernig
hjúkrunarfræðingar brugðust við fyrri áfanga eða Internet-
könnuninni því í svarhlutfalli og svörunarmynstri birtast
markverðar aðferðafræðilegar upplýsingar.
Svörun
Könnunin var aðgengileg á netinu í 8 vikur og tóku 464
hjúkrunarfræðingar (eða rúmlega 18% úrtaksins) þátt með
því að senda inn svör.
Mynd 1 sýnir svörun eftir vikum og er áhugavert að sjá
hversu hátt hlutfall þeirra sem svöruðu gerðu það strax í
fyrstu vikunni sem könnunin varð aðgengileg á Internetinu.
Raunar svöruðu yfir 150 hjúkrunarfræðingar strax fyrstu 2
dagana eftir að kynningarbréfið var sent út. í erlendum
könnunum, sem gerðar hafa verið í skilgreindum hópum á
Internetinu, kemur þetta svarmynstur einnig í Ijós (Bauman
og Airey 1998; Lynch og Leder, 2001) og sýnir hversu
hratt má ná til þeirra sem á annað borð svara.
Svarendum fækkaði svo umtalsvert eftir því sem á leið
og sjá mátti mettun í Internetsvörun á u.þ.b. fjórum vikum.
Á 5. viku birtist auglýsing í Tímariti hjúkrunarfræðinga þar
sem hjúkrunarfræðingar voru hvattir til að taka þátt í könn-
uninni og í tvo daga á eftir mátti sjá veik viðbrögð sem
fólust í að engin svör höfðu borist í 2 daga samfellt áður
en auglýsingin birtist en 2 dögum eftir að blaðið kom út
svöruðu 8 hjúkrunarfræðingar.
Aldursdreifing þeirra sem sendu inn svör má sjá á mynd
2, en þar sést að fulltrúar allra aldurshópa hjúkrunar-
fræðinga sendu inn svör um Internetið og er aldursdreifing
þátttakenda borin saman við aldursdreifingu úrtaksins alls.
45%
40%
35%
_ 30%
Œ 3= 25%
_# X 20%
15%
10%
5%
0%
20-29 30-39 40-49 50-59 60 +
Aldur
Mynd 2. Aldursdreifing þátttakenda
Að lokum má geta þess að 8 hjúkrunarfræðingar kusu
að nota aðgangsnúmerin sín til að prenta út svör sín, fylla
þau út á þlaði og senda þau með pósti. Útprentaður
spurningalistinn var meira en 10 blaðsíður og varð höf-
undum Ijóst þegar fyrsti listinn barst í pósti að í viðleitni til
að hafa spurningalistann nægilega skýran og auðlesinn á
skjánum (stórir stafir, góð bil) varð hann full-umfangsmikill
á pappír. Hér mátti betur fara.
Umræða
Til að meta gæði niðurstaðna er ekki nóg að líta eingöngu
á svarhlutfall hjúkrunarfræðinga heldur skiptir meira máli
hversu góðir fulltrúar fyrir hópinn þeir eru sem svara (Cook
og félagar, 2000). 80% svörun hefur yfirleitt talist æskileg í
góðum könnunum, en eins og Wyatt (2000) bendir á er
slíkt svarhlutfall ekki alltaf nauðsynlegt til að geta alhæft
um þýðið, sérstaklega ef þátttakendur veita svipuð svör
hvað snertir lykilbreytur (Wyatt, 2000). Þó svör hafi ekki
borist nema frá 18% af úrtakinu benda gögnin, sem hafa
borist, til þessa að svörin endurspegli nokkuð vel þýðið í
heild hvað snertir lýðfræðilega þætti, svo sem aldur,
reynslu í starfi, menntunarstig og starfsumhverfi (sjá t.d.
aldursdreifingu á mynd 2) og geti gefið áhugaverða mynd
af tölvunotkun og viðhorfum til upplýsingatækni meðal
hjúkrunarfræðinga sem á annað borð nota þessa tækni í
starfi og daglegu lífi.
í könnun Schleyer og Forrest (2000) reyndist nauð-
synlegt að ýta töluvert við úrtakinu og minna það á að svara
Internethluta könnunarinnar til að ná betra svarhlutfallí. [
könnun meðal hjúkrunarfræðinga var látið nægja að birta
eina auglýsingu í Tímariti hjúkrunarfræðinga til að minna á
könnunina. Betra svarhlutfall á netinu hefði e.t.v. náðst með
fleiri áminningum.
Gera má ráð íyrir að gögnum, sem áður var safnað
með viðtölum, símaviðtölum eða svörun einstaklinga á
pappír, verði í auknum mæli safnað á Internetinu á kom-
307
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001