Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Blaðsíða 20
andi árum. Það er því mikilvægt að gera sér Ijóst hvernig
best má nýta kosti Internetsins sem gagnasöfnunarmiðils
og hvaða áhrif notkun þess getur haft á gæði gagna (sbr.
skekkjur), hraða og kostnað við gagnasöfnun, úrvinnslu og
birtingu niðurstaðna.
Samantekt í Ijósi reynslunnar
Ljóst er að við undirbúning könnunar eða rannsóknar á
Internetinu þarf að huga að sömu siðfræðilegu og aðferða-
fræðilegu þáttum og þegar gagnasöfnun er undirbúin með
hefðbundnari aðferðum en jafnframt þarf að taka tillit til
þátta sem tengjast Internetmiðlinum sérstaklega. Sömu
alúð þarf vitanlega að leggja við siðfræði og aðferðafræði
við samningu og prófun spurningalista eða mælitækis, val
úrtaks, persónuvernd, öryggi gagna o.s.frv. Nýir þættir,
sem huga þarf að við notkun Internetsins, varða t.d. fram-
setningu og útlit spurningalista sérstaklega m.t.t. mismun-
andi skjástærða og ólíks tæknilegs búnaðar fyrirhugaðra
þátttakenda (t.d. möguleika á að nýta útprentun), aðgengi
þátttakenda að Internetinu, almenna tölvureynslu þeirra,
svo fátt eitt sé nefnt. Ekki síst þarf að gaumgæfa sérstak-
lega þætti sem varða öryggi og persónuvernd rafrænna
gagna sem send eru milli rannsakenda og þátttakenda um
Internetið en á því sviði eru til mjög góðar tæknilegar lausnir
sem standa margar hverjar framar þeim lausnum sem
bjóðast við gagnaflutning um aðra miðla.
Við höfum í þessari grein skýrt frá aðferðafræði og
reynslu af könnun á Internetinu meðal hjúkrunarfræðinga. í
Ijósi þess að um er að ræða fyrstu könnun af þessu tagi
meðal hjúkrunarfræðinga má einnig líta á könnunina sem
tilraun til þess að kanna hagkvæmni gagnasöfnunar á
Internetinu á þennan hátt, bæði hvað snertir tíma og
kostnað. Samanburður á Internetáfanga könnunarinnar og
síðari áfanga þar sem ekki verður stuðst við Internet mun
veita fróðlegar upplýsingar um hvernig hagkvæmni þess-
ara aðferða ber saman.
Greint hefur verið frá því hversu hratt meginþorri svara
barst frá þeim sem svöruðu á annað borð og teljum við
það markverðar niðurstöður einar og sér. Þær benda til
þess að Internetinu fylgi augljósir kostir ef hraða þarf
upplýsingasöfnun og úrvinnslu, t.d. þar sem stöðugt mat
fer fram og bregðast þarf við niðurstöðum svo fljótt sem
auðið er. Þannig má hugsa sér Internetið til notkunar í
gæðamati og stjórnun á sjúkrastofnunum þar sem kanna
á t.d. álit sjúklinga á þjónustunni með þessari aðferð og
bregðast við niðurstöðum mun hraðar en ef gagna væri
aflað á annan og hægvirkari hátt.
Þakkir:
Við viljum þakka öllum þeim hjúkrunarfræðingum sem
sendu okkur svör og tóku þátt í þessari tilraun. Enn fremur
eiga heilbrigðisráðuneytið og landlæknisembættið þakkir
skildar fyrir að sýna könnuninni stuðning og áhuga og
fagdeild um upplýsingatækni í hjúkrun fyrir að veita okkur
afnot af vefsíðu sinni og vefþjóni og síðast en ekki síst
þökkum við íslenskri erfðagreiningu stuðninginn.
Heimildir:
Bauman, S., og Airey J. (1998). Effective use of the internet for survey
research. Wirthlin Worldwide. [Á netinu). URL: http://www.wirthlin.com/
aboutww/casro_art. htm
Bosnjak, M., og Tuten, T.L. (2001). Classifying response behaviors in
Web-based surveys. Journal of Computer-Mediated Communication,
6(3). [Á netinu]. URL: http://www.ascusc.org/jcmc/vol6/issue3/
boznjak.html
Cook, C., Health, F., og Thomson, R.L. (2000). A meta analysis of
response rates in Web or Internet based surveys. Educational and
Psychological Measurement, 60(6), 821-836.
Dillman, D.A., og Bowker, D.K (2001). The Web Questionnaire Challenge
to Survey Methodologists. f: Dimensions of Internet Science. Ritstjórar:
Ulf-Dietrich Reips og Michael Bosnjak. Lengerich, Þýskalandi: Pabst
Science Publishers. [Á netinuj. URL: http://survey.sesrc.wsu.edu/
dillman/zuma_paper_dillman_bowker.pdf.
Dillman, D.A., Tortora, R.D., og Bowker, D. (1998a). Principles for
Constructing Web Sun/eys. SESRC Technical Report 98-50,
Washington: Puliman. [Á netinu]. URL: http://survey.sesrc.wsu.edu/
dillman/papers/websurveyppr.pdf.
Dillman, D.A., Tortora, R.D., Conradt, J., og Bowker, D. (1998b).
Influence of Plain vs. Fancy Design on Response Rates for Web
Surveys. Erindi flutt á ráðstefnu: Joint Statisticai Meetings, Dallas,
Texas, í ágúst 1998. [Á netinu]. URL:
http://survey.sesrc.wsu.edu/dillman/papers/
asa98ppr.pdf
Duffy, M. (2000). Web based research: An innovative method for nursing
research, Canadian Oncology Nursing Journal, 70(2), 45-49.
Foreign Press Center-Japan (2000). White Paper on Communications
Forecasts Further Expansion of the Internet Market, birt 30. júní 2000.
[Á netinu] URL: http://www.fpcj.jP/e/shiryo/jb/0025.html
Groves R. (1989) Sun/ey Errors and Survey Costs. New York: John
Wiley.
GVU-Graphic, Visualization, and Usability Center's 7th WWW User
Survey (1997) Atlanta, Georgíu: Georgia Tech Research Corporation.
www.cc.gatech.edu/gvu/user_surveys/survey-1997-04/.
Lynch, J., og Leder, G.C. (2001). Data gathering through questionnaires:
new perspectives. [Á netinu]. URL: http://www.latrobe.edu.au/
mathed/jlogglarticle.html.
María Heimisdóttir (2001). Faraldsfræði í dag: Kerfisbundin skekkja.
Læknablaðið 3(87), 253.
McDowell, D., Dillon, T.W., Conklin, D., og Salimian, F. (1998). A
preliminary study: Capturing perceived accuracy and confidentiality of
traditional and computerized patient records. Proceedings of the
Association for Information Systems, 1998. [Á netinu]. URL:
http://www.isworld.org/ais.ac.98/proceedings/track18/mcdowell.pdf.
Morris, D.C. (1988). A survey of age and attitudes towards computers.
Journal of Educational Technology Systems, 7 7(1), 73-79.
O’Brien, DG., Yasnoff, WA. (1999). Privacy, confidentiality, and security in
information systems of state health agencies. American Journal of
Preventive Medicine 76(4), 351-358.
Pricewaterhouse Coopers (2001). Könnun á Internetnotkun: Sérvagn í
mars 2001. Reykjavík: Pricewaterhouse Coopers ehf.
Schleyer, T.K.L. og Forrest, J.L. (2000). Methods for the design and
administration of Web based surveys. Journal of the American Medical
Informatics Associiation 7, 4, 416-425.
Stronge, J.H., og Brodt, A. (1985). Assessment of nurses’ attitudes
towards computerization. Computers in Nursing, 3(4), 154-158.
Staggers, N. (1994). The Staggers nursing computer experience
questionnaire. Applied Nursing Research, 7(2), 97-106.
Wyatt, J.C. (2000). When to use Web-based surveys. Journai of the
American Medical Informatics Association 7, 426-429.
Zhang, Y. (2000). Using the Internet for survey research: A case study.
Journal of the American Society for Information Science 5 7 (1), 57-68.
308
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001